Reykjanes - 24.01.2013, Page 2
2 24. janúar 2013
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fer fram n. k. laugardag. Að undanförnu hafa frambjóðendurnir 15 verið á fullu við að kynna sig og sín baráttumál. Það verður örugglega hart barist um efstu sætin,
þannig að það skiptir máli að mæta og taka þátt í valinu.
Þrátt fyrir ýmsa galla á prófkjörsaðferðinni er þetta þó skásta leiðin miðað við
núverandi reglur sem hægt er að nota við val frambjóðenda.
Oft hefur borið á því að ýmsir forystumenn flokksins s. s. bæjarfulltrúar, bæj-
arstjórar og aðrir toppar sendi út yfirlýsingar um hvernig við eigum að merkja
við frambjóðendur. Hver eigi að vera í sæti 1. og hver í sæti 2 o. s. frv. Það er
fáránlegt og helber dónaskapur við kjósendur að gefa út þannig skipanir. Við
eigum hvert og eitt að mynda okkur sjálfstæða skoðun á því hverja við viljum
velja. Við þurfum að hafa í huga að það er í okkar höndum að velja þá fimm
og raða þeim eftir því sem teljum hagsmunum kjördæmisins best borgið.
Flokksskírteini annars flokks datt úr veskinu.
Prófkjörið á laugardaginn er eingöngu fyrir flokksbundna Sjálfstæðismenn
er sagt. En er það svo? Fólk getur mætt á kjörstað á laugardaginn og skráð sig
í Sjálfstæðisflokkinn og sagt sig svo úr flokknum á mánudaginn. Því miður
er Það svo að flokksbundið fólk í öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokknum
mætir og tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Frambjóðendur og helstu
stuðningsmenn hvetja jafnvel til slíkra vinnubragða. Auðvitað er það ömurlegt
þegar menn mæta á kjörstað og sýna persónuskilríki að þá dettur úr veskinu
flokksskírteini Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins eða Vinstri grænna.
Vonandi styttist í að í þingkosningum og sveitarstjótrnarkosningum verði meiri
möguleikar á persónukjöri, þannig að ekki verði hægt að leika þennan ljóta
leik í prófkjörunum. Það á ekki að hvarla að okkur sem erum flokksbundin
að reyna hafa áhrif á val frambóðenda annarra flokka.
leiðari
Hugsum sjálfstætt
Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja.
Seg ið ykk ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn.
Vin sam leg ast send ið okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða
hring ið í síma 847 2779.
Reykjanes 2. Tbl.3. áRganguR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa Pdf: www. reykjanesblad.is
reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi.
Viltu segja skoðun þína?
Guðbjart HanneSSon for-
mann SamfylkinGarinnar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-herra hefur ákveðið að draga sig í hlél frá stjónmálum og því liggur
fyrir jafnaðarmönnum að kjósa nýjan
formann Samfylkingarinnar í allsherj-
aratkvæðagreiðlsu. Jóhanna sóttist ekki
eftir formennsku í flokknum eða stöðu
forsætisráðherra heldur svarðaði hún
kalli og áskorunum félaga sinna á vor-
dögum 2009.
Þegar við horfum til baka er full
ástæða til þess að fyllast stolti yfir
árangri ríkisstjórnar Jóhönnu.Hagur
Íslendinga batnar nú hraðar en flestra
annarra þjóða, kaupmáttur vex, dregið
hefur úr atvinnuleysi og lífskjör þjóðar-
innar fara batnandi. Félagslegt réttlæti
og jafnrétti kynjanna mælist nú hvað
mest á Íslandi í alþjóðlegum saman-
burði um leið og efnahagslegur jöfn-
uður hefur aukist á erfiðum tímum.
Ferðaþjónustan og aðrar vaxandi
greinar mynda ásamt hefðbundnum
grunnatvinnuvegum þá fjölbreyttu
flóru atvinnulífs sem nauðsynleg er
samfélögum sem vilja vaxa og dafna.
Úflutningsgreinarnar hafa ekki síður
lagt til þess góða hagvaxtar sem hér
hefur verið á liðnum árum.
Ríkisstjórn Jóhönnu hefur haft að
leiðarljósi stefnu jafnaðar og félags-
hyggu og það vil ég að næsti formaður
hafi fyrst og fremst í forgrunni en ekki
óljós loforð um breytingar.
Það hefur tekist að bjarga okkur
frá gjaldþroti og rétta okkur við og
nú er komið að því að sækja fram. Þá
verðum við að velja okkur forystu sem
vinnur eftir þeim giildum sem að Sam-
fylkingin hefur að leiðarljósi.
Guðbjartur Hannesson, sem hefur
verið ráðherra í stjórn Jóhönnu, er
rétti maðurinn til þess að halda á lofti
stefnu Samfylkingarinna um jafnrétti
og félagshyggju og vera í fararbroddi
þegar við byggjum upp til framtíðar.
Guðbjartur hefur orðið að taka
ákvarðanir sem haf orkað tvímælis í
erfðri stöðu til þess að hægt væri að
ná fram nauðsynlegu markmiði um
aðhald í rekstri sjúkrastofnana. Vel
hefur tekist til í flestum tilfellum en
hann var maður til þess að biðjast af-
sökunar og gangast við að ákvörðun
hans í launamáli forstjóra Landspítala
hafi verið röng.
Ég hef átt því láni að fagna að kynnast
Guðbjarti persónulega þegar málefni
eldri borgara hafa verið til umfjöllunar
á fundum í ráðuneyti velferðar og víðar.
Framkoma og málflutningur hans ætti
að vera mörgum stjórnmálamönnum
til eftirbreyttni. Guðbjartur flytur mál
sitt af sannfæringu án þesss að viðhafa
stór orð og er tilbúinn til þess að hlusta
frekar en að tala án þess að hlusta. Það
er eftirspurn eftir forystumönnum eins
og Guðbjarti .
Eyjólfur Eysteinssson, formaður
Félags eldri borgara á Suðrnesjum.
aðalfundur feb.
Félag eldri borgara á Suðurnesj-um heldur aðalfund sinn
laugardaginn 9. mars á Nesvöllum
kl.13: 30.
Árshátíð FEB.
fjör framundan
Nú styttist óðum í Árshátíð Fé-lags eldri borgara. Árshátíðin verður haldin sunnudaginn
10. febrúar n. k. í Stapanum og hefst
kl.18: 00. Flottur matur, skemmti-
atriði og dans. Sama miðaverð og í
fyrra krónur 6000. Rútuferðir verða
frá Grindavík, Vogum, Sandgerði og
Garði. Nú er um að gera að taka þenn-
an sunnudag frá. Árshátíðin verður
auglýst nánar á næstunni.
Um að gera að panta miða sem fyrst hjá:
Reykjanesbær Erna s.421 3937
Reykjanesbær Jón s.898 6919
Sandgerði Jórunn s.423 7601
Garður Sigurður s.847 2779
Vogar Guðlaugur s.424 6701
Grindavík Eyrún s.426 8087
HljómSveit HúSSinS
Á hverjum föstudegi er boðið uppá eitthvað skemmtilegt á Nesvöllum. Fyrir stuttu komu
Guðmundur Ingólsson og félagar og
spiluðu og sungu. Þau kalla sig Hljóm-
sveit hússins. Birta Arnórsdóttir söng
með þeim félögum. Mjög vel var mætt
og allir hinir ánægðustu.
léttur föStudaGur
Á morgun föstudaginn 25. janúar verður Léttur föstudagur á Nes-
völlum. Drífa Kristjánsdóttir og hennar
fólk spila og syngja m. a. kántry tónlist.
Kaffihúsið opið. Létti föstudagurinn
hefst kl.14: 00. Allir velkomnir.
flott Hjá framSókn
Framsóknarflokkurinn hef-ur valið framboðslista fyrir kosningarnar í apríl. Leiðtogi
flokksins í kjördæminu þingmaður-
inn Sigurður Ingi Jóhannsson fékk
einstaka kosningu eða 100%. Þetta
sýnir ótrúlegan styrk hans meðal
Framsóknarmanna. Framsóknar-
flokkurinn fékk tvo menn kjörna í
síðustu kosningum. Nú lá það fyrir að
Eygló Harðardóttir hefur fært sig yfir í
Sv-kjördæmi, þannig að hart var barist
um sætið. Silja Dögg Gunnarsdóttir
náði að sigra í þeirri kosningu. Mjög
sterkt hjá Framsókn að fá Silju Dögg
í annað sætið. Hún mun örugglega
styrkja listann til að ná inn fylgi á
Suðurnesjum.
Silja Dögg Gunnarsdóttir