Læknablaðið - 15.08.1980, Qupperneq 31
LÆKNABLADID
REGLUGERÐ UM ORLOFSHEIMLASJOÐ
LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
OG LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
189
I. KAFLI
Aðild og framlög
1. gr.
Rétt til aðildar að orlofsheimilasjóðnum eiga allir félagar í Læknafélagi íslands og Læknafélagi
Reykjavíkur. Aðild að sjóðnum og framlag í hann skal vera með fressum hætti:
1. Með samningum samtaka lækna við vinnuveitendur eða sjúkratryggingar um ákveðið
framlag eða frádrátt af greiðslum, sem rennur í sjóðinn. Framlag sjóðfélaga fer eftir
ákvæðum viðkomandi kjarasamninga.
2. Einstakir læknar, er gera sérstakan samning við orlofsheimilasjóð. Framlag þeirra skal
ákveðið af orlofsnefnd hverju sinni.
II. KAFLI
Réttindi sjóðfélaga
2. gr.
Rétt til afnota af sumarhúsum eða annarri þjónustu orlofsheimilasjóðs hafa allir sjóðfélagar, sbr.
l.gr.
3. gr.
Orlofsnefnd, sbr. 4. gr., úthlutar orlofshúsum skv. reglum, sem hún setur sér og stjórnir félaganna
sampykkja. Orlofsdvöl utan sumartíma verður úthlutað, eftir f>ví sem óskir berast frá
sjóðfélögum.
Öllum sjóðfélögum skal tilkynnt fyrir 1. febrúar ár hvert, hvaða orlofsdvöl sjóðurinn bjóði
uppá og skal sækja um leigu á sumarhúsum fyrir 1. apríl. Fyrir 15. apríl skal orlofsnefnd tilkynna,
hverjir hafi fengið orlofshús á leigu yfir sumarið. Einungis peir, sem skuldlausir eru við L.Í./L.R.
og orlofsheimilasjóð, skulu hafa rétt til að taka orlofshús á leigu.
III. KAFLI
Stjórn og rekstur sjóðsins
4. gr.
Stjórnir L.í. og L.R. kjósa sameiginlega 3 menn í orlofsnefnd til tveggja ára í senn.
5. gr.
Orlofsheimilasjóður er í vörzlu Læknafélags íslands, en skrifstofa L.Í./L.R. annast daglegan
rekstur sjóðsins.
Orlofsnefnd er heimilt að taka lán í nafni sjóðsins og undirgangast aðrar skuldbindingar að
fengnu samþykki stjórna L.Í./L.R.
Óráðstafaður hluti sjóðsins skal ávaxtaður eins og bezt verður á kosið.
Orlofsheimilasjóði skal varið til byggingar orlofsheimila og til að skapa á annan hátt aðstöðu
til orlofsdvalar sjóðfélaga.
Orlofsnefnd ákveður leigugjald fyrir orlofshús.