Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1985, Side 15

Læknablaðið - 15.10.1985, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ 257 söfnun strax og ég kom til Flateyjar og sendi til Rannsóknarstof- unnar 30 sýnishorn. Þess má geta strax, að þetta bar engan árangur. í því fundust engir taugaveikissýklar. Meðal þeirra, er sýnishorn voru send frá, var þó konan, er siðar sýndi sig að vera sýkilberi. Ég kom fyrir í skólastofunni tækjum þeim, sem ég hafði með mér, og hafði þar bækistöð mína. Thermostat hafði eg vitanlega ekki með. í stað þess fór eg þannig að: Ég hafði tvær vatnsfötur af venjulegri stærð. Báðar voru jafn- víðar að ofan en önnur mjókkaði niður. Ef botnmjóa fatan var sett ofan í hina, varð nokkurt bil á milli hliða þeirra neðantil. Þetta hol- rúm fyllti ég svo með zinknitrati, sem hefir bræðslumark um 37°. Sé það brætt og látið storkna, gefur það Irá sér mjög mikinn hita um 37° markið og helzt þess vegna lengi á því hitastigi eða því sein næst. Ég hit- aði „thermostatinn“ á prímus tvisvar á sólarhring og byrgði hann svo vandlega niður. Þannig fékk ég vel nothæfan ræktunarhita. Conradi agar hafði ég með mér í flöskum. Ég bræddi hann og renndi honum út í skálar, eftir því sem ég þurfti á að halda. Ennfremur hafði ég nokkuð af sykurtegundum, -— bouillon, útbúnað til Widal- prófs, smásjá o. fl. Ég ræktaði síðan úr saur og þvagi frá 12 körlum og konum og oft frá sumum. Hvergi fann ég þó B.T. Ég notaði stundum magnii sulfas, til að reyna að örfa gallstreymið og flýta flutningnuin gegn um þarm- ana. Allt kom þetta þó fyrir ekki. Það mun enda meir cn vafasamt, hvort magn. sulfas verkar nokkuð cholekinetiskt. Ég tók þá það ráð að duodenalsondera þær tvær konur, sem mér þóttu grunsamlegastar. Ég lagði niður venjulega duodenalsondu og fékk þegar upp nokkuð af alkalisku duodenalinnihaldi, sem ég geymdi og sáði seinna frá. Svo dældi ég einni hrárri eggjarauðu niður um sonduna, og eftir lö—20 mín. fékk ég upp allmikið af brúnguluín, al- kaliskum vökva, sem eflaust var gallblöðruinnihald. Frá því sáði ég einnig. Úr gallblöðru annarar konunnar fékk ég á þennan hátt svo að segja hreingróður af B.T. Þó fékk ég aðeins sýkla í sýnishorninu, sem ég tók, eftir að hafa gefið eggjarauðurnar (úr blöðrugallinu). Úr fyrra sýnishorninu óx aldrei neitt. Sýklarnir, sem ég fékk, uxu eins og B.T. á Conradi agar, gerjuðu ekki lactose, en gerjuðu hinsvegar glucose án loftmyndunar. Þeir voru ennfremur mjög hreyfanlegir. Til þess að fá frekari vissu, tók ég bouillonkultur, drap hana með 10% formalíni og gerði á henni agglutinationspróf með typhusserum. Þetta serum var úr taugaveikissjúklingi, sem hafði legið næstum mánuð, og var Widal jákvætt (1:160). Agglutinalionsprófið með bouillongróðri mínum varð jákvætt í jafnmikilli serumþvnningu. Við agglutinationsprófin gafst mér miklu betur að láta glösin standa í 50—55° heitu vatni, — og þarf þá ekki nema 1—2 klt. — en að láta þau standa lengri tíma við 37°. Ég taldi mig nokkurnveginn öruggan um, að bacillan, sem ég hafði fundið, væri B.T., án þess að hafa getað sáð í fleiri sykurtegundir. Ég treysti aðallega á hina jákvæðu agglutination. Þegar ég fór, flutti ég með mér gróður af þessum sýklum, og Rannsóknarstofa Háskólans staðfesti niðurstöðu mina.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.