Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 251 Skýrsla um rannsóknir á taugaveiki í Flatey á Skjálfanda sumarið 1936. Eftir Björn Sigurðsson, cand. med. & chir. Flatey á Skjálfanda hefir verið alræmt taugaveikisbæli nri um nokk- urra ára skeið. Taugaveikin hefir sýkt fjölda fólks í eynni, og þótt hún hafi ekki verið sérlega mannskæð, hefir hún verið þar hreinasta land- plága. Veikin hefir, vegna smitunarhættunnar, bakað eyjarskeggjum mikil og margvísleg óþægindi og tjón. Fólk í landi var farið að forð- ast allan umgang við Flateyinga af ótta við smitun. Undanfarið hefir kveðið sérstaklega rammt að þessu, jafnvel svo að sjófarendur hafa ekki viljað hafa nein skipti af eyjarskeggjum. Áður fengu þeir oft vatn í eynni og áttu þar þá jafnframt ýms fleiri viðskipti. Nú fékkst einnig miklu síður verkafólk úr landi, en það hefir alltaf tíðkazt og er eyjarbúum hin mesta nauðsyn. Ýms fleiri óþægindi stöfuðu Flat- eyingum af því orði, er á þeim lá, t. d. var þeim þess vegna mjög erfitt um ýmsa afurðasölu. Læknissókn er mjög erfið. Áður sóttu menn lækni til Grenivíkur, sem er við miðjan Eyjafjörð, austanverðan. Nú er læknir sóttur til Húsavíkur. Það er nokkru þægilegra, en þó er þangað hér um hil þriggja tíma ferð á vélbát og sjór oft afar slæmur. í Flatey eru rúmlega 100 íbúar, og skiptast þeir á 13 bæi. Síðastliðið siunar fór ég til Flateyjar eftir tilmælum landlæknis, til þess að gera tilraun til að komast fyrir, hvernig stæði á taugaveikis- faröldrunum þar. Rannsóknarstofa Háskólans lét mér í té nauðsynleg- an útbúnað til rannsóknanna. I eynni dvaldi ég svo rúman hálfan mánuð. Ég tók skýrslu af hverj- um eyjarhúa fyrir sig, eftir á gat ég, út frá því, rakið nokkurnveginn ábyggilega gang allra faraldranna. Við það urðu óhjákvæmilega nokkrir einstaklingar sérstaklega grunsamir sem smitherar. Frá þeim reyndi ég síðar að rækla sýkla, og' oft frá sunuim. Ég mun seinna skýra nánar frá því. Fyrsti faraldur, sem ég fékk fregnir af, var fyrir aldamót (um 1890?). Fyrstur veiktist G. J. í Garðshorni II. (nú 64 ára), hann var þá nýkom- inn innan úr Fnjóskadal (frá Draflastöðum) og mun hafa sýkzt þar. Síðar sýktist kona G., M. F., Garðshorni II. (nú 73 ára) og S. E., Kross- húsum (nú 58 ára); allt þetta fólk hjó í Uppibæ, sem nii er í evði. Veturinn 1923—1924 geisar svo næsti faraldur. S. J. frá Neðribæ var á ferð á Húsavik seint í nóvember 1922 og dvaldi þar veðurtepptur nokkra daga. Hann veiktist skömmu eftir að heim kom, en drógst þó lengi á fótuni og vann ýms heimilisstörf. Hann hefir á þeim tíma eflaust gengið erinda sinna i fjósið, eins og alltaf hefir tíðkazt í Flatey. Heim- ilisfólkið í Neðrihæ var þá flest flutt í nýbyggt steinhús, nema S. og kona hans J. L. J.dóttir (nú á Sælandi), þau bjuggu enn í gamla torf- bænum. J. ól barn 14. desember 1923. Er hún var að komast á fætur af afleiðingum þess, veiktist hún á ný. Læknir hélt það fyrst vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.