Selfoss - 29.08.2013, Side 6
Okkar vinsæli heimilismatur í hádegi alla virka daga kl. 12:00 - 13:30.
Súpa, aðalréttur, kaffi, biti, kaka eða ávöxtur.
Allt þetta á aðeins 1.490,- kr.
Breiðumörk 2b, Hveragerði
Pizzur, smáréttir, veislur, bar.
Gæði - Þjónusta - Lipurð - Stöðugleiki
29. ágúst 20136
Jólagjafirnar komnar í hús í
Herjólfshúsinu í Þorlákshöfn
- Handverksdögum sumarsins lýkur með kaffi og harmonikkuspili á laugardaginn.
Já, það er ekki seinna vænna. Handverksfólk í Herjólfshús-inu sem sér líka um rekstur
hússins vekur athygli á að það er
sérstakur afsláttur á handverki þessa
vikuna. Börnin í þorpinu hafa ver-
ið sérlega dugleg að koma í heim-
sókn og fá lánaðar veiðistangir og
björgunarvesti og húsið hefur verið
vel sótt af ferðamönnum. „Þó er
það svo að þeir erlendu hafa verið
miklu meira áberandi en íslenskir,
öfugt við það sem var í fyrrasumar
og sennilega leikur veðrið þar stórt
hlutverk,“ segir Barbara Guðnadótt-
ir, menningarfulltrúi sveitarfélagsins.
Handverksfélag Ölfuss hefur í
sumar tekið þátt í rekstri Herjólfs-
hússins í Þorlákshöfn. Gestum og
gangandi hefur boðist að kaupa
kaffi og handverk auk þess sem
ferðamenn hafa fengið upplýsingar
um sveitarfélagið, nágrenni þess og
um spennandi gönguleiðir. Þetta er
annað sumarið sem Herjólfshúsið
er nýtt á þennan hátt og hefur það
sett skemmtilegan svip á bæjarlífið
í Þorlákshöfn.
Nú líður að sumarlokum og þar
með lokum starfsemi handverks-
félagsins í Herjólfshúsinu. Síðasta
vikan sem húsið verður opið er 26.
til 31. ágúst. Þá er hægt að gera
góð kaup enda afsláttur af ýmsum
vörum og handverki. Laugardaginn
31. ágúst verður svo hægt að hitta
handverksfólk, fá sér kökubita og
hlýða á ljúfa harmonikkutóna á milli
kl. 14 og 17. Herjólfshúsið er opið
alla daga frá kl. 10 til 17. Gestir og
gangandi eru hvattir til að líta inn, fá
lánaða stöng eða drekka góðan kaffi-
bolla og jafnvel gera jólagjafainn-
kaupin tímanlega.
Sjómannadagshelgin
er okkar bæjarhátíð!
„Heilmikið hefur verið um að vera í Þorlákshöfn og Ölfus-inu í þessum mánuði þó ekki
hafi verið haldin nein bæjarhá-
tíð,“ segir Barbara Guðnadóttir í
Þorlákshöfn. Sumir sakna þess þó
að ekki séu lengur Hafnardagar
í ágúst. Dagsetningu hátíðarinn-
ar var breytt eftir að niðurstaða
könnunar leiddi í ljós að meirihluti
þeirra sem þátt tóku taldi hátíðina
betur komna um sjómannadags-
helgina. En það hefur ekki verið
nein ládeiða í mánuðinum þrátt
fyrir þetta.
Ferðamálafélagið er búið að vera
duglegt að standa fyrir fjölbreytt-
um gönguferðum, en í þessari
viku var farið í hellaskoðunarferð
í Búra.
Þá hafa rekstraraðilar Herjólfs-
hússins efnt til bryggjustemningar
á svonefndum bryggjudögum. Á
bókasafninu hefur staðið yfir
sýning Byggðasafns Ölfuss sem
nefnist „Störfin heima fyrir“. Þar
gefur að líta ýmislegt sem nýtt var
í handverk og til heimilisstarfa.
Sýningin stendur fram í byrjun
september og eru áhugasamir sem
ekki hafa skoðað sýninguna hvattir
til að koma og skoða, en sýningin
er opin á opnunartíma safnsins.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar
eldri borgarar úr Reykjavík komu
að skoða sýninguna í síðustu viku.
gestum og gangandi hefur boðist að kaupa kaffi og handverk í Herjólfshúsi
Börnin í þorpinu hafa verið sérlega
dugleg að koma í heimsókn og fá lán-
aðar veiðistangir og björgunarvesti
Vampírur og fjallahlaupafólk í Þorlákshöfn
Fólki í Þorlákshöfn fjölgaði allverulega þegar yfir 300 manns gistu í íþróttahús-
inu fyrir hálfum mánuði eftir að
hafa hlaupið um 60 km leið. Hafði
hlaupahópurinn lagt undir sig fjöll
og óbyggðir – í nokkrum lotum - á
250 kílómetra leið milli Kerlingar-
fjalla og Bláa lónsins. Hlaupinu
lauk ekki í Þorlákshöfn en næst
síðasti áfangi var þá í höfn. Kepp-
endur koma víða að úr heiminum.
Kenna þau sig við eyðimerkur þar
sem hlaupið er á hverju ári. Einu
sinni á ári er bætt við einu hlaupi á
áhugaverðum stað í heiminum og
í ár varð Ísland fyrir valinu. Kepp-
endur þurfa að bera allan útbúnað
og mat sjálfir. Til stóð að slá upp
tjaldbúðum sunnan við Hlíðarvatn
eftir þetta lengsta hlaup ferðarinnar,
en það hófst við Skarðsmýrarfjall
og endaði í Herdísarvík. Vegna
veðurs fékk hópurinn þó inni í
íþróttahúsinu í Þorlákshöfn og
gisti þar í tvær nætur áður en lagt
var af stað í síðasta hluta hlaups-
ins. Hlaupararnir voru hraktir og
þreyttir og mjög ánægðir að fá þak
yfir höfuðið. Að ári er stefnan sett á
eyjuna Madagasgar fyrir ströndum
Afríku í Indlandshafi. Þegar hafa
250 skráð sig í hlaupið. Víða að – en
þó enginn Íslendingur ennþá.
Á sama tíma og hlaupagikkirnir
komu til byggða í Þorlákshöfn í
næst síðasta mark óhemjuhlaups-
ins stóðu yfir tökur á norskri
vampírumynd í Höfninni. Af því
tilefni var verslunarhúsi sem staðið
hefur autt um nokkra hríð, breytt
í norska lögreglustöð. Mátti sjá
rækilega merkta lögreglubíla á
staðnum og verið var að undirbúa
frekari tökur. Bíómyndin verður
tekin upp á fleiri stöðum á Íslandi
og er um norsk – íslenskt samstarf
að ræða.
Hlaupagarparnir kunna að meta gestrisnina og þáðu gistingu í íþróttahúsinu
eftir 60 km. sprett.