Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Page 25
DV Sviðsljós þriðjudagur 27. mars 2007 25
Hvor er
flottari
Í tískuheimi stjarnanna er keppst
um að vera í ferskasta og flottasta
tískufatnaðnum. Oft kemur það
fyrir að stjörnurnar velja sömu
flíkina. Spurningin er bara, hvor er
flottari í henni?
Feimin og
vandræðaleg
Leikkonan Carmen Electra segir
að í æsku hafi hún yfirleitt ráðist á
stráka sem henni þótti sætir. Car-
men sem lærði bæði karate og jiu
jitsu á sínum yngri árum segir að
hún hafi verið svo feimin og vand-
ræðaleg í kringum stráka, að hún
hafi brugðið á það ráð að ráðast á
þá. „Ég bara vissi ekki hvernig ég
ætti að koma fram við þá, þetta er
yfirleitt þannig að strákarnir ráð-
ast á stelpurnar, en þeir gátu bara
ekki ráðið við mig,“ segir Carmen,
sem er einhleyp þessa daganna,
en nýlega skildi hún við eigin-
mann sinn Dave Navarro.
Leikstjórinn, handritshöfundur-
inn og leikarinn Quentin Tarantino
segir að sér finnist stundum eins og
hann hafi verið Shakespeare í fyrra
lífi. Quentin segir að hann hafi verið
fæddur til þess að skrifa og finni fyrir
ritþörfinni djúpt í sál sinni. „Auðvit-
að er ég ekkert handviss um að hafa
verið Shakespeare, mér er eiginlega
alveg sama um hann, hef aldrei ver-
ið mikið fyrir verk hans. En hinsveg-
ar er fólk sífellt að líkja mér við hann.
Það segir að í verkum mínum megi
finna aðstæður, harmleiki og þemu
sem eigi sér hliðstæðu í verkum
hans,“ segir leikstjórinn. Sérstaklega
man hann þó eftir því þegar hann
hitti leikarahóp kvikmyndarinnar
Reservoir Dogs í fyrsta skipti. „Þetta
var atriðið þar sem Tim Roth er
kennt að vera leynilögga. Þegar leik-
ararnir voru búnir að lesa handritið
sagði Harvey Keitel við mig að þetta
væri næstum orðrétt uppúr Hamlet
og að ég hafi einungis útfært textann
á mannamáli. Ég kannaðist auðvit-
að ekkert við það,“ segir Tarantino,
en finnst auðvitað hálf aulalegt að
vera líkja sér við breska leikskáldið.
Shakespeare er þó ekki sá eini sem
Tarantino telur sig hafa verið í fyrra
lífi, en honum þykir ekki ólíklegt að
hafa verið bæði svartur þræll í Amer-
íku og japanskur herramaður.
Dó úr of stór-
um skammti
Eftir miklar
vangaveltur,
bollaleggingar
og samsæris-
kenningar er
ljóst að fyrrver-
andi fyrirsætan
Anna Nicole
Smith lést
úr of stórum
skammti fíkni-
efna. Krufn-
ingsskýrsla
Önnu Nicole
var gerð kunn
í gær og er því
endanleg dán-
arorsök ljós.
Þetta staðfesti
Charlie Tig-
er, yfirmaður
lögreglunnar
í Seminole. „Við erum alveg vissir
um að ekkert annað glæpsamlegt
átti sér stað þarna,“ segir lögreglu-
fulltrúinn og bætir við að eng-
in ólögleg fíkniefni hafi fundist á
staðnum.
Lindsay eða Cameron
Cameron diaz skartaði þessum stutta
og glæsilega Chanel kjól þegar hún
var að kynna myndina Holiday fyrir
nokkrum mánuðum en Lindsay
Lohan sást í honum á djamminu í
new york fyrir stuttu.
Leikkonan reese Witherspoon hefur tekið útlitið í gegn eftir að
hún skildi við Íslandsvininn ryan Phillippe. Reese ákvað að
hreinsa út úr fataskápnum því að nýtt útlit hentar nýju lífi. Þessar
stórglæsilegu myndir voru teknar af henni fyrir stuttu þegar hún
var í viðtali við Bazaar-tímaritið. Reese hefur aldrei litið betur út
og er klárlega ein heitasta einhleypa leikkonan í Hollywood í dag.
CHristina eða Fergie
Fergie var fyrri til og skartaði
þessum dolce & gabbana-kjól á
tónlistarhátíð í Frakklandi en
Christina aquilera klæddist honum í
Las Vegas ekki alls fyrir löngu.
sVetLana eða naomi
Leikkonan svetlana metkina var í
þessum glæsilega silvraða kjól frá
Versace á golden globe-verðlaun-
um en naomi Campbell klæddist
honum vikum seinna á Walk of
style-verðlaunahátíðinni.
Joss eða miCHeLLe
söngkonan Joss stone skartaði
þessum silfraða Catherine
malandrino-kjól á tónleikum en
fyrrum Buffy the Vampire slayer-
stjarnan michelle trachtenberg
mætti í sínum í partí í miami.
Með brotna tönn
Söngkonan Britney Spears þurfti
að fara með hraði til tannlækn-
is í gær, en í henni hafði brotn-
að tönn. Eins og þekkt er kom
Britney úr meðferð fyrir helg-
ina og kvartaði hún víst sáran
vegna þess að geta ekki fengið sér
verkjalyf, en tannbrotið var víst
afar sársaukafullt. Ekki er enn
ljóst hvað kom fyrir, en Britney
brosti breitt til þeirra ljósmynd-
ara sem biðu eftir henni fyrir
utan tannlæknastofuna.
Quentin tarantino
segir að í verkum sínum
megi finna skáldskap
sem á sér hliðstæður í
shakespeare, alveg óvart.
Shakespear
endurfæddur?
Quentin tarantino gæti hafa verið shakespeare í fyrralífi:
góð vinkona reese vakti
mikla lukku í vinahópnum
þegar hún gaf alla skóna sína
nýtt útlit, nýtt líf reese
hreinsaði nýverið út úr
fataskápnum sínum
gullfalleg reese hefur
aldrei litið betur út
olivier theyskens sér um
tískuna reese leitaði til
Olivier til að gefa sér tískuráð
og vinnur ekki með neinum
öðrum hönnuði í staðinn
„Þetta er
alls ekki ég.
Hvað var ég
að hugsa“
sagði reese
þegar hún
leit yfir gömlu
fötin sín og
sér ekki eftir
neinu
Nýtt útlit fyrir nýtt líf