Læknablaðið - 15.08.1980, Page 21
LÆKNABLADID
181
ffl
n
REGLUGERÐ
FYRIR NÁMSSJÓÐ LÆKNA
lgr.
Hlutverk
Tilgangur sjóðsins er að styrkja lækna til framhaldsmenntunar og vísindastarfa. Getur par verið
um að ræða ferðir á læknafundi, pátttöku í læknanámsskeiðum, námsstörf á sjúkrahúsum og
rannsóknastofnunum, svo og vinna að ákveðum vísindalegum verkefnum.
2gr
Um sjóðstjórn
Stjórn sjóðsins skulu skipa prír menn, tveir tilnefndir af stjórn Læknafélags Reykjavíkur og einn
af stjórn Læknafélags íslands. Sömu aðilar tilnefna jafnmarga varamenn, sem skulu taka sæti í
stjórninni, ef aðalmenn forfallast.
Stjórn Læknafélags Reykjavíkur skipar formann sjóðsstjórnar, en hinir tveir skipta með sér
störfum ritara og gjaldkera.
Stjórnarmenn eru kosnir til 3 ára í senn og má ekki endurkjósa sömu menn í stjórn sjóðsins
nema einu (sinni.
Starfstímabil hinnar fyrstu stjórnar, sem kosin er samkvæmt pessari reglugerð skal vera frá
1. janúar 1975.
Stjórnarsampykkt er ekki lögleg, nema að minnsta kosti tveir stjórnarmanna greiði henni
atkvæði.
3. gr.
Stjórnarfundir
Sjóðstjórn skal halda fund minnst annan hvern mánuð og afgreiða pær styrkumsóknir, sem fyrir
liggja hverju sinni.
Stjórnin skal halda sérstaka fundargerðarbók og skrá í hana allar sampykktir sínar og gerðir.
4. gr.
Iðgjöld
Sjóðurinn tekur við iðgjöldum, sem greidd eru á eftirfarandi hátt:
a) Með föstum samningsbundnum greiðslum frá launagreiðendum, svo sem sjúkrasamlögum og
heilbrigðisstofnunum.
b) Með eigin framlögum lækna.
Stjórn sjóðsins hefur heimild til að ákveða hámark slíkra framlaga fyrir hvert ár.
Læknir, sem greitt hefur í sjóðinn skv. pessum lið í fullt ár án pess að æskja endurgreiðslu,
telst fullgildur meðlimur.
5. gr.
Styrkveitingar úr sjóðnum
Almennir náms- og vísindastyrkir úr sjóðnum mega nema allt að peirri upphæð, sem
umsækjandi á inni í sjóðnum, sbr. pó 2. mgr. 9. gr. Samanlagðar styrkveitingar yfir árið mega pó
ekki nema hærri upphæð en 90 % af tekjum sjóðsins næsta ár á undan.