Læknablaðið - 15.10.1985, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ
255
hafi síðan borizt í hann. Heimili Árna fékk mjólk frá Neðribæ á tíma-
bilinu áður en hann veiktist. Hann hefði þannig hæglega getað sýkzt
frá smitbera í Neðrii)æ.
Hinn möguleikinn, að sýklaberi sé á vestri hæjunum, virðist í fljótu
hragði miklu sennilegri. Þar voru 4, sem höfðu fengið taugaveiki, 2
í Garðshorni II, 1 í Baldurshaga og 1 á Sælandi. Sælandsheimilið
hefir aldrei sótt vatn í Garðshornsbrunninn og liggur ekki sérlega
nærri honum. Baldurshagi liggur alllangt í hurtu, og er vandséð, hvers
vegna Garðshornsbrunnurinn þyrfti frekar að smitast af því, að þang-
að væri sótt vatn frá Baldurshaga en Útgarðahrunnurinn. Að því leyti
standa háðir brunnarnir jafnt að vígi. Allar líkurnar mundu þá Jjenda
að Garðshorni II. Bæði hjónin hai'a fengið taugaveiki. Konan M. F.-
dóttir, hefir tvisvar fengið gulu og hefir eymsli á gallhlöðrustað.
Sýkingin 1931 gæti einnig skýrzt frá henni, sýkingin 1934 ef til vill
sömuleiðis. Eins og áður er tekið fram, gera staðhættir sýklaburð í
hrunninn frá Garðshoni mjög auðveldan. Sýkingar, sem enn er eftir
að skýra frá, gætu einnig skýrzt frá M. F.dóttur.
Til þess að hægt sé að skera úr um, hvaðan upphaflega smitunin í
þessum faraldri stafi, er eius og séð verður af framansögðu, óumflýj-
anlegt að finna smitherann með bakteriologiskri rannsókn.
Næsta sýking varð G. apríl, eða hér um l)il tveimur mánuðum eftir
að síðustu sjúklingar lir fyrri faraldrinum voru ltomnir á fætur. í
þetta skipti veiktist skóladrengur ofan af Flateyjardal, G. að nafni.
Hann hjó og horðaði í Neðribæ og mun hvergi hafa komið nema þar
og til M. F.-dóttur í Garðshorni II. Hann var fluttur heim til sín á
þriðja degi. 19 dögum síðar veiktist 10 ára gamall drengur í Barna-
skólakjallaranum, .1. G.son. Hann hafði setið við sama horð og G. í
skólanum og hefir án el'a smitazt af honum. .1. lá til 4. júní. 28. maí
veiktist G. S.son, Baldurshaga. Hann hafði verið í vinnu í Neðribæ 20.,
23. og 25. maí og þá borðað þar. Hann hafði mikið vos þessa daga, og
gæti það ef til vill hafa stytt meðgöngutíma hans. Sömuleiðis kom
hann oft að Garðshorni og þáði þar kaffi. Hann lá einn mánuð. 28.
júní veiktist Á. H.dóttir, Bjargi, 10 ára og síðar 3 börn í barnaskóla-
kjallaranum. Hvert þessi smitun hefir verið sótt, er ekki fullljóst, en
með þeim heilbrigðisháttum, sem í eynni eru, og með þeim miklu sam-
göngum, sem eiga sér stað á þessum tíma árs, er ekki óeðlilgt, að
smitun geti borizt milli heimilanna, þegar sjúklingar eru í eynni á
annað horð. Þó vil ég sérstaklega geta þess, að smitun gæti auðveld-
lega skýrzt frá Garðshorni II, ef þar væri smitberi.
Það virðist augljóst, að í Flatey hlýtur að vera sýklaberi, sem tæp-
lega getur verið yngri en frá 1924. Smitunin er vel hugsanleg frá ein-
um smitbera, þrátt fyrir það, hve tilfellin eru dreifð. Þar hjálpar
óþrifnaðurinn að sjálfsögðu mjög til. í eynni er ekki til eitt einasta
salerni, er verðskuldi það nafn, nema í barnaskólanum. Allsstaðar
gengur fólk erinda sinna í fjósin eða fjöruna, þegar gott er veður. Að
vísu er til eitt salernisskrífli niður við fiskhúsin, en það er svo að
segja ónothæft.
í Sigtúni er gömul for og yfir henni trépallur. Þar ofan á er negldur
50 kg. sykur-kassi með gati að ofan og hlemm vfir. Þetta er notað á