Læknablaðið - 15.08.1980, Qupperneq 22
182
LÆKNABLADID
Stjórn sjóösins er heimilt að veita námsskeiðs- og fræðslunefndum L. R. og L. í. styrki til
fræðslustarfsemi á vegum félaganna, sem nemur allt að 10 % af óskiptum höfuðstól næsta árs á
undan. Nefndin skal láta fylgja umsókn sinni um styrk stutta greinargerð um, til hvers eigi að
nota féð. Síðan skal nefndin, að afloknu hverju einstöku verkefni, gera stjórninni grein fyrir
útlögðum kostnaði og senda henni fylgiskjöl par að lútandi ásamt fjárhagsuppgjöri.
Auk pess er stjórninni heimilt að verja nokkrum hluta nettótekna tveggja síðustu ára til
náms- og vísindastyrkja. Skal stjórnin pá hafa hliðsjón af skuldindingum sjóðsins skv. 1. og 2.
málsgrein pessarar greinar, sem skulu sitja í fyrirrúmi.
Umsóknir um styrki skal senda til stjórnar sjóðsins, á par til gerðum eyðublöðum, með
minnst eins mánaðar fyrirvara, með örstuttri greinargerð um tilefni beiðnarinnar.
Með umsókn um vísindastyrki, skv. 3. mgr. pessarar greinar, skulu pó fylgja nákvæmari
upplýsingar um pað verkefni, sem umsækjandi hyggst takast á við, og hvernig hann muni haga
vinnu sinni.
Sjóðfélagar, sem notið hafa styrks úr sjóðnum samkvæmt 1. og 3. málsgr. hér að framan,
skulu senda stjórn sjóðsins stuttorða skýrslu um nám sitt eða vísindaleg störf á styrktímabilinu.
6. gr.
Ávöxtun á fé sjódsins
Stjórn sjóðsins sér um ávöxtun á fé hans og skal pað gert á eftirfaradi hátt:
1. í ríkisskuldabréfum.
2. í skuldabréfum, sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs.
3. í bönkum og sparisjóðum.
4. í lánum til sjóðfélaga til skamms tíma gegn tryggingu, sem sjóðstjórn metur gilda.
5. í lánum til samtaka lækna.
Lán skv. liðum nr. 4 og 5 skulu háð sampykki stjórna L.R. og L. í., enda ábyrgjast félögin
greiðslur skv. 5. lið.
7. gr.
Um reikningshald sjóðsins
Færa skal bókhald yfir tekjur, gjöld og eignir sjóðsins.
Reikningsár hans er almanaksárið. Stjórn sjóðsins skal leggja reikninga fram til endurskoðun-
ar eigi síðar en 10. júní ár hvert. Endurskoðendur skulu hafa farið yfir reikningana og sent pá
síðan áritaða með athugasemdum sínum til stjórna Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags
íslands fyrir 20. júní. pannig endurskoðaðir skulu reikningarnir leggjast fyrir aðalfund
félaganna ásamt skýrslu sjóðstjórnar um starfsemi á árinu. Afrit eða Ijósrit reikninga og
ársskýrslu sjóðstjórnar skulu send fyrir 1. júlí ár hvert stjórnum Sjúkrasamlags Reykjavíkur og
Tryggingastofnunar ríkisins og slíkum öðrum, eftir pví sem ástæða pykir til, sem inna af hendi
samningsbundnar greiðslur í sjóðinn.
Sjóðurinn greiðir allan kostnað af starfsemi sinni.
Sjóðstjórn er heimilt að semja við skrifstofu læknasamtakanna um, að hún taki að sér
bókhald og starfrækslu sjóðsins.
8. gr.
Um endurskoðun reikninga
Stjórnir Læknafélags Reykjavíkur og Læknafélags íslands skulu sameiginlega tilnefna einn
endurskoðanda og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið annan endurskoðanda til priggja
ára í senn miðað við 1. janúar 1975, til að yfirfara ársreikninga Námssjóðs lækna.
Áður en reikningarnir eru lagðir fyrir stjórnir félaganna, sbr. 7. gr„ skulu peir endurskoðaðir
af löggiltum endurskoðanda, sem stjórnir L. R. og L. í. tilnefna.