Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2007, Blaðsíða 11
DV Fréttir Fimmtudagur 8. mars 2007 11
Vilja fleiri dönsk börn
Nú á að auðvelda barnafjölskyldum
í Danmörku lífið í því skyni að fjölga
barneignum. Haft er eftir ráðherra
fjölskyldumála í Berlingske Tidende
að unnið sé að frumvarpi um hvern-
ig megi bæta umhverfi barnafjöl-
skyldna þannig að meðalhjón eign-
ist þrjú börn í stað tveggja eins og
staðan er nú. Hún segir danskt sam-
félag hafa not fyrir þessa fimmtán
þúsund einstaklinga sem myndu
fæðast til viðbótar á ári hverju ef
meðaltalið myndi hækka.
Skamma Breta vegna gervifrjóvgunar
Innanríkisráðherra Dana hefur sent breska
heilbrigðisráðherranum bréf þar sem hann lýs-
ir yfir óánægju sinni með þarlendar reglur um
gervifrjóvganir. Ástæðan er sú að nýlega fæddi
sextíu og eins árs gömul kona barn í Danmörku
eftir að hafa gengist undir gervifrjóvgun í Bret-
landi. Segir ráðherrann að málið hafi vakið
mikla athygli og verið rætt á þingi.
ÓttaSt að enginn Verði dæmdur
Tilraunir til að koma réttarhöldum yfir Rauðu
khmerunum á réttan kjöl hófust í gær eftir tíu ára
deilur um hvernig réttarhöldunum skyldi háttað.
Fyrrverandi yfirmenn Rauðu khmeranna hafa and-
ast úr hárri elli hver á fætur öðrum meðan unnið
hefur verið að undirbúningi réttarhaldanna.
Spánverjar stórhuga í framleiðslu á lífrænum orkugjafa:
Vonir standa til að eitt prósent af
allri bensínþörf spænskra ökutækja
verði mætt með eldsneyti unnu úr
appelsínuberki á næstu árum.
Í nágrenni Valenciu-borgar eru
um 190 þúsund hektarar þakt-
ir appelsínu- og sítrónutrjám og
nemur uppskeran um fjórum millj-
ónum ávaxta á hverju ári. Stærsti
hlutinn er nýttur í safa og þá standa
eftir um 240 þúsund tonn af appels-
ínuberki sem ætlunin er að nýta við
framleiðslu á lífrænu eldsneyti fyr-
ir bifreiðar. Stærsti hluti barkarins
hefur hingað til endað sem dýra-
fóður. Appelsínur og sítrónur eru
stærstu útflutningsvörur Valencia-
svæðisins og þegar ný ávaxtasafa-
verksmiðja verður tekin í gagnið á
næstunni mun magnið af appel-
sínuberki tvöfaldast og duga til að
framleiða 38 þúsund lítra af lífrænu
eldsneyti.
Samkvæmt frétt breska blaðs-
ins Guardian þarf eitt tonn af app-
elsínuberki til að búa til eldsneyti
sem fyllir áttatíu tonna bensíntank
fólksbíls. Tilraunir með framleiðslu
á lífrænu eldsneyti úr appelsínu-
berki hófust í Flórídaríki í Banda-
ríkunum fyrir tveimur árum síðan
og styðjast Spánverjar við reynslu
þeirra við framleiðsluna. Vonast er
til að þessi nýja atvinnugrein skapi
um tvö þúsund og fimm hundruð
störf á svæðinu. Áætlað er að lítrinn
af nýja orkugjafanum muni kosta
um fjörutíu prósentum minna en
bensínlítrinn.
Spánverjar hafa líkt aðrar Evr-
ópusambandsþjóðir það að mark-
miði að minnka notkun bílabens-
íns um sex prósent næstu þrjú ár til
að vinna á móti neikvæðum áhrif-
um gróðurhúsalofttegunda.
Eldsneyti úr appelsínuberki
Appelsínurnar týndar spánverjar ætla að gera tilraun með að búa til eldsneyti úr
appelsínuberki.
Brjóstastækkun á 15 mínútum
Tilraunir á nýju sænsku geli sem
sprautað er í brjóst kvenna til að
stækka þau hafa gefið góða raun.
Tekur meðferðin aðeins fimmt-
án mínútur og hafa þær konur sem
sprautaðar hafa verið ekki fundið fyrir
neinum aukaverkunum samkvæmt
frétt sænska blaðsins Expressen. Gelið
er unnið úr náttúrulegum efnum sem
leysast upp á tveimur til þremur árum
og er hugsað sem lausn fyrir þær kon-
ur sem hafa verið með börn á brjósti
eða vilja stækka brjóst sín lítillega.
Ógnartíð
Rauðu khmeranna
n rauðu khmerarnir voru kommúnistahreyfing
sem rændi völdum í Kambódíu árið 1975 og
sat við völd þar til Víetnamar steyptu þeim í
ársbyrjun 1979.
n Ein og hálf milljón landsmanna lést vegna
ógnarstjórnar khmeranna. stór hluti var tekinn
af lífi, margir voru sveltir í hel eða látnir vinna
þar til þeir duttu niður.
n algengt var að „óvinir stjórnarinnar“ sættu
langdregnum pyntingum áður en þeir voru
teknir af lífi.
n „Óvinir stjórnarinnar“ voru meðal annars
menntamenn (þeir sem gengu með gleraugu
voru augljóslega menntamenn samkvæmt rök-
um stjórnarinnar) og, þegar á leið, allir þeir
sem bjuggu í borgum (af því þeir lögðu ekki til
matarbúrs þjóðarinnar eins og sveitafólkið).
n Höfuðpaurar khmeranna
hafa verið að týna tölunni.
Pol Pot lést í rúmi sínu sama
dag og samþykkt hafði
verið að framselja hann til
alþjóðlegs dómstóls. Félagi
hans úr khmerunum sagði
dánarorsök hans hjartaáfall
en líkið var brennt áður en
rannsaka mætti hvort hann
hefði framið sjálfsmorð.
Fjöldagröf í Kambódíu rotnandi föt og
girðing úr bambus afmarka þessa fjöldagröf
í Choeung Ek-þjóðarmorðsminjasafninu.
margir þeirra sem voru grafnir þar í
ómerktum fjöldagröfum höfðu verið
pyntaðir í toul sleng-fangelsinu.
Hauskúpur fórnarlamba Höfuðkúpum fórnar-
lamba rauðu khmeranna hefur verið safnað saman í
Choeung Ek-þjóðarmorðsminjasafninu fyrir utan
höfuðborgina Phnom Penh. Lík níu þúsund manna,
kvenna og barna sem féllu fyrir hendi rauðu
khmeranna hafa verið grafin upp.