Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Síða 14
Um næstu helgi munu Hafnfirðingar ganga að
kjörborðinu og greiða atkvæði um deiliskipulagstil-
lögu vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Hver
sem niðurstaðan verður felur hún í sér sigur Hafn-
firðinga. Það er vegna þess að kjósendur í Hafnar-
firði hafa fengið að tjá vilja sinn í þessu máli og taka
ákvörðun á eigin forsendum.
Niðurstaðan á sunnudag, hver sem hún verður,
felur líka í sér sigur fyrir Samfylkinguna. Ástæða þess
er sú að Samfylkingin hefur frá upphafi lagt áherslu
á að beita eigi atkvæðagreiðslum meðal almennings
í ríkari mæli, til að fá niðurstöðu í erfið deilumál sem
snerta almenning með beinum hætti. Meiri hluti
jafnaðarmanna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur frá
upphafi fylgt þessari stefnu, þótt aðrir flokkar hafi
sveiflast eins og lauf í vindi tækifærismennsku.
Lýðskrum VG
Ýmsir talsmenn VG hafa undanfarið atyrt forystu
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir að efna til at-
kvæðagreiðslunnar og gert því skóna að sú ákvörðun
stafi af því að meirihluti Samfylkingarinnar í Hafnar-
firði treysti sér ekki til að taka afstöðu til málsins. Fátt
er fjær sanni. Meirihlutinn í Hafnarfirði hefur lagt sig
fram um að gera kröfur á hendur Alcan um öflug-
ar mengunarvarnir vegna fyrirhugaðrar stækkunar
og leitað samstöðu um það við aðra flokka í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar. Allir flokkar – þar á meðal VG
– stóðu því að þeirri deiliskipulagstillögu sem nú er
lögð undir atkvæði bæjarbúa. Bæjarstjórn hefur hins
vegar ekkert vald til að taka ákvarðanir um leyfisveit-
ingar til álvera. Það er samkvæmt landslögum í ann-
arra höndum. Áburður VG í garð Samfylkingarinnar
um undanbrögð eða feluleik eru því ekkert annað en
ómerkilegt lýðskrum.
Að treysta fólki
Það er sérstaklega dapurlegt að sjá talsmenn VG
feta þá leið að hnýta í þá aðferðafræði að mikilvæg
mál séu lögð fyrir atkvæði bæjarbúa. VG hafa reynt,
með ágætum árangri, að láta sparihliðina snúa að
kjósendum undanfarna mánuði. Málflutningur af
þessu tagi sýnir hins vegar það stjórnlyndi og van-
trú á fólki sem eru svo sterkir þræðir í allri hug-
myndafræði og málafylgju VG þegar til kastanna
kemur.
Vonandi verður atkvæðagreiðslan á sunnudag
fyrirmynd um nútímalega stjórnarhætti um land-
ið allt. Það er í höndum Hafnfirðinga að brjóta
í blað í íslenskri stjórnskipunarsögu með glæsi-
legri þátttöku í almennri atkvæðagreiðslu um mik-
ilvægt hagsmunamál. Það væri ekki í fyrsta sinn
sem Hafnfirðingar væru í fararbroddi í nýrri hugs-
un í íslenskum stjórnmálum. Eitt er víst: Samfylk-
ingin treystir Hafnfirðingum enn sem fyrr til stórra
verka.
þriðjudagur 27. mars 200714 Umræða DV
Það var vel til fundið hjá blaðamanni Morgunblaðsins að segja
frá orðavali Sigurðar Tómasar Magnússonar í Baugsmálinu í gær, en
ákærandinn sagði víst að söguþráður vegna ákveðinna lánveitinga
snérist um að afmá fingraför Jóns Ásgeirs Jóhannessonar forstjóra
Baugs af lánveitingunum. Þetta var gott hjá blaðamanninum að gera
nokkuð úr þessum orðum Sigurðar Tómasar.
Ekki er fullyrt hér hvort þetta er rétt kenningin eða ekki. Þaðan
af síður hvort orð ákærandans standast, eða eru bara innihaldslítill
orðaleikur.
Hitt er annað. Ekki hefur enn tekist að afmá fingraför Morgun-
blaðsins af Baugsmálinu þrátt fyrir að að því hafi verið stefnt eins og
ritstjórinn sagði svo ákveðið í einum af tölvupóstunum frægu. Morg-
unblaðið er alltof samofið Baugsmálinu svo hægt sé að lesa blaðið
án fyrirvara. Það lýtur ekki eðli-
legri meðferð fréttamáls. Það hef-
ur komið fram í Morgunblaðinu
að Baugsmálið laut ekki sömu
vinnuaðferðum og almennt gerist
á ritstjórn blaðsins. Morgunblað-
ið hefur sagt frá að einstaka mál
komi ekki til venjulegrar frétta-
meðferðar. Baugsmálið er í þeim
hópi og þar eru líka olíusamráðs-
mál og fleiri stærri mál. Fjölmiðlar sem eru að hluta til í eigu Baugs
hafa vandað sig mun meir og betur og sagt frá Baugsmálinu af meiri
yfirvegun en Morgunblaðið.
Við bætist að ristjóri Morgunblaðsins var beinn þátttakandi í að-
draganda málsins og ritstjórn Morgunblaðsins var notuð til funda-
halda í forleiknum. Þegar allt er virt sést að aðkoma Morgunblaðsins
að Baugsmálinu er með þeim hætti að fingraför blaðsins er á málinu,
þau hafa ekki verið afmáð. Þegar þetta er haft í huga er forsíða Morg-
unblaðsins í dag eftirtektarverð. Blaðamaðurinn sem sat í dómssaln-
um er ekki merktur fréttinni á forsíðunni; þar sem segir í fyrirsögn að
forsvarsmenn Baugs hafi stundað spillingu á hæsta stigi. Það er dóm-
stólanna að kveða á um hvort það er rétt eða ekki; það kemur í ljós
hvort rétt er eða ekki.
Hitt sjá þeir sem vilja að Morgunblaðið er ekki hlutlaust. Morg-
unblaðið er í hópi þeirra sem hófu málið, Morgunblaðið vissi af lög-
regluaðgerðum á frumstigum þeirra, Morgunblaðið hefur upplýst að
Baugsmálið sætir ekki almennum vinnuaðferðum á ritstjórn, Morg-
unblaðið var nýtt í þágu Jóns Geralds Sullenberger, Morgunblaðið
kemur það mikið við sögu Baugsmálsins að fingarför þess má sjá víða
á málinu. Ætlunin um að afmá fingraför mistókst. Það er sem betur fer
sjaldgæft hér á landi að fjölmiðlar taki beinan þátt í að búa til atburða-
rás fréttamála. Aðkoma Morgunblaðsins að Baugsmálinu er sennilega
herfilegasta misnotkun á fjölmiðli sem hér þekkist. Morgunblaðið á
að upplýsa lesendur sína um aðkomu blaðsins að Baugsmálinu. Ekki
láta öðrum fjölmiðlum það eftir.
Sigurjón M. Egilsson
Fingraför
Sigur Hafnfirðinga –
sigur Samfylkingarinnar
Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is
DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem
leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku
eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta
fréttaskot mánaðarins.
512 7070
frettaskot@dv.is
Við bætist að ristjórinn
var beinn þátttakandi í
aðdraganda málsins og
ritstjórn Morgunblaðs-
ins var notuð til fundar-
halda í forleiknum.
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
ÚtgáFuFélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
StjórnarFormaður: Hreinn loftsson FramkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson
FulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
FréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Árni PÁLL ÁrnAson:
lögfræðingur skrifar
„Áburður VG í garð
Samfylkingarinnar
um undanbrögð eða
feluleik eru því ekkert
annað en ómerki-
legt lýðskrum.“
Græni hægri risinn
Fjársterkur stuðningsaðili Ís-
landshreyfingarinnar mun hafa
staðið fyr-
ir því að
Capacent
kannaði á
fimm vikna
tímabili,
hversu marg-
ir kjósendur
gætu hugsað
sér að styðja
hægri-grænt framboð á Íslandi. Í
ljós kom að á bilinu 17 til 25 pró-
sent kjósenda vildu styðja slíkt
framboð. Niðurstaðan mun hafa
haft úrslitaáhrif á þá ákvörðun
Ómars Ragnarssonar og félaga
að bjóða fram til Alþingis. Í ljósi
þessa er fimm prósenta fylgi Ís-
landshreyfingarinnar lítið. Til
samanburðar má nefna að þegar
Jóhanna Sigurðardóttir klauf sig
frá Alþýðuflokknum árið 1995 og
stofnaði Þjóðvaka, mældist hún
með yfir þrjátíu prósenta fylgi
í fyrstu lotu. Það fylgi entist þó
ekki fram að kosningum.
Afskræmdur þjóðsöngur
Eins og fram kom hjá RÚV þá
brutu Spaugstofumenn lög á
laugardag-
inn síðasta
þegar þeir
afskræmdu
þjóðsöng-
in og snéru
honum í háð
gegn áliðju á
Íslandi. Í lög-
um Í um íslenskan þjóðsönginn
kveður skýrt á um að það megi
ekki á nokkurn hátt brengla orð
Matthíasar Jochumssonar en
það varðar refsivist.
Húmorslaus ráðherra?
Það fellur hinsvegar í skaut for-
sætisráðherrans Geirs H. Haar-
de að ákveða hvort þeir
verði ákærðir fyrir lastið
eða ekki. Því má spyrja
sig hvort Geir standi
við landslög og af-
hjúpi húmorsleysi
eða feti hinn örugga
veg fyrir kosningar.
Enda ljóst að Spaug-
stofumenn eru ansi
vel liðnir því lastið birt-
ist í þætti númer 300.
Sandkorn
Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða
Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja
Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús