Selfoss - 29.08.2013, Side 4

Selfoss - 29.08.2013, Side 4
4 29. ágúst 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi. SELFOSS 16. TBL. 2. ÁRGANGUR 2013 Selfoss inn á hvert heimili! 60% fækkun í yngsta aldurshópnum í Skaftárhreppi: Ferðaþjónusta til bjargar – eða kallar byggðaþróunin á séraðgerðir á Suðurlandi? Ferðaþjónusta á Suðurlandi hefur vaxið ört síðustu miss-erin. Fjárfestingar eru miklar í greininni og ekki síst á Suðurlandi. Menn trúa því að ferðamennska sé svar við fólksfækkun í hinum dreifðu byggðum Suðurlands. Hún muni auka fjölbreytni og vonandi laða til sín yngra fólk sem kýs þá að setjast að. Yngra fólk er væntanlega lík- legra til að kunna frekar til verka en það eldra þar sem ferðamáti hefur verið að breytast á undanförnum árum. Því þarf að mæta með breyttu verklagi bæði í gistingu og mat og ýmissri afþreyingu sem stendur til boða. Ferðamáti þeirra sem sækja Ísland heim hefur breyst. Æ fleiri eru á eigin vegum og setja sér sínar eigin ferðaáætlanir. Hvað skuli sjá og hvenær og velja næturstað æ meir í samræmi við hvað öðrum hefur fundist sem hafa dvalið á sömu slóðum. Fólksfækkun mesta ógnin Í skýrslum Byggðastofnunar um að- gerðir til að örva er ýjað að því að viss héruð á Íslandi þurfi sér með- höndlun. Hefðbundnar aðferðir í byggðasókn henti ekki öllum. Hér hljótum við að horfa meðal annars til hinna dreifðu byggða á Suðurlandi. Skaftárhreppur er tvimælalaust gott dæmi. Fólksfækkun er mesta ógnin við austurbyggðir Suðurlands; svæð- ið fyrir austan Pétursey og austur að Höfn. Og alveg sérstaklega þar sem fækkar mest í hópi þeirra yngstu. Í Skaftárhreppi hefur þeim sem eru innan við tvítugt fækkað um 60% á 15 árum. Það eru uggvænleg tíðindi. Kalla á viðbrögð – og þau áform verða að vera meira en byggð á skyndiákvörðunum um bráðagróða. Ferðaþjónusta til fyrirmyndar Byggðastofnun hefur lánað til þessara svæða sem viðkvæmust eru. Næstum einvörðungu til ferðaþjón- ustuaðila. Ferðaþjónustan blómstrar víða. Eins og við tókum dæmi af í síðasta blaði. Unga fólkið sem hefur gert upp Ketilsstaðaskóla í Mýrdal. Úr varð lítið hótel og þau eru að uppskera og una glöð við sitt. Þau sinna ferðamanninum af alúð og fá viðbrögð sem því nemur. Ánægðir ferðalangar er besta svarið við því sem gert er. Þeir smita út frá sér. Ekki síst í gegnum ferðavefina á netinu. Nú leggja erlendir ferða- menn upp í langferðir til Íslands og ferðast innanlands á Íslandi eftir áður ókunnum ferðakortum. Netsíður eru grannskoðaðar. Ferða- langurinn kemur til Íslands með útfylltan „lyfseðil“ þar sem allt er fyrirfram ákveðið. Hvað skuli sjá og kynnast og hvar. Gistingin er valin út frá þessum óskum en jafnframt eru vefsíður gististaðanna skoðaðar í bak og fyrir og matið á þeim fer eftir palladómum sem aðrir ferða- menn hafa skráð. Ferðafólk sem þar hefur gist og borðað. Ferðavefurinn TripAdviser er dæmigert hjálpartæki. Ekki er annað að sjá en að þessi ferðaundirbúningur breiðist hratt út meðal fólks sem hyggst sækja Ís- land heim. En einmitt vegna þessa þurfa gestgjafarnir á Íslandi að taka vel á móti ferðamönnum og vanda vel til allra verka. Orðsporið ræður miklu um velgengni í ferðamennsku á Íslandi. Náttúran er einstök Suðurland slapp að mestu við hrunið þegar litið er til svæðisins austan Þjórsár og Vestmannaeyjar einnig skár en flest sveitarfélög á Íslandi. Styrkur Selfoss-svæðisins liggur tví- mælalaust í því að vera innan áhrifa- svæðis höfuðborgarinnar. En það hefur einnig þá hlið að þegar illa árar á landsvísu er eins víst að hallans gæti líka á þessu svæði. Þannig var það líka. Skaftfellingar og fleiri sunn- lendingar stóla mjög á að ferða- mennskan sé framtíðin. Skaftafells- sýslurnar eru strjálbýlar. Í dag er þetta staðreynd og verður að leggja á brattann með það í huga. Það verður að gæta þess að ganga ekki á þau gæði sem landið sjálft gefur. Möguleikar héraðsins hljóta m.a. að felast í því að ferðamaðurinn sem kemur austur njóti þess sem landið hefur upp á að bjóða. Ummæli er- lendra ferðalanga um héraðið eru ótvíræð. Náttúran þykir einstök. ÞHH Spennandi Alviðrudagur Egg tóku að klekjast út á bakinu á hunangsflugu ... Landvernd stóð fyrir hinum árlega Alviðrudegi í Alviðru í Ölfusi 17. ágúst sl. Yfir tutt- ugu manns komu saman, börn og fullorðnir og fræddust um náttúr- una. Að þessu sinni um plöntur og skordýr. Sól og blíða var og fór fólkið í náttúruleiki og týndi síðan plöntur og veiddi skordýr og aðra hryggleys- ingja. Þetta var síðan allt skoðað í víðsjám inni í Alviðrubænum. Mikill spenningur varð þegar egg tóku að klekjast út á bakinu á hunangsflugu út frá hitanum á smásjánni og töldu líffræðingar á staðnum líklegast að um væri að ræða sníkjumaura, en höfðu ekki áður séð svona. Hun- angsflugunni varð ekki meint af. Börn og fullorðnir voru alsæl með þennan fróðlega og skemmtilega dag. Að lokinni dagskrá var boðið upp á vöfflur og kakó og síðustu sólargeislarnir sleiktir áður en sólin hvarf á bak við Ingólfsfjall. Dagurinn kveikti svo sannarlega áhuga barn- anna sem sum hver héldu áfram að skoða í nágrenni sínu eftir að heim var komið. Umsjón með verkefninu hafði Hrefna Sigurjónsdóttir, vara- formaður Landverndar. Ferðamaðurinn tekur myndir af flóðinu í Múlakvísl þegar brúna tók af í jökulhlaupi í hitteðfyrra. Náttúran getur verið óblíð en verður erlendum ferðamanni að yrkisefni. Börnin söfnuðu úti í náttúrunni og ... Rannsökuðu frekar í víðsjánni. Besti þjálfari í heimi! Þórir Hergeirsson frá Selfossi er besti þjálfari í heimi í handbolta kvenna. Ekkert minna. Kjör hans í vikunni sem handknattleiksþjálfari ársins á veg- um Alþjóða handknattleikssam- bandsins er enn ein fjöður í hatt hans. „Það er hvetjandi að fá slíka viðurkenningu, en ég lít á þetta sem rós í hnappagat liðsheildarinnar,“ segir Þórir. Hógvær maður, en við segjum að það sé engin tilviljun að þú varðst fyrir valinu. Til hamingju, Þórir! Mynd af síðu Aftenposten

x

Selfoss

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.