Vesturland - 28.02.2013, Blaðsíða 4
4 28. febrúar 2013
Ný þjónustustöð N1 opnuð í Borgarnesi um miðjan maí:
Viðamiklar breytingar
innanhúss sem utan
Hyrnunni í Borgarnesi var lokað í byrjun desember og opnar nýr og breyttur
veitingastaður og verslun þar í maí.
Bensínafgreiðsla og olíuverslun N1
verður þó opin meðan breytingar
standa yfir
Innra rými hússins verður gerbreytt.
Veitingasalan verður miðlæg, ekki
ósvipað því skipulagi sem er í Staðar-
skála í Hrútafirði. Salurinn mun taka
um 150 manns í sæti og er gestum
boðið upp á sæti á bekkjum, stólum
og sófum.
Í veitingasölunni verður boðið upp á
heimilismat, grillrétti og skyndibita af
ýmsum gerðum. Auk þess verður lítil
verslun í húsinu sem býður uppá helstu
nauðsynjar. Breytingar verða einnig
talsverðar utanhúss sem meðal annars
má sjá á meðfylgjandi myndum.
Framsókn birtir framboðslista
Framboðslisti Framsóknarflokks-ins í Norðvesturkjördæmi hefur verið birtur. Núverandi þing-
menn flokksins skipa tvö efstu sætin.
Á listanum eru:
1. Gunnar Bragi Sveinsson, alþingis-
maður, Sauðárkróki
2. Ásmundur Einar Daðason, al-
þingismaður og bóndi, Lamb-
eyrum
3. Elsa Lára Arnardóttir, kennari og
varabæjarfulltrúi, Akranesi
4. Jóhanna M. Sigmundsdóttir, bú-
fræðingur og nemi, Látrum Mjó-
afirði
5. Sigurður Páll Jónsson, útgerðar-
maður, Stykkishólmi
6. Anna María Elíasdóttir, fulltrúi,
Hvammstanga
7. Jón Árnason, skipstjóri, Patreks-
firði
8. Halldór Logi Friðgeirsson, skip-
stjóri, Drangsnesi
9. Jenný Lind Egilsdóttir, snyrti-
fræðingur og varabæjarfulltrúi ,
Borgarnesi
10. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög-
regluþjónn og formaður byggða-
ráðs, Sauðárkróki
11. Anna Lísa Hilmarsdóttir, bóndi,
Sleggjulæk, Borgarfirði
12. Svanlaug Guðnadóttir, hjúkrunar-
fræðingur, Ísafirði
13. Klara Sveinbjörnsdóttir, nemi,
Hvannatúni, Borgarfirði
14. Magnús Pétursson, bóndi,
Miðhúsum A-Húnavatnssýslu
15. Gauti Geirsson, nemi, Ísafirði
16. Magdalena Sigurðardóttir,
húsmóðir og fyrrv. varaþing-
maður, Ísafirði
V E S T U R L A N D K E M U R Ú T E I N U S I N N I Í MÁ N U Ð I O G E R D R E I F T V Í T T O G B R E I T T U M V E S T U R L A N D
Vesturland
2. tBl. 2. ÁrGanGur 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54,
108 Reykjavík. auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: vesturlandblad@gmail.
com ,holmfridur@vedurehf.is. Blaðamenn: Sigurður Þ. Ragnarsson, Óskar Birgisson.
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 6.400 eintök. dreifing: Íslandspóstur.
Fríblaðinu er dreiFt í 6.400 eintökum í allar íbúðir á akranesi,
dreiFbýli á akranesi og í borgarnesi. blaðið liggur einnig Frammi
á helstu þéttbýlisstöðum á Vesturlandi
Síðustu vikur hafa stjórnmálaflokkarnir haldið samkomur með yfirskrift-inni Landsfundur þar sem menn og konur í viðkomandi flokki stilla saman strengina og vígbúast fyrir komandi átök. Átök sem snúast um
atkvæði litla mannsins. Almenningur er skyndilega kominn í þá stöðu að
skipta stjórnmálamennina einhverju máli, það er að segja atkvæði viðkomandi
almennings skiptir stjórnmálamennina máli.
Sumir kjósendur nýta sér þessa aðstöðu til hins ítrasta, mæta á allar kosn-
ingaskrifstofur þar sem kaffi og með því er í boði, sækja sér lyklakippur og
annað smádót sem flokkarnir útbúa til að vekja athygli á sér og sínum málstað,
telja öllum frambjóðendum trú um atkvæði þeim til handa og brosa síðan í
kampinn. Já það er gott að skipta máli- svona fjórða hvert ár.
Skyndilega er mikilvægt og aðkallandi að rétta sökkvandi heimilum hjálp-
arhönd. Þau hafa síðustu ár verið í stöðugri varnarbaráttu fyrir því að halda
sjó og skyndilega er núna runninn upp sá tími að þeim á að koma til aðstoðar.
Ríkisstjórnin gumar af aðgerðum í þágu heimilanna uppá milljarða þegar
staðreyndin er sú að þær leiðréttingar sem þeim hafa veist eru að mestu vegna
aðkomu dómstóla í leiðréttingum ólöglegra lána til almennings. Þær eru ekki
tilkomnar vegna þess að ríkisstjórnin hafi ákveðið að koma þeim til aðstoðar.
Ríkisstjórnin sem nú situr fékk umboð sitt frá almenningi sem hafði trú á að
þarna færi fólk sem bæri hag þeirra fyrir brjósti og myndi veita þeim vörn
fyrir þeim sem öllu komu hér í bál og brand. Loforðin voru fögur og háleit
en hvað um efndirnar?
Það er lag fyrir kjósendur að velja þá sem þeim treysta best til að koma skikki
á samfélagið og þeim sem er best treystandi til að efna þau loforð. Um það
snúast þessar kosningar- hverjum treystum við best.
Nú, þegar Vesturland hefur komið út í eitt ár, tekur nýr ritstjóri við blaðinu.
Við sem höfum stýrt blaðinu úr höfn munum einbeita okkur að Bæjarblaðinu
Hafnarfirði/Garðabæ sem er okkar aðalverkefni. Við þökkum samfylgdina
Lifið heil
Hólmfríður Þórisdóttir
Loforðaflaumur
eða efndir?
Leiðari
Jóhanna M. Sigmundsdóttir.
elsa Lára arnardóttir.
Ásmundur einar Daðason.
Gunnar Bragi Sveinsson.
Breytingunum verður lokið í maí.
Teikning af fyrirhugðum breytingum innanhúss.
frá Borgarnesi sunnudaginn 24. febrúar.