Læknablaðið - 15.08.1980, Blaðsíða 33
LÆKNABLADID
191
SKIPULAGSSKRÁ FYRIR DOMUS MEDICA
Staðfest af forseta íslands 26. april 1960
1. gr.
Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur hafa ákveðið að reisa hús í Reykjavík, íslenzkri
læknastétt til eflingar og styrktar. Skal stofnunin vera sjálfseignarstofnun og nafn hennar vera
DOMUS MEDICA
2. gr.
Tilgangur stofnunarinnar er að reisa og reka félagsheimili íslenzkra lækna og stuðla þannig að
bættri fræðslu og félagsstarfsemi þeirra. Er ákveðið, að í húsinu verði bókasafn, lesstofur,
lækningastofur svo og rannsóknastofur með sem fullkomnustum tækjum og útbúnaði.
3. gr.
1. Framlag frá Læknafélagi íslands kr. 100.000.00.
2. Framlag frá Læknafélagi Reykjavíkur kr. 100.000.00.
3. Framlög frá læknum.
4. gr.
Stjórn Domus Medica skipa 5 læknar og skulu peir vera félagar í L. í. Skulu tveir kosnir af
Læknafélagi íslands, tveir af Læknafélagi Reykjavíkur og einn sameiginlega af stjórnum
félaganna. Stjórnin tilnefnir sjálf mann eða menn í stað peirra, er úr henni ganga, enda
sampykkja stjórnir Læknafélags fslands og Læknafélags Reykjavíkur stjórnarkjörið. Stjórninni
er heimilt að kveðja sér til aðstoðar 3 varamenn.
5. gr.
Stjórnin kýs sér formann, varaformann, ritara og gjaldkera og skiptir með sér störfum að öðru
leyti eftir pví sem henni pykir henta. Stjórnin heldur fundi pegar formanni pykir við purfa, en auk
pess en formanni skylt að boða til fundar pegar prír stjórnendur eða pá endurskoðendur
stofnunarinnar krefjast pess.
1 maður gengur úr stjórninni ár hvert. í fyrstu eftir hlutkesti, síðan eftir starfsaldri.
6. gr.
Stjórn Domus Medica ræður framkvæmdastjórn fyrir stofnunina og starfsfólk eftir pörfum. Skal
stjórnin hafa eftirlit með öllum rekstri og úrskurðarvald um afnot húss og eigna. Þrír
stjórnarmenn skuldbinda stofnunina með undirskrift sinni. Stjórnarmenn bera ekki persónulega
ábyrgð á skuldbindingum, er peir stofna til vegna stofnunarinnar.
7. gr.
Starfsár Domus Medica og reikningsár er almanaksárið. Skal stjórnin fyrir lok aprílmánaðar ár
hvert semja reikning yfir tekjur og gjöld stofnunarinnar svo og efnahagsreikning. Skulu
reikningarnir endurskoðaðir af tveim mönnum, öðrum, tilnefndum af dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, en hinn af borgarstjóranum í Reykjavík og skal reikningurinn í heild eða útdráttur úr
honum birtur í Læknablaðinu.
8. gr.
Fé Domus Medica skal ávaxta í ríkistryggðum bankastofnunum eða með öðrum hætti, sem
stjórnin er sammála um að telja jafn tryggilega.