Læknablaðið - 15.08.1980, Page 26
186
LÆKNABLAÐID
10. gr.
Grundvöllur lífeyrisréttinda
Samanlögð iðgjöld sjóðfélaga hvert almanaksár skulu umreiknuð í stig, er mynda grundvöll
lífeyrisréttinda hans.
Til grundvallar stigaútreikningi skal reikna fyrir hvert almanaksár laun sérfræðings, sem
starfar samkvæmt hæsta taxta samnings Læknafélags Reykjavíkur og stjórnarnefndar
ríkisspítalanna um laun lausráðinna lækna frá 26. maí 1966, eða samningi, er kemur í hans stað.
Ekki skulu meðtaldar aðrar greiðslur en föst mánaðarlaun slíks sérfræðings í fullu starfi, svo og
orfofsfé. Arslaun skulu reiknast sem 11/12 af samanlögðum launum einstakra mánaða. Falli
niður samningar peir, sem nefndir eru í 2. málsgrein pessarar greinar eða verði peir að dómi
sjóðsstjórnar ónothæfur mælikvarði á breytingar á tekjum Iækna almennt, skal hún ákveða
annan stigagrundvöll, svo og tengingu hans við fyrri grundvöll. Sama gildir, ef stigagrundvöllur,
sem ákveðinn hefur verið af sjóðstjórn, reynist síðar ónothæfur.
Stig ársins reiknast pannig, að deilt skal í 10-föld iðgjöld sjóðfélagans með grundvallarlaun-
um, skv. 2. málsgr. pessarar greinar.
Reikna skal stig með premur aukastöfum.
Fé, sem yfirfært er úr öðrum lífeyrissjóði skv. 5. málsgr. 9. gr., skal umreiknað í stig með sama
hætti og iðgjöld á pví ári, er yfirfærsla á sér stað, sbr. 4. málsgr. pessarar greinar.
11. gr.
Ellilífeyrir
Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins í prjú ár eða lengur, og öðlazt hefur
samanlagt a.m.k. eitt stig skv. 10. gr. og orðinn er fullra 67 ára að aldri, á rétt á árlegum lífeyri úr
sjóðnum, enda hafi hann iátið af aðalstarfi sínu eða takmarkað svo störf sín, að pað, að dómi
sjóðstjórnar, jafngildi pví, að aðalstarfi sé hætt.
Upphæð ellilífeyris er hundraðshluti af grundvallarlaunum eins og pau eru á hverjum tíma,
sbr. 2. málsgr. 10. gr., og nemur hundraðshluti pessi samanlögðum stigafjölda, sem sjóðfélaginn
hefur áunnið sér, margfölduðum með 1.3.
12. gr.
Örorkulífeyrir
Hver sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins undanfarandi prjú ár, hefur öðlazt
samanlagt a.m.k. eitt stig skv. 10. gr. og ófær verður til að gegna pví starfi, sem hann hefur gegnt
pangað til og eigi á kost á öðru læknisstarfi eða missir sökum slíkrar örorku einhvern hluta
tekna peirra, er hann hefur greitt iðgjöld af til sjóðsins, á rétt á örorkulífeyri, ef
tryggingayfirlæknir, í samráði við trúnaðarlækni sjóðsins, metur örorkuna 40 % eða par yfir.
Örorkumat petta skal aðallega miðað við vanhæfni sjóðfélaga til að gegna starfi pví, er hann
hefur gegnt að undanförnu og greitt iðgjöld af í sjóðinn.
Hámark örorkulífeyris miðast við áunninn lífeyrisrétt skv. 11. gr. að viðbættum lífeyri, er
svarar til meðaltals stiga undanfarandi prjú ár margfaldað með árafjölda peim, sem eftir er til 67
ára aldurs sjóðfélagans.
Örorkulífeyrir er sami hundraðshluti af hámarksörorkulífeyri og örorkutapið er metið.
Skylt er öryrkja, sem sækir um örorkulífeyri úr sjóðnum eða nýtur hans, að láta stjórn
sjóðsins í té allar pær upplýsingar um heilsufar sitt, sem nauðsynlegar eru til að dæma um rétt
hans til örorkulífeyris.
Stjórn sjóðsins skal lækka eða fella niður örorkulífeyri peirra öryrkja, sem fá starfsorku sína
aftur að nokkru eða öllu leyti. Sömuleiðis ber stjórn sjóðsins að hækka örorkulífeyrinn, ef
örorkan vex til muna og án sjálfskaparvíta frá pví, sem hún var metin við fyrri ákvarðanir, enda
hafi öryrkinn haldið áfram iðgjaldagreiðslum til sjóðsins af tekjum, er hann kann að hafa haft af
störfum, er hann áður greiddi iðgjöld af, eða öðrum störfum, er hann hefur tekið upp í peirra
stað.
Örorkulífeyrir fellur niður, er taka ellilífeyris hefst. Ellilífeyrir öryrkja skal ákveðinn pannig,
að bætt skal við áunnin stig peim stigum, sem við úrskurðun örorkulífeyrisins voru reiknuð