Læknablaðið - 15.10.1985, Síða 19
ABBOTICIN
(ERYTROMYCIN)
Chlamydia
trachomatis
*tilvitnun: »Chlamydia
trachomatis — algengari orsök
kynsjúkdómasmits en Neisseria
gonorrhoea«
*
Nord. Med. Vol. 95,
4/1980. Moller B. R. et al.
ABBOTICIISI
(ERYTROMYCIN)
- áhrifaríkt við NGU í skammtastærðinni 500 mg 2 sinnum
á dag í 10-14 daga
Tvær ástæður má néfna fyrir því að meðhöndla maka þess,
sem hefur NGU:
I. Til þess, að koma í veg fyrir fylgikvilla eins og t.d.
legpípubólgu.
2. Til pess að koma í veg fyrir endursmitun mannsins við
samfarir.
LABORATORIES A/S
Bygstubben 15,Tr0n3d, 2950\fedbæk
Tlf. 02-89 42 66
Sérhæft sýklalyf sem þolist vel.
Erytromycin er sérhæft lyf gegn gram-jákvæðum sýklum (stafylokok-
kum, streptokokkum, pneumokokkum), Mycoplasma pneumoniae,
Corynebacterum diphteriae, Bordetella pertussis, Haemophilus influ-
enza, Chlamydia trachomatis, Legionella pneumophila og Camphylo-
bacter jejuni. Erytromycin hefur hverfandi áhrif á gramnegativa
loftþurfandi sýkla þarmaflórunnar.
Ábendingar: Sýkingar af völdum erýtrómýcínnæmra sýkla. Lyfið er
aðallega notað hjá sjúklingum, sem hafa ofnæmi fyrir penicillini, við
sýkingar af völdum pneumococca eða haemolytískra streptococca.
Campylobacter-sýkingar. Acne vulgaris.
Virkt gegn chlamydia stofnum, t.d. við þvagrásarbólgu (non gonococ-
cal urethritis = NGU) og einnig gegn legionella pneumophila og
skyldum bakteríum. - Lyfið í formi skammta er einkum ætlað
börnum, þegar þörf er að gefa sykurlausa erýtrómýcínsamsetningu.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir erýtrómýcíni.
Aukaverkanir: Ofnæmi fyrir lyfinu er sjaldgæft og kemur fram sem
útþot eða lyfjahiti. Ógleði og uppköst; algengara hjá bömum.
Thrombophlebitis er algengur eftir gjöf lyfsins í æð (gefist hæft í æð).
Milliverkanir: Erýtrómýcín dregur úr sýkladrepandi áhrifum peni-
cillíns, cefalóspórínsambanda, linkómýcíns og klindamýcíns.
Teófýllínmagn í blóði getur hækkað.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Skammtar 400 mg: Hvern skammt á að leysa upp í 40-60 ml af vatni.
1 skammtur fjórum sinnum á sólarhring. Við alvarlegri sýkingar má
gefa allt að 4 g á sólarhring. Lyfíd skal gefið fyrir eða með mat.
Sýruhjúptöflur og töflur: Venjulegur skammtur er 500 mg á 12 klst.
fresti. Við alvarlegar sýkingar má gefa 2 g eða jafnvel meira á
sólarhring. Skammtur skal þó ekki vera meiri en 4 g á sólarhring. Lyfið
skal tekið fyrir eða með mat. Við acne vulgaris: 500 mg tvisvar sinnum
á dag í upphafi meðferðar, síðan 250 mg tvisvar sinnum á dag.
Stungulyfsstofn iv/innrennslisstofn: 1-2 g á dag, gefin í þremur til
fjórum skömmtum hægt í æð eða í samfelldu dreypi. - Lyfið er leyst
upp i 20 ml af sæfðu vatni og upplausninni er síðan blandað við t.d.
ísótónískt saltvatn, áður en lyfið er gefið.
Athugið: Lyfið má ekki gefa óþynnt. - Ekki má leysa lyfið (þurrefni)
upp í saltvatni vegna hættu á útfellingu. Lyfið hefur 12 klst. geymsluþol
eftir að það hefur verið leyst upp.
Skammtastærðir handa börnum: Venjulegur skammtur er 30-50 mg/kg
líkamsþunga á sólarhring, gefinn í tveimur til fjórum jöfnum
skömmtum. Við campylobactersýkingar: 250 mg tvisvar sinnum á dag.
Lyfið skal tekið fyrir eða með mat.
Mixtúra 40 mg/ml: 5 ml (1 mæliskeið) = 200 mg erýtrómýcín. Handa
börnum að 5 kg líkamsþunga skal reikna skammtastærð út í hverju
einstöku tilfelli.
6-10kg (/-1 árs): Vi mæliskeið (= 2,5 ml) þrisvar sinnum á sólarhring.
11-20 kg (1-6 ára): 1 mæliskeið (= 5 ml) þrisvar sinnum á sólarhring.
21-30 kg (6-10 ára): 2 mæliskeiðar (= 10 ml) þrisvar sinnum á
sólarhring.
Yfir 30 kg (10 ára og eldri): 3 mæliskeiðar (= 15 ml) þrisvar sinnum á
sólarhring.
Mest frásog fæst, þegar mixtúran er tekin inn rétt fyrir mat.
Skammtar: Hvern 200 mg skammt á að leysa upp í 20-30 ml af vatni;
hvern 400 mg skammt á að leysa upp í 40-60 ml af vatni.
Handa börnum að 5 kg líkamsþunga skal reikna skammtastærð út í
hverju einstöku tilfelli.
6-10 kg (Vi-l árs): 100 mg þrisvar sinnum á sólarhring.
11-20 kg (1-6 ára): 200 mg þrisvar sinnum á sólarhring.
21-30 kg (6-10 ára): 400 mg þrisvar sinnum á sólarhring.
30 kg og þyngri (10 ára og eldri): 600 mg þrisvar sinnum á sólarhring.
Lyfið í formi skammta á 400 mg er ekki ætlað börnum undir 35 kg
líkamsþunga.
Mest frásog fæst, þegar skammtar eru teknir inn rétt fyrir mat.
Stungulyfsstofn iv/innrennslisstofn: 15-25 mg/kg á dag, gefin í þremur
til fjórum skömmtum; sjá um skammta handa fullorðnum hér að
framan.
Pakkningar: Mixtúruduft: 100 ml, 200 ml.
Skammtar 200 mg: 30 stk.
Skammtar 400 mg: 40 stk.
Stungulyfsstofn iv/innrennslisstofn: hgl. 1 g.
Sýruhjúptöflur 250 mg: 24 stk. (þynnupakkað);
32 stk. (þynnupakkað); 40 stk. (þynnupakkað); 100 stk.
Töflur 250 mg: 24 stk. (þynnupakkað) 32 stk. (þynnupakkað); 40 stk.
(þynnupakkað); 100 stk.
Töflur 500 mg: 12 stk. (þynnupakkað); 20stk. (þynnupakkað); 100 stk.
Marts 1985