Læknablaðið - 15.08.1980, Qupperneq 18
180
LÆKNABLADID
GREINT ATHÆFI telst lækni ósæmandi:
a) að kynna sjálfan sig á nokkurn hátt umfram það, sem skýrlega er heimilað í
siðareglum lækna hvers lands eða ríkis,
b) að ganga á hönd nokkurri þeirri lækningasýslu, er skerði sjálfstæði hans sem
læknis,
c) að piggja fé vegna þjónustu, sem veitt er sjúklingi, umfram tilhlýðilega
læknisþóknun, eða láta úti fé vegna slíkrar þjónustu án vitundar sjúklings.
LÆKNI ERU SKILYRÐISLAUST ÓHEIMILAR hvers konar aðgerðir, er veikt gætu
líkamlegt eða andlegt viðnám nokkurrar mannveru, nema réttmætar séu í
lækninga- eða heilsuverndarskyni í þágu sjúklings.
LÆKNI ER SÆMST að birta almenningi uþþgötvanir með mikilli gát.
Sama máli gegnir um læknisdóma, ef gildi þeirra hefur ekki náð viðurkenningu
læknastéttarinnar.
ÞEGAR LÆKNIR ER KRAFINN vættis eða vottorðs, hlýðir honum að votta það eitt,
er hann getur fært sönnur á.
Skyldur læknis vid sjúkling
LÆKNI MÁ ALDREI GLEYMAST, hversu mikilsvert er að varðveita mannslíf, allt
frá getnaði þess til grafar.
LÆKNI BER AD AUÐSÝNA sjúklingi sínum fyllstu hollustu og greiða honum veg að
öllum úrræðum vísindagreinar sinnar. Ef ekki er á færi læknis að leysa af hendi
nauðsynlega rannsókn eða aðgerð, ber honum að leita fulltingis annars læknis, sem
til þess er fær.
LÆKNI BER AD GÆTA fyllstu þagmælsku um allt, er sjúklingur trúir honum fyrir,
eða honum verður kunnugt vegna slíks trúnaðar.
LÆKNI BER I VIDLÖGUM að inna af hendi nauðsynlega læknishjálþ, nema hann sé
fullvís þess, að hún verði látin í té af öðrum.
Skyldur lækna hvers vib annan
LÆKNI BER AD BREYTA við stéttarbræður sína, svo sem hann kýs að þeir breyti
við hann.
LÆKNIR MÁ EKKI lokka til sín sjúklinga frá stéttarbræðrum sínum.
LÆKNI BER AD HALDA skilorð Genfarheits lækna, sem samþykkt hefur verið af
Alþjóðafélagi lækna.