Selfoss - 11.04.2013, Qupperneq 10

Selfoss - 11.04.2013, Qupperneq 10
10 11. apríl 2013 23Bændablaðið | fimmtudagur 7. júlí 2011 Öflugir High Tech rafgeymar fyrir jeppa. Er bíllinn tilbúinn fyrir ferðalagið? MANITOU MLT 625- 75 H Nett fjölnotatæki Lyftigeta: 2.500 kg Lyftihæð: 5.900 mm 4-hjóladrifinn 4-hjólastýrður 75 hö, Kubota, Hlaðinn aukabúnaði td., loftkælt ökumannshús, skófla, gafflar, útvarp. STAÐGREIÐSLUVERÐ KR. 7.900.000 + VSK 2x10 Þór Á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum síðastliðin laugardag afhenti Hrossarækt.is styrk til Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna, (SKB). Styrkurinn er afrakstur söfnunar á vegum Hrossaræktar.is þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll sl.vetur og happdrættismiðar seldir í kjöl- farið. Hrossaræktendur tóku málefninu mjög vel og rúmlega 50 stóðhests- eigendur gáfu folatolla sem nýttir voru í uppboðið og happdrættið. Hestamenn tóku málefninu ekki síður vel og útkoman var veglegur styrkur upp á kr. 2.015.000 sem afhentur var á stærstu hátíð hesta- manna á Íslandi í dag. Hrossarækt.is er fyrirtæki sem á og rekur stóðhestavefinn stodhestar. com. Að auki stendur Hrossarækt. is fyrir stóðhestasýningum norð- an og sunnan heiða og gefur út Stóðhestabók. Í vetur kviknaði sú hugmynd hjá aðstandendum vefs- ins að standa fyrir söfnun til handa góðu málefni og leita þar liðsinnis hrossaræktenda í landinu. Fyrir val- inu varð að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sem hefur um árabil stutt krabbameinsjúk börn og fjölskyldur þeirra. Viðstaddir afhendinguna voru m.a. Hinrik Bragason frá Hestvit ásamt stóðhestinum Héðni frá Feti og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri, en þeir voru meðal þeirra sem lögðu sitt til fjáröflunarinnar. Við styrknum tók fjölskylda hestafólks sem þekkir vel til starfs félagsins en eldri sonur þeirra var skjólstæðingu félagsins á sínum tíma en hefur nú náð fullum bata. Þau Rannveig Árnadóttir, Brynjar Jón Stefánsson og Brynjar Jón yngri tóku við styrknum fyrir hönd Styrktarfélagsins, en fyrir hönd Hrossaræktar.is afhenti ung hestakona Nadía Sif Gunnarsdóttir styrkinn. Hulda G. Geirsdóttir, fjölmiðla- fulltrúi Hrossaræktar.is sagði það mikla ánægju að geta styrkt þetta góða málefni og vildi þakka þeim fjölmörgu hrossaræktendum sem gáfu folatolla til söfnunarinnar sem og hestamönnum sem voru duglegir að styrkja málefnið. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fékk styrk frá Hrossarækt.is Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri, Brynjar Jón Stefánsson, Rannveig Árnadóttir, Hinrik Bragason með Héðinn frá Feti, Hulda G. Geirsdóttir, Guðmundur Björgvinsson, Magnús Benediktsson, Björn Kristjánsson og Snorri Kristjánsson frá Hrossarækt.is og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri. Fyrir framan standa Brynjar Jón yngri og Nadía Sif Gunnarsdóttir með ávísunina á milli sín. Mynd / Gígja Einars Nýja stjórnarskráin Vinstri græn hafa lýst sig reiðubúin til þess að sam-þykkja fyrirliggjandi frum- varp að nýrri stjórnarskrá. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Katrínar Jakobsdóttur við eldhús- dagsumræður á Alþingi. Hún sagði frumvarpið samið í eins víðtæku samráði við allt samfélagið og hugs- ast getur. „Eigi að síður hefur brös- uglega gengið að ljúka umfjöllun um stjórnarskrármálið hér á þingi.“ Ég hef lagt mikla áherslu á mikil- vægi þess að klára það ferli sem nýja stjórnarskráin er í og hef ég m.a. lagt baráttunni lið með ræðu á 9. fundi áhugafólks um nýja stjórnarskrá. Nýja stjórnarskráin byggir á hugsun sem er ólík þeirri gömlu. Sú gamla er að grunninum til frá 19. öld þegar gildismat og mannskilningur var allt annar en í lýðræðisríkjum 21. aldar- innar. Á 19. öld bar konungur höfuð og herðar yfir þegna sína því hann hafði erft bæði landið og völdin og almennir borgarar voru því aðeins vinnudýr samfélagsins. Þrátt fyrir að við höfum komið lýðræðishugsun og nútíma stjórnskipun inn í stjórn- arskrána er grunnhugsunin samt til staðar. Sú hugsun byggir á því að sumir einstaklingar hafi meira gildi í samfélaginu en aðrir. Hún byggir á því að það þurfi forréttindastéttir til að hafa vit fyrir almenningi. Fanga það sem var inntak hug- myndarinnar um Nýja Ísland Nýja stjórnarskráin byggir á nýrri hugsun um það hver á samfélagið. Völdin eru færð frá forréttindahóp- um til almennings. Nýja stjórnar- skráin miðlar þeirri hugmynd að kosningar á fjögurra ára fresti er ekki fullnægjandi lýðræði. Gleymum því ekki að Nýja stjórnarskráin er tilraun til að laga það sem olli hruninu árið 2008. Hugmyndir nýju stjórnarskrárinn- ar um lýðræði, sterkar stofnanir, mannréttindi og aðgengi að upp- lýsingum vinna að því að koma böndum á þá samfélagsgerð sem fyrir hrun fékk leyfi til að ganga allt of langt. Hún er tilraun til að fanga það sem var inntak hug- myndarinnar um Nýja Ísland. Það er ekkert barnalegt eða ómerkilegt við þá hugmynd. Hún sýnir bara að í samfélaginu okkar er gott fólk sem er tilbúið til að vera til hvert fyrir annað. Vinna saman og virða hvert annað í stað þess að vera í stöðugri samkeppni. Það er mikilvægt að við missum ekki móðinn og höldum áfram baráttu fyrir betra samfélagi. Allir leggi sitt af mörkum. Það getum við gert með því að leggja áherslu á að stjórnarskráin verði samþykkt á næsta kjörtímabili. Inga Sigrún Atladóttir, skipar 2. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi. Hugsum Ísland upp á nýtt Það sem brennur á íslenskri þjóð eru ekki málin sem nú-verandi ríkisstjórn hefur sett í forgang. Við erum ekki að hugsa um hvernig aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið ganga, við telj- um ekki að breyta eigi stjórnarskrá lýðveldisins í kapphlaupi við tím- ann. Við söknum skjaldborgarinnar um heimilin sem lofað var en aldrei sást. Vel útfærðar lausnir í boði Hægri grænir, flokkur fólksins vill leggja sitt af mörkum í málefnum sem brenna á þjóðinni. Það brenn- ur á okkur að leiðrétta verðtryggð húsnæðislán og í þeim efnum höfum við lagt fram greinargóðar og vel útfærðar lausnir með kyn- slóðasáttinni. Þetta er ekki töfra- lausn, heldur lausn með reynslu. Sem Bandaríkjamenn hafa notað. Sem er raunhæf hér á landi. Íþyngjandi skattkerfi Skattkerfi okkar Íslendinga er orðið svo flókið og íþyngjandi að fyrirtæki hér á landi halda að sér höndum og mörg hver eru í miklum vand- ræðum. Hægri grænir vilja einfalda skattkerfið, taka upp flatan tekju- og virðisaukaskatt. Það skal gert í þrepum á næsta kjörtímabili og enda í 20% skatti. Það verður að lækka tryggingagjald á laun niður í 3% úr þeim tæplega 8% sem það er í dag. Meingallað lífeyrissjóðskerfi Lífeyrissjóðskerfið er meingallað og í raun má segja að það jaðri við mannréttindabrot. Hvers vegna á einstaklingur sem greitt hefur alla tíð í lífeyrissjóð, hluta af launum sínum að sæta skerðingu vegna þess að hann hefur verið skynsamur í sín- um fjármálum? Hvers vegna eiga lífeyrissjóðir að hirða lífeyri einstak- lings sem fellur frá áður en kemur að nýtingu? Í lífeyrissjóðsmálum þurf- um við nýja ugsun, við verðum að hækka lífeyri aldraðra, afnema tekjutengingu Tryggingastofnunar, afnema auðlegðarskatt og lögleiða erfanleg lífeyrisréttindi. Tökum til hjá ríkinu Við þurfum að vinda ofan af ríkis- rekstrinum. Báknið er orðið allt of stórt. Við erum með 2500 nefndir á vegum hins opinbera starfandi hér á landi. Þetta er ein nefnd á hverja 130 íbúa hér á landi. Við rekum um- fangsmikla og dýra utanríkisþjón- ustu. Við eyðum rúmum milljarði á hverju kjörtímabili í styrki til stjórn- málaflokka. Það er á svo mörgum stöðum sem hægt er að taka til. Fullt af frambjóðendum Hægri grænir vilja tala um lausnir í komandi kosningabaráttu. Við höfum lagt fram ítarlega stefnuskrá og lausnirnar eru til. Guðmundur Franklín Jónsson formaður flokks- ins komst að því í síðustu viku að hann væri ekki kjörgengur vegna þess að lögheimili hans er ekki skráð hér á landi. Þetta var klaufalegt hjá formanninum en það er móðgun við hina tæplega 130 frambjóð- endur flokksins að dæma okkur úr leik vegna þessa. Eins má spyrja sig hvurslags reglur það eru að ekki dugar að vera íslenskur ríkisborgari til að njóta þeirra sjálfsögðu mann- réttinda að hafa kosningarétt. Skoðum nýjar leiðir Það er lýðræðinu á Íslandi nauðsyn- legt að hafa á Alþingi fulltrúa annarra en fjórflokksins sem hefur það for- skot á aðra að njóta ríkra styrkja úr okkar vasa. Hægri grænir, flokkur fólksins er borgara- og millistéttar- flokkur. Við erum raunsæ og lausnir sem við höfum sett fram eru ekki unnar á einni nóttu. Síðustu þrjú ár hafa farið í að móta stefnuskrána. Ég hvet ykkur til að skoða nýjar leiðir, ný framboð. Stefnuskrá okkar er aðgengileg á xg.is, bæði úrdráttur og ítarefni. Hugsum Ísland upp á nýtt, setjum x við G 27. apríl næstkomandi. Sigursveinn Þórðarson, viðskiptalögfræðingur og oddviti Hægri grænna í Suðurkjördæmi. Sigursveinn Þórðarson. Inga Sigrún atladóttir

x

Selfoss

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.