Læknablaðið - 15.06.1985, Page 47
LÆKNABLAÐIÐ
185
þessu svæði og var það allt mjög mengað
gæsaskít. Reyndar höfðu tveir fyrstu sjúk-
lingarnir, sem veiktust í byrjun júní, báðir
haft umtalsverð tengsl við gæsir í eldisstöð og
væntanlega sýkst af þeim. Að öðru leyti höfðu
sjúklingarnir ekki nein tengsl við gæsir um-
fram aðra bæjarbúa.
l.MRÆÐA
Lítill vafi leikur á, að Campylobacter jejuni
olli umræddum faraldri. Bakterían ræktaðist
frá gæsum, sem aðgang höfðu að vatnsbólinu
og frá læk, sem þær höfðu einnig mengað.
Einkenni sjúklinganna voru mjög dæmigerð
fyrir þann sjúkdóm, sem hún veldur og
Campylobacter ræktaðist úr hægðasýnum
frá fjórum þeirra sex sjúklinga, sem rann-
sakaðir voru.
Það er athyglisvert hve fá sýni voru send til
ræktunar, því miður virðast íslenskir læknar
ekki leggja mikla áherslu á saurræktanir við
greiningu á niðurgangi. Á þetta bæði við um
lækna í þéttbýli, en ekki síst úti á landi þaðan
sem sendingar saursýna eru erfiðari viðfangs
og kosta meira umstang. Starfsfólk á heilsu-
gæslustöðinni á Stöðvarfirði tók einnig eftir
mjög eindreginni andstöðu sjúklinga gegn
því, að skila saursýnum. Virðist þurfa að
upplýsa fólk betur um mikilvægi saurræktana
við greiningu iðrasýkinga.
Campylobacter jejuni finnst í mörgum
dýrategundum og mörg dýranna geta gengið
með bakteríuna langtímum saman án nokk-
urra sj úkdómsteikna (4). Þau dýr, sem sérstak-
lega hafa verið nefnd í þessu sambandi, eru
hænsni, endur, gæsir og sauðfé. Sjaldnar
finnst bakterían í nautgripum, hundum og
geitum (5). Víðast hefur C. jejuni reynst vera
sýnu algengari í dýrum, en t.d. Salmonella.
Því er brýnt, að allir geri sér grein fyrir þessum
dýrategundum og þá einkum gæsum, öndum
og sjúklingum. Líklegt verður að telja að
alifuglar séu oft mengaðir C. jejuni þegar
kemur á neytendamarkað. Ólíklegt er, að
Campylobacter lifi af matreiðslu, en vegna
mengunarhættu er nauðsynlegt að auka al-
menningsfræðslu um matareitranir, sem af
slíkri mengun geta hlotist.
Sýkingar af völdum afurða af þessu tagi eru
þó líklega ekki algengar og oftast staðbundn-
ar. Öðru máli gegnir ef vatnsból mengast af
bakteríum, eins og Campylobacter, sem allt
bendir til að gerst hafi á Stöðvarfirði. Far-
aldrar, sem af slíku hljótast geta orðið mjög
stórir og komið snögglega (6). Sem betur fór
hlaust ekki umtalsverður skaði af umræddum
faraldri, þótt vinnutap hafi orðið nokkuð og
margir hafi orðið fyrir umtalsverðum óþæg-
indum. Verr hefði getað farið ef ekki hefði
verið brugðið fljótt og skynsamlega við.
Undirstrikar þetta nauðsyn þess að umgang-
ast vatnsból af mikilli var kárni til þess að slys
af þessu tagi endurtaki sig ekki. Reikna verður
með að aligæsir beri að staðaldri C. jejuni og
ef til vill fleiri bakteríur, sem geta valdið
iðrasýkingum og geta þessar bakteríur lifað í
gæsaskít í nokkurn tíma. Mest er hættan, að
sjálfsögðu, ef yfirborðsvatn er notað til
neyslu. Reikna má með að margir staðir á
landinu búi við slík skilyrði, að þessi hætta sé
fyrir hendi og gera þurfi ráðstafanir til að
verja vatnsból fyrir ágangi, ekki einungis
sauðfjár, heldur einnig fugla. Ef neysluvatns-
ból er óyfirbyggt, er hættan að sjálfsögðu
margföld af völdum fugla og þá sér í lagi
máva, sem vitað er að borið geta hættulegar
bakteríur (7).
Campylobacteriosis er algengasta orsök
iðrasýkinga af völdum baktería í flestum
nágrannalöndum okkar, þó svo virðist ekki
vera á íslandi (8). Hér á landi greinast mun
fleiri Salmonella- en Campylobactertilfelli. Á-
stæður þessa eru óljósar, en vera kann að um
áhrif loftslags sé að ræða, engu að síður er það
staðreynd, að C. jejuni virðist vera útbreidd á
íslandi og full þörf virðist vera á að menn geri
sér grein fyrir þeim hættum, sem fylgja
mengun af hennar hálfu. Áður hefur verið lýst
tíðni Campylobacteriosis á íslandi og einkenn-
um sjúkdómsins (8).
Einkenni sjúklinganna á Stöðvarfirði
koma vel heim við sjúkdóminn, þótt flestar
sýkingarnar hafi verið tiltölulega vægar.
Campylobacteriosis gengur oft yfir án
meðferðar á nokkrum dögum, en margir
mæla með eryþrómýsín-meðferð í nokkra
daga til þess að stilla veikindin og til þess að
minnka líkur á smitun til annarra. Ekki er
algengt, að smit berist beint frá manni til
manns, en í hverjum faraldri eru einhver slík
tilfelli og einkum eru bleyjubörn líkleg til að
smita út frá sér.
Eins og áður sagði, greindust engin ný
sjúkdómstilfelli, eftir að hætt var að veita
Sellæk inn á neysluvatnskerfi bæjarbúa og
aligæsir höfðu verið reknar af vatnsbóls-