Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Blaðsíða 22
miðvikudagur 28. mars 200722 Lífsstíll DV LífsstíLL Byrjendanámskeið í hollustu Himnesk hollusta stendur fyrir byrjendanámskeiði á mánudag þar sem sólveig Eiríkdóttir kennir þáttakendum að útbúa ein- falda, fljótlega og holla grænmetis- og baunarétti, sem og ljúf- fenga eftirrétti. Námskeiðið kostar 4500 kr og fylgir því máltíð og uppskriftamappa. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni himn- eskt.is Eftirsótt kaffi úr kattarskít heitt og kalt ribena sólberjasafinn er alveg ómissandi í eldhússkápinn. með því að blanda honum út í ískalt vatn fæst frábær svaladrykkur. safinn er ekki síðri ef hann er blandaður út í heitt vatn en þannig fæst rjúkandi góður drykkur. Flaska af ribena er því kjörin í ferðalagið þar sem hún bæði svalar og gefur hita í kroppinn. safinn er líka uppfullur af c-vitamíni og sykurlaus. heilsuráð mcdonalds Á heimasíðu skyndibitakeðjunnar mcdonalds gefur einkaþjálfarinn Bob green viðskiptavinum góð ráð að réttu matarræði. Ekkert er þar talað um að sleppa mat frá mcdon- ald heldur gefin ráð eins og ekki að borða fyrir framan sjónvarpið og ekki borða þremur tímum fyrir svefn. Einnig er hvatt til hreyfingar á borð við hjólreiðar, sundferðir og línuskautatúra. rusl í eldhúsinu Á mörgum heimilum er eldhúsið sá staður sem drasl safnast saman. Eina ráðið við þessu er að vera harður við sjálfan sig og setja sér reglur á borð við þær að vaska alltaf upp eftir hvern einasta málsverð - alveg sama hversu spennandi efni er í sjónvarp- inu. Einnig er tilvalið að taka öðru hvoru til í eldhússkápunum. Þar leynast oft allskonar box og eldhúsáhöld sem aldrei eru notuð og taka bara pláss frá hlutum sem annars ættu að vera í skápnum. Kattarkaffi er ein verðmætasta og sjaldgæfasta kaffitegundin í heiminum í dag. Tuttugu kíló af þessum eðaldrykk komu til landsins í síðustu viku á vegum Te og kaffi. Einn þriðji af því var drukkinn upp um helgina svo nú fer hver að verða síðastur vilji hann bragða á dásemdunum. Ástæða þess að Luwak kattarkaff- ið er ein verðmætasta og sjaldgæf- asta kaffitegund í heiminum í dag liggur í framleiðsluferlinu. Þar koma Luwak þefkettir mikið við sögu en vinnslustigið hefst á því að kettirnir finna þroskuð kaffiber á kaffirunn- um til að gæða sér á. Inn í berjun- um er að finna kaffibaunir sem skila sér í heilu lagi í gegnum meltingar- veg dýranna og þeim er svo safnað saman af heimamönnum í Indónes- íu, þaðan sem kaffið kemur. „Salan fór alveg ljómandi vel af stað um helgina og nú þegar er einn þriðji af birgðunum seldur,“segir Laufey Sigurðardóttir hjá Te og kaffi. Aðspurð að því hvort fólk veigri sér ekkert við því að drekka kaffi sem í raun er unnið úr kattarskít bendir hún á að hýði umlyki baunirnar sem síðan er tekið af þannig að baunirn- ar sjálfar eru aldrei í beinni snert- ingu við meltingarveg kattarins. Baunirnar fara þar að auki í gegn- um öflugt hreinsikerfi og eru ristað- ar við 200 gráður. Gaman er líka að geta þess að mælingar sýna að Luw- ak kaffi er hreinna og ómengaðra en sú vara sem fæst með „hefðbundn- ari“ framleiðsluaðferðum. Þetta óhefðbundna framleiðslu- ferli hefur líka áhrif á bragðgæð- in því við meltingu dýrsins komast baunirnar í snertingu við ýmis en- sím sem brjóta niður þau prótein sem valda beiskjunni sem menn þekkja í mörgum öðrum kaffiteg- undum. Einnig skiptir máli að Luw- ak kötturinn velur sér eingöngu girnilegustu ber kaffirunnans, það er að segja þau sem eru hárrétt þroskuð. Kötturinn er því nákvæm- ari í tínslunni en venjulegur kaffi- bóndi. „Þetta kaffi er ekki svona dýrt af því að það sé endilega besta kaffið á markaðnum heldur er það vegna framleiðsluferilsins og hversu sjald- gæft það er. Íslendingar hafa nú einstakt tækifæri til þess að smakka þetta sérstaka kaffi sem gríðarleg eftir- spurn er eftir og alls óvíst að við fáum aftur,“ segir Halldór Guð- mundsson, brennslumeistari Te og kaffi. Að hans sögn smakkast kaffið mjög vel. Það hafi góða fyllingu, sé milt en á sama tíma kröftugt og laust við alla beiskju. „Það er gríðarleg eftirspurn eftir þessu kaffi og það er selt á mjög fáum stöðum í heiminum. Sem dæmi má nefna að á kaffihúsi í Ástralíu er ver- ið að selja bollann á 50 dollara,“ seg- ir Halldór og bendir á að þetta kaffi fari aldrei í neina fjöldaframleiðslu þar sem það séu kettirnir sem í raun týni kaffbaunirnar. Í dag er fram- leiðslan aðeins 200 kíló á ári. Te og kaffi fékk sendingu upp á 20 kíló af kaffinu en markaðsverð kílósins er allt að 1.200 dollarar eða um 80.000 íslenskar krónur. Á Íslandi kostar bollinn 690 krón- ur og 100 gramma kaffipakki er seld- ur 3.990 krónur. Allur ágóði af sölu kaffisins rennur til Umhyggju, félags langveikra barna, en kaffið er ein- ungis fáanlegt á eftirtöldum kaffi- húsum Te og kaffi: í verslun Saltfé- lagsins við Grandagarð, í verslun Eymundsson í Austurstræti, í kaffi- húsinu Smáralind, í Griffli Skeifunni og hjá SÁÁ í Efstaleiti. snaefridur@dv..is Nýtt vikublað, Coffee News, hef- ur bæst á íslenskan fjölmiðlamark- að. Um er að ræða einblöðung sem dreift er vikulega á kaffihús, skyndi- bita- og veitingastaði og býðst þar gestum frítt til aflestrar. Blað þetta sem er nærri 20 ára gamalt kem- ur út víðsvegar um heiminn, bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og í Afríku og er án efa vinsælasta kaffihúsablað heims. Innihald og útlit þess er all- staðar eins - eina sem er öðruvísi á milli landa er tungumálið og auglýs- ingarnar. Að sögn Kára Sigurfinns- sonar sem sér um íslensku útgáfuna hefur hinum þrem- ur tölublöðum sem nú þegar eru komin út ver- ið vel tekið á Íslandi. Fólk taki blaðið með sér heim eða lesi það á staðnum. Upphaflega hugmyndin að blaðinu kemur frá Kan- ada en þar sá stofnandinn tækfæri í þeirri staðreynd að fólk innbyrðir meira auglýsingamagn áður eða á meðan það snæðir. Auk auglýsinga er efni blaðsins á léttu nótunum og þannig fær fólki eitthvað skemmtilegt og auðmelt að lesa með kaffinu eða á meðan það bíður eftir því að fá þjónustu á veitingarhúsum. Í blaðinu er til dæmis að finna skondnar tilvitnanir, stjörnu- spá og ýmsan skemmtilegan fróðleik. Að ógleymdri su- doku þraut sem tilvalið er að leysa yfir kaffibollan- um. Vinsælasta kaffihúsablað heims Coffee news komið út á íslensku Léttmeti með kaffinu Coffee News er dreift á kaffihús og veitingarstaði. Það er einungis fáanlegt í reykjavík eins og er. Pestófiskur Fljótlegt og gott í kvöldmatinn Fiskur pestó (rautt) steinselja ostur Klippiðeðaskeriðsteinseljunasmátt. Skeriðfiskinníbitaogsetjiðíeldfast mót.Dreifiðsteinseljunni,pestóinuog ostinum(rifnumeðasneiddum)ofaná fiskinn.Setiðí180°Cheitanofnog bakiðí12-15mínútur. Lúxuskaffi allur ágóði af kattarkaffinu rennur til umhyggju. Það fæst meðal annars hjá griffli í skeifunni sem er nýjasti kaffibar Te og kaffi, og opnar dyrnar klukkan 7.30 á morgnana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.