Læknablaðið - 15.08.1980, Síða 24
184
LÆKNABLADID
REGLUGERÐ LÍFEYRISSJÓÐS LÆKNA
frá 26. desember 1966 með áorðnum breytingum
l. gr.
Nafn og heimili
Sjóðurinn heitir Lífeyrissjóður lækna. Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Hlutverk sjóðsins
Hlutverk sjóðsins er að veita sjóðfélögum elli- og örorkulífeyri og eftirlátnum mökum peirra og
börnum maka- og barnalífeyri samkvæmt ákvæðum reglugerðar pessarar.
3. gr.
Sjóðfélagar
Sjóðfélagar geta orðið allir félagsmenn Læknafélags íslands, sbr. f>ó 4. málsgr. pessarar greinar.
Elli- og örorkulífeyrispegar sjóðsins teljast félagar.
Peir, sem óska að gerast sjóðfélagar, skulu senda stjórn sjóðsins umsókn þar að lútandi á
eyðublaði, er sjóðurinn lætur í té.
Stjórn sjóðsins getur krafizt upplýsinga, p.á.m. læknisvottorðs um heilsufar manna, er sækja
um upptöku, ef heilsu peirra er svo háttað, að verulega aukin áhætta fyrir sjóðinn stafi af.
4. gr.
Stjórn sjóðsins
Stjórn sjóðsins er skipuð þremur mönnum og þremur til vara, er skulu vera sjóðfélagar. Stjórn
skal kjörin á aðalfundi og má eigi endurkjósa stjórnarmenn meira en 2 kjörtímabil í röð.
Stjórnin skal kjörin í fyrsta sinn á aðalfundi 1967.
Stjórninni er skylt að halda gerðabók og færa í hana allar sampykktir sínar.
Stjórnin kýs sér sjálf formann.
Stjórnin sér um rekstur sjóðsins samkvæmt reglugerð pessari. Stjórnarsampykkt er ekki
lögleg nema a.m.k. tveir stjórnarmenn greiði henni atkvæði.
5. gr.
Aðalfundur sjóðsins
Aðalfundur sjóðsins skal haldinn annað hvert ár í Reykjavík samtímis aðalfundi Læknafélags
íslands.
Stjórnin boðar til aðalfundar bréflega með minnst tveggja vikna fyrirvara. í slíku fundarboði,
sem sendist öllum sjóðfélögum, sem greitt hafa iðgjald eða notið lífeyris á undanfarandi ári, skal
tekið fram um eftirtalin dagskráratriði:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Fjárreiður sjóðsins.
3. Tillögur til breytinga á reglugerð sjóðsins.
4. Kosning stjórnar.
5. Önnur mál.