Læknablaðið - 15.06.1985, Qupperneq 31
LÆKNABLAÐIÐ 1985;71:175-7
175
J. Matthías Kjeld, Þórarinn Ólafsson, Jón Eldon
KALSÍUM, MAGNESÍUM OG FOSFÓR í ÞVAGI
INNGANGUR
Engar tölur hafa verið birtar um þvagútskiln-
að á kalsíum (Ca), magnesíum (Mg) og
ólífrænum fosfór (P^) í íslendingum. Frásog
og útskilnaður þessara efna stjórnast m.a. af
fæðu, sól og öðrum venju- og umhverfis-
bundnum þáttum, t.d. hreyfingu (1) og
líkamsþyngd (2, 3). Hugsanlega kynnu erfðir
að hafa einhver áhrif.
Ákveðið var að kanna þvagútskilnað
framangreindra efna hérlendis með því að
mæla þau hjá 31 einstaklingi og fá þannig
fram grófan samanþurð við aðrar þjóðir.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Tveir hópar fengust til þátttöku.
1) Þrettán sjálfboðaliðar meðal starfsfólks
Landspítalans og utan hans á aldrinum 28-
46 ára.
2) Átjánsjúklingaráaldrinum 16-74ára, sem
vistaðir voru á lýtalækninga- eða bækl-
unardeild Landspítalans og ekki voru
haldnir neinum kerfissjúkdómum, höfðu
fulla fótavist og voru án lyfja. Sjúklingar
þessir höfðu verið kallaðir inn til ein-
faldra, valdra aðgerða.
Þvagsöfnun fór fram í mars og apríl ýmist
fyrir aðgerð eða 2-3 vikum eftir aðgerð og
voru sjúklingarnir þá á venjulegu fæði.
Þvaginu var safnað í plastbrúsa, sem í höfðu
verið settir 50 ml af 2N saltsýru. Þvagmagn
var mælt eftir söfnun, en 20 ml geymdir við
— 20° C, uns mæling fór fram. En þá voru
sýnin hituð við 60-70° C í a. m.k. 40 mínútur
og hrist af og til áður en mæling hófst. Mg og
Pi söltin reyndust torleystari en Ca söltin.
Ca og Mg voru mæld með eindargleypnis-
mæli (atomic absorption spectrometer), Per-
kin-elmer, model 305B. Staðlar voru frá
Merck, Darmstadt (Titrisol, VM). »Sero-
Frá Rannsóknadeild Landspítalans, SvæFingadeild Landspítal-
ans og Tilraunastöð Háskólans að Keldum. Barst ritstjóm
10/02/1984. Samþykkt til birtingar 12/04/1985.
norm« (gæðastýringarsýni frá Nygaars A/S,
Oslo) var notað til viðmiðunar og bar mæl-
ingum okkar vel saman við uppgefin »Sero-
norm«-gildi (Ca uppgefið 2.75, mælt 2.62
mmol/1, Mg uppgefið 0.96, mælt 0.95
mmol/1). Ómarkvísi (imprecision = coeffici-
ent of variation (CV) endurtekinna mælinga á
sama sýni) aðferðanna mældist 5.18% fyrir
Ca og 1.37% fyrir Mg.
Ólífrænn fosfór (Pj) var mældur með
aðferð Daly og Ertingshausen (4) á Multistat
III, centrifugal analyzer frá Instrumentation
Laboratories. Staðallausnir voru heimatil-
búnar. Til gæðastýringar var notað »Preci-
path U« (Boehringer Mannheim), uppgefin
gildi 1.43, mæld gildi 1,53 mmol/1. Ómarkvísi
(imprecision) aðferðarinnar var 3.4% þegar
sama sýni var mælt 12 sinnum í jafnmörgum
lotum.
Kreatínín var mælt á autoanalyzer (Techni-
con) með Jaffe-aðferð (alkaline picrate).
Staðallausnir af kreatíníni voru heimatil-
búnar og ómarkvísi mælingarinnar 5.1%.
NIÐURSTÖÐUR
I Töflu I eru sýndar niðurstöður Ca, Mg, P, og
kreatinin-mælinganna hjá körlum og konum.
Að jafnaði skilja karlar meira út í þvagi af
þessum efnum heldur en konur, en sá munur
hverfur, þegar miðað er við kreatínínútskiln-
að. Tafla II sýnir samanburð á útskilnaði Ca
Table I. Twenty four hours urinary excretion (mmois
x± ISD) ofcalcium, magnesium andinorganicPhospho-
rus in Icelandic men (15) and women (16).
Men N= 15 Women N= 16
Calcium 4.6 ±1.6 3.4±2.2
Magnesium 5.6± 1.8 4.9±2.0
Phosphorus inorg 32.0±8.7 23.3±8.4
Creatinine 15.3 ±2.6 10.7 ±1.6
Ca/Creatinine 0.31 ±0.14 0.31 ±0.18
Mg/Creatinine 0.45 ±0.27 0.42 ±0.21
P/Creatine 2.15±0.76 2.10±0.73