Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Blaðsíða 16
miðvikudagur 28. mars 200716 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR Barcelona gætu fengið roBBen ódýrt Barcelona gætu fengið arjen robben leikmann Chelsea afar ódýrt. Chelsea vill fá um 20 miljónir evra, um tvo og hálfan milljarð króna fyrir kappan en samkvæmt nýju reglum FiFa, þar sem leikmaður er hefur verið þrjú ár hjá sama liðinu og er undir 28 ára, getur robben farið fram á 6 milljónir evra, eða rétt um milljarð. Það eina sem Börsungar þurfa að gera í sumar er að borga samning robben en tvö ár eru eftir af núverandi samningi við Englandsmeistarana. given með alltof marga landsleiki roy keane, stjóri sunderland og fyrverandi hetja man utd og Írska landsliðsins, segir í viðtali við The sun að shay given landsliðsmarkvörður Íra hafi leikið alltof marga landsleiki. keane vill meina að given hafi ekki verðskuldað byrjunarliðssæti í hverjum einasta landsleik sem Írar hafi spilað. given verður leikjahæsti Írinn í kvöld spili hann á móti slóvakíu. fjórir sigar duga alan Pardew stjóri Charlton segir að fjórir sigrar muni tryggja Charlton áfram meðal þeirra bestu í Englandi. Charlton á átta leiki eftir í deildinni og mætir Wigan um helgina í sannkölluðum sex stiga leik. „Eftir landsleikjahlé verða sex leikir á 29 dögum. Þetta verður okkar tímabil. Í síðustu þremur leikjum höfum náð í sjö stig af níu mögulegum og lítum vel út,“ sagði Pardew. morten olsen ósáttur við þjóðverja Landsliðsþjálfari dana morten Olsen er afar ósáttur við kollega sinn hjá Þýskalandi Joachim Loew fyrir að stilla upp varaliði í kvöld. Liðin mætast í æfingaleik og sendi Loew átta sterka leikmenn heim og tók nýja og óreynda leikmenn inn í staðinn. „Það var samkomulag að þeir myndu spila með sitt sterkasta lið. Ég er líka með menn sem eru að spila í meistaradeild Evrópu. Hvernig á ég að útskýra þetta fyrir mínum leikmönnum? Loew hefði átt að hringja í mig,“ sagði ósáttur morten Olsen í gær. Philipp Lahm, Bastian schweinsteiger, Lukas Podolski, Torsten Frings, Bernd schneider, Per mertesacker, Jens Lehmann auk fyrirliðans michael Ballack voru sendir heim. Þjóðverjar hafa ekki enn tapað undir stjórn Loew. mcclaren í enn meiri vandræðum steve mcClaren landsliðsþjálfari á ekki sjö dagana sæla. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur að undanförnu og nú hefur uEFa staðfest að hann verði sektaður fyrir að láta ekki sjá sig á blaðamanna- fundi fyrir leikinn gegn andorra. mcClaren hélt óvæntan og óboðaðan fund á mánudag en lét ekki sjá sig í gær eins og reglur uEFa gera ráð fyrir. Hann hefur verið reglulega á síðum blaðanna, eftir leikinn við Ísrael, þar sem meint rifrildi hans og Wayne rooney eru helstu fyrirsagnirnar. Svíar óttast David Healy Norður-Írar taka á móti Svíum í kvöld en þessar þjóðir eru í sama riðli og við Íslendingar í undan- keppni EM. Um er að ræða tvö efstu lið F-riðils, Svíar eru með tólf stig í efsta sæti og Norður-Írar eru með tíu stig í öðru sæti. Lars Lagerbäck, þjálfari Svía, seg- ist óttast David Healy, sóknarmann Leeds og norður-írska landsliðsins. „Healy er stanslaust á hlaupum og skýtur við hvert tækifæri. Hann er mjög duglegur. Ef þeir geta munu Norður-Írar reyna að koma boltan- um beint til hans. Það er mikilvægt að Olaf [Mellberg] og strákarnir hafi góðar gætur á honum og hleypi hon- um ekki inn fyrir vörnina. Þeir hafa verið góðir að halda fljótum leik- mönnum niður,“ sagði Lagerbäck. David Healy skoraði þrennu í síðasta leik Norður-Íra, gegn Liecht- enstein, og hefur skorað 27 mörk í 55 landsleikjum. Zlatan Ibrahimovic er kominn í sænska landsliðið á nýjan leik. Ibrahimovic var rekinn úr sænska landsliðinu eftir að hafa brotið úti- vistareglur liðsins fyrir leik Svía og Liechtensteina í september. Ibrahimovic segist þó ekkert hafa gert rangt en bætti því við að hann beri engan kala til landsliðsþjálfar- ans og að hann sé einbeittur fyrir leikinn gegn Norður-Írum. „Ég tel að ég hafi ekki gert neitt rangt og ég er bara ánægður að vera kominn í landsliðið að nýju. Við erum búnir að horfa á myndband af Norður-Írum og þeir virðast vera með mjög gott lið,“ segir Ibrahimov- ic eftir endurkomuna í landsliðið. Þeir eru nú þegar búnir að vinna Spánverja og við vitum að þetta verður erfiður leikur. Við þurfum að líta á liðið í heild sinni en við vitum að David Healy, sem skoraði þrennu um helgina, er í góðu formi þessa dagana,“ sagði Ibrahimovic. Norður-Írar hafa komið mörgum á óvart til þessa og Lawrie Sanchez, þjálfari þeirra, dreymir um að kom- ast með landsliðið í lokakeppni EM. „Draumurinn er á lífi. Nú eru væntingarnar aðrar en fyrir þrem- ur árum. Við eigum möguleika á að stöðva Svía, sem eru með góða stöðu í riðlinum. Það væri frábært að fá eitthvað út úr þessum leik.“ dagur@dv.is Norður-Írar og Svíar, tvö efstu lið F-riðils, mætast á Windsor Park í Norður-Írlandi: tvær þrennur david Healy hefur skorað tvær þrennur í undankeppninni, gegn spánverjum og Liechtensteinum. Snæfell jafnaði metin gegn KR með ótrúlegum lokakafla í leik liðanna í gær. martin thuesen var hetja liðsins og skoraði sigurkörfuna þremur sekúndum fyrir leikslok. Thuesen hetja Snæfells Snæfell lék aðeins einn góðan leikhluta þegar liðin mættust síðast- liðin sunnudag. Það var því að duga eða drepast fyrir þá því sagan hefur ekki verið hliðholl liðum sem lent hafa 2-0 undir. Heimamenn buðu uppá glæsi- lega sýningu fyrir leik þar sem skop- myndir af leikmönnum var varp- að uppá vegg. Fyrsti leikhlutinn var jafn og lítið sem skildi liðin að. Snæ- fell komst í 11-6 snemma leiks og voru að taka mörg sóknarfráköst. Sóknarleikur KR síðustu mínút- ur fyrsta leikhlutans var slakur og heimamenn leiddu eftir fyrsta leik- hlutann með 10 stigum 21-11. KR-ingar byrjuu annan leikhlut- ann af krafti og byrjuðu að saxa á forskot heimamanna. Þeir skoruðu 10 stig í röð og jöfnuðu leikinn með fínni baráttu og vörn. Tyson Patter- son leikmaður KR var arkitektinn að endurkomu gestanna og mataði fé- laga sína með góðum sendingum. Þeir komust yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik 29-30 með körfu frá Darra Hilmarssyni. Barátta leikmanna undir körfunni var til fyr- irmyndar og lítið gefið eftir á þeim vígstöðum. Áfram var leikurinn jafn og ekki mikið sem skildi liðin að. Staðan þegar gengið var til búnings- herbergja var jöfn 41-41. Munurinn var áfram lítill, þetta tvö til fimm stig, en þó var varnar- leikur heimamanna slakur. Hvað eftir annað var misskilningur á milli manna og KR-ingar einfaldlega að spila betri leik og náðu að komast 7 stigum yfir fyrir lokafjórðunginn 66-59. Varnarleikur heimamanna var ekki nægilega góður í upphafi fjórða leikhlutans og menn ekki að standa sína plikt. Þó gekk sóknarleikurinn vel og munurinn hélst í fimm til sjö stigum sem er lítið í körfubolta eins og sannaðist. ótrúlegur lokakafli Skömmu fyrir leikslok var stað- an 76-67 fyrir KR. En þá hófst ótrú- legur kafli í leiknum og leikmenn og áhorfendur að fara á límingunum. Í stöðunni 78-76 fyrir KR og innan við tvær mínútur eftir, fékk Sigurður Þorvaldsson tvö vítaskot sem hann hitti ekki úr og héldu margir ef ekki flestir að leikurinn væri unninn fyr- ir KR. Snæfell neitaði þó að gefast upp og minnkuðu munin jafnt og þétt og KR-ingar virkuðu hugmyndalaus- ir. Justin Shouse minnkaði muninn niður í eitt stig fyrir heimamenn, 83-82 og þakið hreinlega að fara af þakinu. Fannar Ólafsson hitti ekki úr næstu sókn KR, en Jón Jónsson átti skelfilega sendingu 30 sekúndum fyrir leikslok fyrir Snæfell og KR hafði örlögin í hendi sér. Þeir klúðruðu hins vegar sinni sókn, misstu boltann útaf sem var dæmdur til Snæfells við litla hrifn- ingu KR-inga sem töldu að boltinn hefði farið í einn Snæfelling. Heimamenn hófu sókn og þrem- ur sekúndum fyrir leikslok, skoraði Martin Thuesen þriggja stiga körfu 85-83 og voru þetta hans fyrstu stig í leiknum. Benedikt Guðmundsson þjálfari KR tók leikhlé og lagði fyrir sína menn að reyna að vinna leik- inn. Pálmi Sigurgeirsson tók loka- skotið sem dansaði af körfuhring- num og staðan í einvíginu því orðin jöfn 1-1. Liðin mætast aftur Í DHL- höll Kr-inga á laugardag. Justin Shouse var stigahæstur heimamanna með 21 stig, Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvalds- son komu næstir með 16. Hjá KR var Tyson Patterson atkvæðamestur með 15 stig en Skarphéðinn Inga- son bætti 14 stigum við. þetta var ótrúlegt „Þetta var ótrúlegt miðað við hvað við vorum ótrúlega lélegir á köflum,“ sagði Hlynur Bæringsson í viðtali við Arnar Björnsson á Sýn eftir leikinn. „Ég hefði treyst flestum uppí stúku til að setja niður skot sem ég og aðrir vorum ekki að hitta úr. Vörnin var á tímabili rugl, eins og við töluðum ekki sama tungumálið. En við breyttum henni undir restina og náðum að koma til baka. Við stefnum að taka þetta 3-1, töpum með tveimur stigum í Vest- urbænum með því að spila öm- urlega þannig við hljótum að geta spilað sæmilega og unnið þar,“ sagði Hlynur. Ég hefði hitt „Maður er algjörlega orðlaus,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálf- ari KR í viðtali við Arnar Björnsson á Sýn. „Okkur vantar kannski einhvern sem getur tekið á skarið í sókninni þegar mikið liggur en varnarlega vorum við að gera fáránleg mis- tök. Við áttum að taka þennan leik fannst mér.“ Arnar spurði Benedikt út í loka- skotið hjá dananum Thuesen. „Ég hefði hitt þessu ef ég hefði staðið þarna svona galopinn. Hver sem er hefði hitt. Stríðið heldur áfram, við verðum bara halda áfram og við ætlum okk- ur að taka næsta leik.“ benni@dv.is Hetjan martin Thuesen er hér að klappa eftir leik. 16 stig sigurður Þorvaldsson barðist allan leikinn. mynd: sTykkisHOLmsPOsTurinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.