Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1985, Side 12

Læknablaðið - 15.10.1985, Side 12
256 l.vl.KNABLAÐlÐ sumrin. Á vetrum er notuð fata með kassa yfir, og stendur hún í göng- unum framan við baðstofuhurðina. Allsstaðar annarsstaðar eru fjósin notuð. Mjólkursala milli bæja er nokkuð tíðkuð, og eykst auðvitað hættan af þessum óþrifnaði stórlega við það. í faröldrumun 1923—1924 og 1931 var mjólkin eflaust aðalsmitunarleiðin. Ekki hefi ég fundið dæmi þess, að taugaveikin hafi borizt þannig s. 1. vetur, og hefi ég þó stöð- ugt haft þann möguleika á hak við eyrað. Á einum eða tveimur bæjum nota kýrnar sömu forstofu og fólkið. Er þetta sorglegt dæmi um, hve tilfinningu fólksins fyrir hreinlæti er úhótavant. Húsakynni í eynni eru víðast góð. Á 9 bæjum af 13 eru steinhús eða góð timburhús. Á 4 bæjum er bygging slæm. Ástæðunnar til þess, að heilbrigðisháttunum er svo ábótavant, er ekki fyrst og fremst að leita í slæmum húsakynnum. Orsökin er ann- arrsstaðar að finna, og eflaust er fleira en eitt, sem fellur undir þetta. Yfir sumartímann er afskaplegt erfiði á fólkið lagt. Eyjarskeggj- ar sækja sjó af miklum dugnaði, en jafnframt er í eynni allmikill land- búskapur, og fólkið skiptir sólarhringnum milli sjósóknar og hey- skaparins. Einnig á veturna á kvenfólkið að minnsta kosti mjög ann- ríkt. Mikill barnafjöldi á heimilunum þyngir enn störf þess. Það er þess vegna ekki sanngjarnt að leggja fólkinu það út til lasts, þótt þrifnaður sé ekki sem skyldi. En ofan á þetta bætist — og sem afleið- ing af því — að tilfinningu fólksins fyrir þrifnaði og góðri umgengni er mjög ábótavant. Þá eru vatnsbólin. í eynni eru 6 hrunnar, sumir slæmir. Verstir eru Garðshornsbrunnurinn, sem áður er lýst, og Sælandsbrunnurinn. Allir eru hrunnarnir í ræktuðu landi. Ég' henti bændunum á vesturbæjunum á, að ráðlegt væri að grafa einn sameiginlegan brunn vestan harnaskólans og leiða þaðan vatn á alla vesturbæina og niður að sjóhúsunum. Þeir tóku yfirleitt vel í þetta. Þó þyrfti að athuga það betur, gera hallamælingar o. s. frv. áður en til framkvæmda kæmi. Jafnframt reyndi ég að hrýna fyrir hændunum nauðsyn þess, að þeir byggðu salerni hver á sínum bæ. Tóku þeir því allir vel, og er vonandi, að það verði framkvæmt hið bráðasta. Ég hefi nú rakið gang faraldranna eftir upplýsingum sem ég aflaði mér á eynni. Erindi mitt var að leita að sýklaberanum. Grunur um sýk- ilburð féll fyrst á þá, sem tekið höfðu veikina fyrir 1931 og sérstak- lega þá þeirra, sem líkur að öðru levti bentu til, að gætu verið valdir að smituninni vegna samgangs við þá, sem sýktust, eða matvæli þeirra. Til þess að geta skorið úr, hver af þessum hópi væri sýkilberinn, var bakteriologisk rannsókn óhjákvæmileg. Ég hafði þess vegna með hjálp Rannsóknarstofu Háskólans húið mig út með nauðsynlegustu tækjum til sýklaræktunar. Áður en ég fór norður, höfðu verið send til Flatevjar allmörg ílát undir sýnishorn af þvagi og saur, og var svo til ætlazt, að héraðs- læknir eða yfirsetukona önnuðust þetta og sendu síðan til Rannsóknar- stofu Háskólans. Úr þessu hafði þó ekki orðið. Ég framkvæmdi þessa

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.