Selfoss - 11.04.2013, Qupperneq 9

Selfoss - 11.04.2013, Qupperneq 9
911. apríl 2013 Rannsóknir á Brunasandi 10. maí 1823 er upphafsdagur landnáms á Brunasandi, sem þar með verður yngsta sveit á Íslandi. „Saga Brunasands er áhugaverð og hefur hópur fræðimanna tekið sig saman um að vinna að heildstæðri úttekt á ábúenda- og náttúrufars- sögu sveitarinnar,“ segir Jón Hjart- arson sem er einn af rannsakendum. Frá ómuna tíð beljaði Hverfisfljót meðfram Síðufjöllunum og brotn- aði á Orustuhól, sem stóð í því miðju eins og voldugur brimbrjótur. Fljótið rann eftir ótölulegum fjölda farvega bæði til austurs og vesturs og flæmdist svo um líflausa áraura til sjávar. Við Skaftáreldana 1783 – 1784 ruddist eystri hraunstraumurinn fram á milli Miklafells og Síðufjalla og þrýsti Hverfisfljóti til austurs þangað sem það rennur nú. Tvær megin hrauntungur, sú vest- ari Karginn og sú eystri Eldvatns- tanginn teygðu sig fram á aurana. Fljótlega spruttu óteljandi volgar bergvatnsuppsprettur undan haun- brúninni og flæddu fram á aurinn. Áhrif friðunarinnar og nær- andi bergvatsnins varð til þess að áraurarnir tóku að gróa upp og á tiltölulega fáum árum myndaðist algróið land, þar sem áður voru einskisnýtir aurar. Nýbýli á Orustustöðum Eftir Móðuharðindin, sem fylgdu í kjölfar Skaftáreldanna, fjölg- aði fólki hratt og skjótt voru öll eyðibýli byggð á ný og skortur á jörðum farinn að segja til sín. Fólk renndi hýru auga til nýja landsins en vandkvæði voru á hvernig standa ætti að hlutunum. Fyrir Eld, skipti Hverfisfljót löndum milli Seljalands og Foss, þannig að þetta nýja land, Brunasandur, var innan marka þessara tveggja jarða. Hinsvegar var til konungstilskip- un frá 1776 um heimild manna til að stofna til býla á „ónýttum svæð- um.“ Þessa tilskipun þekkti Magn- ús Einarsson bóndi á Brattlandi og skrifaði því bréf til yfirvaldanna um heimild til stofnunar nýbýlis á Brunasandi á grundvelli tilskipunar- innar frá 1776. Í stuttu máli varð niðurstaðan sú, að á þingi að Kleif- um 10. maí 1823 var kveðinn upp dómur um útmælingu á nýbýlinu Orustustöðum úr landi Seljalands. Þannig er 10. maí 1823 upp- hafsdagur landnáms á Brunasandi, sem þar með verður yngsta sveit á Íslandi. Á næstu árum byggjast eftirtalin býli: Hruni II; Hruni I (Teygingalækur); Sléttaból I; Miðból; Sléttaból II (Miðból og Sléttaból II renna saman og heita nú Hraunból); Blautilækur; hús- mannsbýlið Markaskipti; Slétta og Bjarnartangi. Á öllum þessum jörð- um var búið og á sumum langt fram á tuttugustu öld og enn á Sléttu. Úttekt á ábúenda- og nátt- úrufarssögu sveitarinnar Vegna þess hversu tilurð og saga Brunasands er áhugaverð hefur hópur fræðimanna tekið sig saman um að vinna að heildstæðri úttekt á ábúenda- og náttúrufarssögu sveit- arinnar. Þessir fræðimenn koma að verk- inu: 1. Dr Bergrún Óladóttir jarð- fræðingur og Margrét Ólafs- dóttir landfræðingur, skrifa um hraunið og þátt þess í mótun sveitarinnar. 2. Dr Edda Oddsdóttir líffræðing- ur um skóginn á Brunasandi og áhrif hans á þróun náttúrufars í framtíðinni. 3. Jón Hjartarson, skrifar ábú- endasögu sveitarinnar frá 1823 til 2014. 4. Júlíana Þóra Magnúsdóttir þjóðfræðingur (doktorsnemi í þjóðfræðum), skrifar um sagna- hefðina og sögu og sagnir. 5. Jóhann Óli Hilmarsson fugla- fræðingur skrifar um fuglalífið á svæðinu með sérstakri áherslu á sérstöðu þess. 6. Dr Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor skrifar gróðurfarssögu svæðisins frá upphafi til dagsins í dag. 7. Björgvin Salómonsson, ritstjóri héraðsritsins Dynskóga annast útgáfu á niðurstöðum rannsókn- anna, en gert er ráð fyrir að þær verði gefnar út í Dynskógariti 2015. Það er ákaflega dýrmætt þegar góðir fræðimenn ólíkra greina taka sig saman um að gera heildstæða úttekt og skapa heildstæða mynd af því tagi, sem hér er unnið að. Þeir sem eiga í fórum sínum myndir frá Brunasandi eða kunna sögur, sagnir eða eitthvern annan fróðleik um mannlíf á Brunasandi vinsamlegast hafið samband við undirritaðan í síma 867 5240 eða á netfangið: jonhjartarson@gmail. com Jón Hjartarson Jón Hjartarson. „Frá ómuna tíð beljaði Hverfisfljót meðfram Síðufjöllunum og brotnaði á Orustuhól, sem stóð í því miðju eins og voldugur brimbrjótur.“ Þessa tilskipun þekkti Magnús Einarsson bóndi á Brattlandi og skrifaði því bréf til yfirvaldanna um heimild til stofnunar nýbýl- is á Brunasandi á grund- velli tilskipunarinnar frá 1776. Í stuttu máli varð niðurstaðan sú, að á þingi að Kleifum 10. maí 1823 var kveðinn upp dómur um útmælingu á nýbýlinu Orustustöðum úr landi Seljalands. Er svarthvíta hetjan til? Nú eru kosningar á næsta leyti og eiga mjög margir eftir að gera upp hug sinn á því við hvaða bókstaf skuli merkja við á kjördag, nóg er nú úrvalið. Misjafnt er hvaða málefni brenna á fólki. Skuldavandi heimila, ESB, stjórnarskrá Íslands, nýting nátt- úruauðlinda. Listinn er langur. Allt skiptir þetta máli og allt tengist þetta á einhvern hátt. Tilveran er ekki bara svört eða hvít. Eins og eitt sinn var sungið: ,,Nei eða já? Nú eða þá?“ Meðan ein höndin er uppi á móti annarri komumst við ekkert áfram. Við í Bjartri framtíð leggjum áherslu á að skoða öll mál, hlusta á allar hugmyndir, skoða samhengi hlutanna og taka vel ígrundaðar ákvarðanir. Við viljum ekki útiloka einn kost fram yfir annan, sama hvaðan hann er tilkominn. Við erum meðvituð um að við höfum ekki öll svörin á silfurbakka. Einu viljum við þó lofa og það er að við leggjum áherslu á lausnir til fram- tíðar, ekki sífelldar skítareddingar. Við viljum vönduð vinnubrögð og fagmennsku. Skapa samfélaginu okkar bjartari framtíð Við bjóðum ekki bara upp á svart eða hvítt heldur allan litaskalann eins og hann leggur sig. Ísland býr yfir ótrúlega miklum auðlindum. Allra dýrmætasta auðlindin er fólkið í landinu. Hér skiptir hver manneskja máli. Við erum eins mis- munandi og við erum mörg. Ég er grunnskólakennari. Ég hef áhuga á fólki. Ég vil þjónusta fólk. Eins og stendur í dag þjónusta ég lítið fólk. Mér finnst yndislegt að hugsa til smáfólksins sem ég hef verið svo blessunarlega heppin að fá að kynn- ast í gegnum starfið, sum hver orðin að fullorðnum einstaklingum í dag. Ég tel mig vera góðan kennara. Ég er þakklát þeim sem vinna í heilbrigð- isgeiranum, sinna löggæslu, þjónusta börnin mín, geta lagað bílinn minn. Ólíkt fólk að sinna ólíkum störfum. Í Bjartri framtíð er hópur fólks sem hefur sérhæft sig á hinum ýmsu sviðum, Árni Múli veit allt um sjávarútvegsmál, G. Valdimar um landbúnaðarmál og Brynhildur Pétursdæmi um neytendamál svo dæmi sé tekið. Við teljum samvinnu vera lykilatriði, að nýta reynslu og hæfileika einstaklinga. Með því að hlusta á hvort annað, þvert á flokka og ekki síst fólkið í samfélaginu. Með því að tala saman, sýna hvort öðru virðingu, traust, kærleik og skilning getum við unnið í sátt og skapað samfélaginu okkar bjartari framtíð. Guðlaug Elísabet Finnsdóttir, í 2. sæti Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi Guðlaug Elísabet Finnsdóttir. Hlökkum til vorsins Það er besti tíminn. Garður-inn bíður eftir vorverkun-um. Jarðarberin eru byrjuð að spretta undir laufhrúgunni og kannski koma epli í sumar, það komu engin í fyrra vegna frostsins í maí. Gyða og Óli á Selfossi Jóhann Stefánsson trompetleikari á Selfossi blæs til leiks á Kirkjubæjarklaustri klukkan 13.30 í dag Þá hefst tveggja daga ráðstefnan Menningarlandið. Sjá frekar á slóðinni: http://www.samband.is/menningarlandid2013/menningar- landid-2013-dagskra/ Spáð í spilin í Flóanum skömmu fyrir kosningar

x

Selfoss

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.