Selfoss - 11.04.2013, Síða 6

Selfoss - 11.04.2013, Síða 6
6 11. apríl 2013 Hvernig leggst vorið í þig? Vorið leggst alltaf vel í mig og ég spái góðu sumri, sem ég geri reyndar alltaf. Flest sumur undanfarið hafa líka verið góð nema framan af 2011. Far- fuglarnir gefa andanum byr undir báða vængi, þeir ilja eftir dimman vetur (sem var of lítill vetur að mínu mati) og boða hinar löngu nætur, þegar maður vill helst ekki sofa. Vorboðarnir mínir hér á Stokks- eyri komu fyrir um tveimur vikum, tjaldurinn og hettumáfurinn. Stararnir mínir, sem ég hef byggt undir, er líka farnir að huga að varpi. Það hefst mikil vinnutörn hjá mér á vorin. Í apríl þarf að klára pappíra og skriftir sem standa eftir frá vetrin- um, þá hleypur líka kapp í margan landann við að útbúa fræðsluskilti, bæklinga og annað sem fólk hefur haft allan veturinn til að hugsa um. Snemma í maí leggst ég út og kom ekki aftur í hús fyrr en í september. Hugtakið sumarfrí þekki ég bara af afspurn, en ég tek mér stundum vetrarfrí. Reyndar ætla ég að bregða mér í 10 daga ferð til A-Tyrklands og Kákasusfjallanna 8. maí, að ljós- mynda fugla og sömuleiðis til Sval- barða í júlí, sem er púra vinnuferð. Annars verð ég talsvert á ferðinni með erlenda ljósmyndara um landið og svo að mynda sjálfur. Ég get því ekki kvartað yfir hlutskipti mínu. Kveðja Jóhann Óli Hilmarsson náttúrufræðingur Myndina af mér tók Halla Hreggviðsdóttir og síðan er einn af leigjendunum mínum að fóðra afkvæmi. Hvernig er þingsætum úthlutað að loknum kosningum? 63 þingmenn sitja á Alþingi. Kjördæmissæti eru 54 og jöfn-unarsæti 9. Í Suðurkjördæmi eru 9 kjördæmissæti og eitt jöfn- unarsæti. Úthlutun sæta á Alþingi fer fram í tveimur meginskrefum: Fyrst er kjördæmissætum úthlutað, en þeim er alfarið úthlutað á grund- velli fylgis lista í hverju kjördæmi. Landsfylgið kemur ekki við sögu. Það gildir líka einu hvort viðkom- andi flokkur hafi boðið fram í öllum kjördæmum eða ekki. Síðan er jöfnunarsætum úthlut- að. Eins og nafn þeirra bendir til er tilgangur þeirra sá að „hver stjórn- málsamtök fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæða- tölu sína“ eins og segir í 31. gr. gild- andi stjórnarskrár. Það er ekki þar með sagt að fullur jöfnuður náist. Til þess kunna jöfnunarsætin níu að reynast of fá. Við úthlutun jöfnunarsæta koma þeir og aðeins þeir flokkar til álita sem hafa hlotið a.m.k. 5% fylgi sam- anlagt á landinu öllu. í Suðurkjördæmi eru 10 þingsæti til skiptanna, þar af eitt jöfnunarsæti.

x

Selfoss

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.