Vesturland - 27.06.2013, Blaðsíða 2
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Búðarkirkja á sér
afar merkilega sögu
Búðir eru vestast í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hraunhafnará fellur um Búða-
hraun og um Búðaósana í sjó fram.
Þar hét áður Hraunhöfn. Þangað hafa
kaupskip komið allt frá því er land
byggðist og hófst verslun þar snemma.
Verslunarsvæði Búða var allt sunnan-
vert Snæfellsnes og Mýrasýsla á ein-
okunartímanum. Mikil útgerð var frá
Búðum og hákarlaveiðar allt fram til
1933, en í dag er gert út á ferðamenn
að sumarlagi og starfrækt þar hótel.
Árið 1701 fékkst leyfi frá Jóni biskupi
Vídalín til að byggja kirkju að Búðum
á Snæfellsnesi. Ekki fannst kirkjustæði
og gömul kona sagði að taka ætti 3
örvar og merkja eina láta mann snúa
sér svo svimaði og lægi við yfirliði og
skjóta öllum örvunum og síðan að
byggja kirkjuna þar sem merkta örinn
lenti. Hún lenti í stóri hraunkvos sem
var fyllt af sandi og kirkjan síðan reist.
Upprunalega torfkirkja var borguð
að mestu borguð af kaupmönnumen
skiparar bættu við og var hún vígð 1703
en árið 1816 var Búðakirkja afnuminn
með konungsbréfi. Árið 1847 var gefin
út afturköllun og birt á prestastefnu
1849 um að byggja megi aftur kirkju á
Búðum og skuli Búðamönnum skylda
að fjármagna hana að fullu og viðhalda.
Á hurðarhring kirkjunnar stendur
,,kirkjan er endurreist ár 1848 án styrks
þeirra andlegu feðra.” Árið 1951 var
kirkjan endurbætt og var rafmagn leitt
í kirkjuna og aftur á árunum 1984 til
1986, en þá var hún flutt lítillega og
byggð eftir upprunalegum teikningum
frá Danmörku.
Fólkvangurinn Einkunnir er
sérkennilegur og fallegur staður
Einkunnir er sérkennilegur og fallegur staður vestast í Ham-arslandi við Borgarnes. Árið
1951 samþykkti hreppsnefnd Borg-
arneshrepps að girða af nokkuð stóran
reit til skógræktar. Skógræktarfélagið
Ösp var stofnað sem deild í Skógræktar-
félagi Borgarfjarðar til að sinna þessu
verkefni og undir merkjum þess var
stunduð skógrækt í rúm tuttugu ár. Á
síðari árum hefur sveitarfélagið séð um
rekstur og framkvæmdir í Einkunnum
og hefur þar verið talsvert unnið til að
gera svæðið að ákjósanlegu útivistar-
svæði og aðlaðandi fyrir ferðafólk.
2 27. júní 2013
Þingmenn VG vilja fresta innheimtuaðgerðum
Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða
Þrír þingmenn VG, þeir Ög-mundur Jónasson, Árni Þór Sigurðsson og Bjarkey Gunnars-
dóttir hafa flutt tillögu þess efnis að
Alþingi álykti að fela fjármála- og
efnahagsráðherra og félags- og hús-
næðismálaráðherra að senda tilmæli
til Íbúðalánasjóðs og áskorun til líf-
eyrissjóða og fjármálastofnana um að
fresta öllum innheimtuaðgerðum og
nauðungarsölum uns niðurstaða liggur
fyrir í aðgerðum ríkisstjórnarinnar í
skuldamálum heimilanna.
Í greinagerð með tillögunni segir
að í aðdraganda alþingiskosninganna
og í tengslum við myndun núverandi
ríkisstjórnar voru gefin út mjög af-
dráttarlaus loforð um aðgerðir í þágu
skuldugra heimila, þar á meðal var
heitið verulegri lækkun á höfuðstól
lána. Þetta hefur skapað væntingar
en jafnframt leitt til óvissu. Nú hafi
komið á daginn að engar tillögur
liggja fyrir og að þær aðgerðir sem
gripið verður til í sumar eru inni-
haldsrýrar og hafa eftir því sem séð
verður enga þýðingu í bráð. Þannig
er óljóst hvaða þýðingu lögfesting á
flýtimeðferð dómsmála í gengislánum
hefur, sbr. nýtt frumvarp innanríkis-
ráðherra þar að lútandi, þar sem tafir í
slíkum málum verða fremur raktar til
málsaðila dómsmálanna en til dóm-
stólanna, auk þess sem dómstólar eru
nú í réttarhléi fram á haust. Því skal
einnig haldið til haga að skammir
frestir geta valdið þeim lántakendum
tjóni sem eru í baráttu við fjármála-
fyrirtæki með her sérfræðinga, bæði
lögmanna og sérfræðinga í endur-
útreikningum. Ákvæði frumvarps-
ins mun ekki leysa neinn verulegan
vanda enda hafa stefnumarkandi
dómsmál í raun verið að uppistöðu
til unnin eins hratt og unnt er með
samkomulagi aðila.
Ríkisstjórnarflokkarnir
lofuðu stófelldri lækkun á
höfuðstóli lána
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þing-
maður VG, var spurð hvers vegna þessi
tillaga hafi verið lögð fram.
,,Í aðdraganda kosninga lofaði Fram-
sóknarflokkurinn stórfelldri lækkun
á höfuðstóli lána og Sjálfstæðisflokk-
urinn gekkst inn á þessa nálgun við
myndun ríkisstjórnarinnar. Þeir sem
eru við það að missa heimili sitt bíða
eftir úrlausn sinna mála og áttu örugg-
lega ekki von á að skuldamál heim-
ilanna yrðu sett á ís fram á vetur en
stórfelld lækkun á veiðileyfagjaldi til
handa útgerðinni yrði forgangsmál
ríkisstjórnarinnar á þessu
Sumarþingi.
Það er því ekki að ástæðulausu sem
við þingmenn Vinstri grænna leggjum
fram þessa þingsályktun sem gengur
út á að á meðan úrræði ríkisstjórnar-
innar eru í vinnslu verði Íbúðalánasjóði
gefin fyrirmæli um að fresta öllum
innheimtuaðgerðum og nauðungar-
sölum að auki verði lífeyrissjóðum og
fjármálastofnunum send samsvarandi
áskorun,” segir Bjarkey.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
alþingismaður.
Auglýsingasíminn er 578 1190
nyrðri-Einkunn rís fögur upp af sléttlendinu við Borgarnes. Mynd: FTH.
Búðarkirkja á sunnanverðu Snæfells-
nesi.
fotspor.is