Selfoss - 11.04.2013, Side 14
14 11. apríl 2013
Leitað að utankjörstaðaatkvæðum
Er þetta ekki fulllangt geng-ið? Þessa auglýsingu mátti sjá hvað eftir annað á skjánum í
beinni útsendingu af handboltaleik
sem fram fór í Svíþjóð. XL blasti við.
Hér voru menn á (L)lýðræðisvakt-
inni enda utankjörfundaratkvæða-
greiðsla hafin og vitað að fjöldi Ís-
lendinga býr á Skáni í Svíþjóð þar
sem leikurinn fór fram um sl. helgi.
Vorlauf míns trega
Skáldið Þorsteinn Valdimarsson kom úr Vopnafirði, af skálda-
heimili eins og við megum vita sem
hér í Árborg búum og þekkjum
Guðrúnu systur hans sem sungið
hefur með Hörpukórnum fram á
síðustu vikur og skrifar ljóð.
Grasið mitt græna
gott er að vera til
og finna þig hjúfra
hlýtt sér við yl.
Mjúkt muntu strjúka
mér yfir höfuð brátt
sofnum frá öllu´ í sátt
grasið mitt mjúka.
Um systur sína yrkir Þorsteinn
gjarnan, finnur þakkarefni og
hlýju í ríkidæmi stóra systkina-
hópsins:
Hlóðum við sverði
hún systir mín og ég, -
drógum úr grafar djúpu lagi
sætstör og saman átum.
. . .
Hníptum við undir færum
hann faðir minn og ég.
Máfinn hjó í marar gráði
bátskel fyrir Búðardröngum.
Eftirminnileg er myndin af Þor-
steini í þakherberginu sínu, þar
sem hann stendur við stofuorgel-
ið. Myndin prýðir bók Eysteins
Þorvaldssonar með úrvali af
ljóðum þessa ljúflings vors og
lækja og umfjöllun um þau.
Vorlaufið unga
veika og smáa
veit það um blóm sitt
um daggir, yl og ljós?
Vorlauf míns hjarta
vorlauf míns trega
verður þú rós.
Þorsteinn átti aðeins tvö ár ólifuð
þegar söngmálastjóri, Hauk-
ur Guðlaugsson, hóf árleg og
árangursrík organistanámskeið sín
í Skálholti 1975 og svo ótrúlega
sem það kann að hljóma um
Þorstein sem aldrei kom til þeirra,
en var þar þó iðulega þátttakandi,
en fjarstaddur þegar hann birtist
í sögum námskeiðsgesta, þeirra
sem átt höfðu samskipti við hann.
Hann var eftirsóttur þýðandi og
textasmiður og þegar setja skyldi
brag við lag var viðbrugðið var hve
gott var til hans að leita. Þess naut
Haukur meðan hann starfaði sem
organisti á Akranesi og stjórnaði
þar kórum. Og margur þurfti
sína sögu af Þorsteini að segja
þegar nafn hans bar á góma. Þeir
Þorsteinn og Haukur höfðu átt
samleið í tónlistarskólanum á
sínum ungu árum og bundu með
sér hlýja vináttu æ síðan.
Ó, kærasta góða vor
í tæran kyrtil sólar
færirðu börnin þín
og stökkvir þeim rjóðum á dyr
í leik við grös þín og blóm
og feykir á burt þeirra sorgum
eins og reyk með ljúfum blæ
eins og náttdögg af stráum,
. . .
Þorsteinn stóð ekki álengdar
í stormum sinnar tíðar, hann
varð eitt þeirra skálda sem beittu
skáldskapnum í baráttunni við
erlenda ásælni, gegn hersetunni
og aðildinni að Atlantshafsbanda-
laginu. Eysteinn segir: „Það eru
þessi mál sem kalla hörpusvein-
inn „hinn hljóða draumamann“
til baráttu fyrir huldu landsins.“
Þekktasta baráttuljóð Þorsteins
er Þú veist í hjarta þér en við það
samdi hann einnig lag sem sung-
ið var í Keflavíkurgöngum þegar
hersetunni var mótmælt.
Þú veist í hjarta þér
kvað vindurinn
að vegur drottnarans
er ekki ekki þinn –
heldur þar sem gróandaþytur fer
og menn þerra svitann af enni sér
og tár af kinn.
Hér aðs skjala safn Ár nes-inga hef ur á und an förn-um ár um feng ið fjölda
merkra ljós mynda safna. Hér aðs-
skjala safn ið fékk ásamt Hér aðs-
skjala safni Aust firð inga og Hér-
aðs skjala safni Skag firð inga styrk frá
Mennta og Menn ing ar mála ráðu-
neyti til at vinnu skap andi verk efn is
tengd inns könn un og skrán ingu á
ljós mynd um á söfn un um þrem ur.
Sveit ar fé lag ið Ár borg og Menn-
ing ar ráð Suð ur lands styrktu svo
sér stak lega verk efn ið hér í sýsl unni.
Á hér aðs skjala safn inu eru nú um
125.000 ljós mynd ir. Í tengsl um
við verk efn ið er bú ið að skanna inn
tæp lega 30.000 ljós mynd ir og skrá
um helm ing þeirra.
Mik ið vinna ligg ur að baki
skrán ingu á ljós mynd um og oft
á tíð um er ekki hægt að greina
ná kvæm lega frá við burð um eða
þekkja þá ein stak linga sem eru á
mynd un um. Mik il vægt er að geta
leit að til al menn ing og fá að stoð
við skrán ingu á ljós mynd um. Birt-
ing ljós mynda með þess um hætti er
því í raun sam vinnu verk efni íbúa
hér aðs ins og skjala safns ins.
Marás ehf.
Miðhraun 13 - 210 Garðabær
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is
Allt fyrir sjávarútveginn
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
Rafmagnsstjórntæki fyrir skip og báta frá ZF
Þekk ir Þú fólk ið?
úr Harð Haus (7)
Ingi Heiðmar Jónsson
Hér fylgir mynd frá Sigurði Jónssyni. Þessir krakkar eru á indíánahátíð í Sand-
víkurskóla milli 1991 og 2000. Okkur vantar nöfnin á þau.
Þá minnum við á myndasetur.is en þar er myndir frá héraðsskjalasafninu.
allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar.