Reykjanes - 24.01.2013, Side 9
924. janúar 2013
um áramót
– SveitarfélaGið voGar
Í upphafi nýs árs horfum við hjá Sveitarfélaginu Vogum með bjart-sýni til nýs árs, þrátt fyrir að gefið
hafi á bátinn undanfarin ár.
Sveitarfélagið og íbúar þess hafa ekki
farið varhluta af afleiðingum hrunsins
haustið 2008. Íbúum sveitarfélagsins
hefur fækkað um 8,5% frá árinu 2008,
mest þó síðustu tvö ár. Á sama tíma
hafa meðaltekjur íbúanna (og þar með
tekjur sveitarfélagsins) farið lækkandi
að raungildi. Þessi þróun hefur í för
með sér lakari afkomu bæði íbúanna
og sveitarsjóðs. Jafnhliða þessu hefur
fasteignaverð lækkað mikið á sama
tímabili, margir hafa misst fasteignir
sínar og fyrir bragðið standa mörg hús
og íbúðir nú tóm í sveitarfélaginu.
Þrátt fyrir þessa neikvæðu þróun
hefur tekist að aðlaga rekstur sveitar-
sjóðs breyttum aðstæðum. Á árunum
2010 og 2011 var ráðist í mikið átak
hagræðingar og endurskipulagningar
í rekstri, sem nú hefur skilað þeim
árangri að samkvæmt fjárhagsáætlun
ársins 2013 er í fyrsta skipti í mörg ár
gert ráð fyrir jöfnuði í rekstrinum.
Þennan árangur má ekki síst þakka
þrautseigju starfsmanna sveitarfélags-
ins, sem með samhentu átaki hafa lagst
á árarnar og lagt sitt af mörkum til að
markmiðin hafa náðst.
Íbúafjöldi Sveitarfélagsins Voga er
nú liðlega 1.100. Það er von okkar að
við höfum náð botninum í fólksfækk-
un, að aftur taki að fjölga í sveitarfé-
laginu. Bæjarstjórnin samþykkti fyrr í
vetur að ráðast í kynningarátak, svip-
að og gert var fyrir nokkrum árum.
Það átak skilaði þá talsverðum fjölda
nýrra íbúa í sveitarfélaginu. Sveitarfé-
lagið Vogar nýtur þess að vera staðsett
mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og
Reykjanesbæjar, og þar með alþjóða-
flugvallarins. Mannlíf er hér gott,
heilmargt í boði fyrir unga sem aldna,
jafnt á vettvangi félagsstarfs, íþrótta- og
tómstundaiðkunar.
Framkvæmdir á vegum sveitarfé-
lagsins verður stillt í hóf í ár, einungis
er gert ráð fyrir lágmarks viðhalds-
og endurnýjun, einkum á götum og
lögnum. Þá er gert ráð fyrir að hefja
stækkun kirkjugarðsins að Kálfatjörn.
Við hjá Sveitarfélaginu Vogum erum
þrátt fyrir allt bjartsýn á árið 2013. Við
erum þess fullviss að framundan séu
bjartari tímar með nýjum tækifærum.
Við berum þá von í brjósti að upp-
bygging verði hér á svæðinu sem færir
okkur ný og fjölbreytt störf og með
því verði styrkari stoðum rennt undir
rekstur heimilanna og sveitarfélagsins.
Gleðilegt ár!
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Sterk fjárHaGSleG Staða
SveitarfélaGSinS GarðS
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Garðs fyrir árið 2013 var sam-þykkt samhljóða í bæjarstjórn
þann 10. desember 2012. Gert er ráð
fyrir að heildartekjur A og B hluta nemi
935,1 milljón króna, sem er 4,1% aukn-
ing frá áætlaðri útkomu ársins 2012.
Álagningarhlutfall helstu tekjustofn-
ar bæjarsjóðs eru óbreyttir frá fyrra
ári, en þjónustugjaldskrá hækkar um
4,5% sem er hækkun á neysluvísitölu
frá september 2011 til september 2012.
Rekstrarafgangur er áætlaður 511 þús-
und krónur. Veltufé frá rekstri er áætlað
105,6 milljónir, eða rúm 11% af tekjum.
Afborganir langtímaskulda eru áætlað-
ar 9,5 milljónir , sem er til marks um
það hve sveitarfélagið er lítið skuldsett.
Fjárhagsáætlunin felur í sér sterka
fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins. Það
leggur grunninn að því að sveitarfé-
lagið veitir íbúunum og atvinnufyrir-
tækjunum þá góðu þjónustu sem raun
ber vitni. Almennur rekstur verður í
svipuðu horfi og var árið 2012. Fjár-
festingar og framkvæmdir eru áætl-
aðar 164,6 milljónir króna og verður
það fjármagnað af eigin fé bæjarsjóðs
og án sérstakra lántaka. Stærsta fram-
kvæmd ársins verður viðbygging við
íþróttamiðstöðina, þar sem byggð
verður upp aðstaða fyrir líkamsrækt
og starfsmenn. Einnig verður haldið
áfram uppbyggingu göngustíga, frá-
gangi opinna svæða og íþróttasvæðis,
ásamt holræsaframkvæmdum.
Staða atvinnumála er eitt helsta
áhyggjuefnið, ekki einungis í Garði
heldur á Suðurnesjum öllum. Hæsta
hlutfall atvinnuleysis á landinu er á
Suðurnesjum, en hlutfallslega er at-
vinnuleysi minna í Garði en almennt
á svæðinu. Suðurnesjamenn hafa á
síðustu árum beitt sér fyrir fjölgun
atvinnutækifæra á svæðinu en því
miður hefur of lítið þokast þrátt fyrir
góða viðleitni sveitarstjórnarmanna.
Stærsta og mikilvægasta baráttumálið
er að álver Norðuráls við Helguvík hefji
starfsemi sem allra fyrst. Auk beinna
starfa í álverinu munu skapast fjölmörg
atvinnutækifæri í þjónustu við það,
það sýnir reynslan af starfsemi álvera
annars staðar í landinu. Það er gömul
saga og ný að öflugt atvinnulíf er undir-
staða velferðar og lífsgæða fólks, þess
vegna er það eitt allra mikilvægasta
verkefni sveitarfélaga, ríkisins og at-
vinnulífsins í sameiningu að ná árangri
í fjölgun atvinnutækifæra. Þá má ekki
líta fram hjá því mikilvæga verkefni
að verja þá atvinnustarfsemi sem er til
staðar, hvort sem um er að ræða sjávar-
útveginn, heilbrigðis-og félagsþjónustu
eða almenna þjónustustarfsemi. Bæj-
aryfirvöld í Sveitarfélaginu Garði hafa
staðið í varnarbaráttu í þeim efnum og
munu halda því áfram.
Íbúaþróun í Garði hefur verið óhag-
stæð allra síðustu árin. Þann 1. Desem-
ber 2012 voru 1.422 íbúar í sveitarfé-
laginu og hafði íbúum fækkað um 55
frá upphafi árs 2012. Þessi þróun er
meðal annars bein afleiðing af þróun
atvinnumála og er enn eitt dæmi um
mikilvægi þess að okkur takist að snúa
þeirri þróun til jákvæðari vegar.
Þrátt fyrir allt má líta björtum aug-
um til næstu missera og ára. Það er
trú mín að fljótlega komi fram jákvæð
og mikilvæg merki um að atvinnulíf á
svæðinu eflist og dragi úr atvinnuleysi.
Sveitarfélagið Garður hefur staðið fyrir
mikilli uppbyggingu á undanförnum
árum og mun það halda áfram. Þessi
uppbygging ásamt góðri þjónustu
sveitarfélagsins við íbúa og atvinnu-
fyrirtæki hefur skapað gott samfélag
með góðum lífsgæðum. Ég þess fullviss
að áður en langt um líður muni íbúum
fjölga á ný í Garði, enda er sveitarfé-
lagið vel í stakk búið til þess að taka
vel á móti nýjum og fleiri íbúum og
við bjóðum alla velkomna í Garðinn.
Magnús Stefánsson
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs
betri Horfur
á nýju ári!
Sandgerðisbær er sveitarfélag sem er vel í sveit sett og á góða framtíðarmöguleika í atvinnu- og
íbúaþróun eins og reyndar öll sveitarfé-
lögin á Suðurnesjum. Góðar samgöng-
ur, góð höfn, nálægð við gjöful fiskimið
og alþjóðaflugvöllur í túngarðinum
með fjölbreyttu athafnalífi. Umsvifin
við höfnina hafa aukist á liðnum árum
og á árinu 2012 var landað ríflega 16
þúsund tonnum af fiski sem er nokkur
aukning frá fyrra ári. Að sama skapi er
mikil uppbygging meðal fiskvinnslu-
fyrirtækja í bænum. Fyrirtæki sem
fyrir eru hafa verið að endurnýja og
gera breytingar á húsnæði sínu og auka
við starfsemi. Ný fyrirtæki í sjávarút-
vegi eru með hús í byggingu og munu
þau taka til starfa á þessu ári. Þetta
hefur í för með sér jákvæðar og góðar
breytingar í samfélaginu. Fjöldi starfa
mun aukast og athafnalíf mun dafna.
Ýmsar góðar og jákvæðar fréttir
hafa komið fram hér á Suðurnesjum
að undanförnu sem binda má von-
ir við að geti hleypt auknum krafti í
atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Þar
má nefna að samþykkt liggur fyrir
um lagningu á nýjum flutningslínum
raforku sem auka munu öryggi íbúa
og fyrirtækja á svæðinu verulega auk
þess sem nægilegir raforkuflutningar
eru ein af megin forsendum fyrir vexti
í atvinnuuppbyggingu hér á Suðurnesj-
um. Einnig berast nú mjög jákvæðar
fregnir af miklum framkvæmdum sem
fyrirhugaðar eru á vegum Isavía á al-
þjóðaflugvellinum þar sem m. a. eru
hafnar framkvæmdir við endurbætur
á Flugstöð Leifs Eiríkssonar til þess að
auka afkastagetu og þægindi flugfar-
þega. Á flugvallarsvæðinu er gert ráð
fyrir að á þessu ári hefjist framkvæmdir
við byggingu nýs þjónustuhúss sem
mun hýsa ýmsa þjónustustarfsemi
flugvallarins s. s. vegna brunavarna,
flugbrautahreinsunar o. fl. Ferðaþjón-
usta er vaxandi atvinnugrein á svæðinu
sem binda má vonir við að þróist áfram
með jákvæðum hætti. Fleiri verkefni í
atvinnuuppbyggingu eru fyrirhuguð
sem verður vonandi hægt að greina frá
innan tíðar. Framkvæmdir í bæjarfé-
laginu munu væntanlega hafa í för með
sér þörf fyrir aukið vinnuafl á næstu
vikum og mánuðum í sjávarútvegi,
iðnaði og fleiri starfsgreinum.
Í lok árs 2012 voru íbúar Sandgerðis
1577 og hafði fækkað um liðlega 5% frá
byrjun ársins. Ekki er gott að fullyrða
um hver íbúaþróunin mun verða, en
með auknum atvinnutækifærum eru
bundnar vonir við fjölgun íbúa á ný.
Atvinnuleysi hefur verið hér nokkurt
frá því að efnahagshrunið dundi yfir
á haustdögum 2008. Það hefur þó far-
ið minnkandi og mælist nú um 10%.
Vinnumálastofnun hefur í samvinnu við
sveitarfélög og atvinnurekendur beitt sér
fyrir átakinu „Vinna og virkni“ sem fer
í gang nú í upphafi árs. Með átakinu er
stefnt að því að auðvelda atvinnuleit-
endum sem lengi hafa verið án atvinnu
þátttöku að nýju á vinnumarkaði. Nokk-
ur skortur hefur verið á íbúðarhúsnæði
til leigu þrátt fyrir að mikið af íbúðum
og húsum standi auð. Íbúðalánasjóður
á mestan hluta þessara eigna og hafa
einungis nokkrar þeirra verið leigðar út.
Afar brýnt er að forsvarsmenn Íbúða-
lánasjóðs komi að lausn eftirspurnar
eftir húsnæði í bæjarfélaginu.
Í desember 2012 afgreiddi bæjar-
stjórn Sandgerðisbæjar fjárhagsáætlun
áranna 2013 – 2016. Góð samvinna og
samstaða ríkti í bæjarstjórn um áætl-
unina sem unnin var sameiginlega af
öllum bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnin
hefur verið einhuga í því að ná tökum
á rekstrar- og skuldavanda bæjarsjóðs.
Tekist hefur á síðustu tveimur árum
að hagræða verulega í rekstrarútgjöld-
um sveitarfélagsins án þess að það hafi
komið niður á grunnþáttum í þjónustu
sveitarfélagsins. Unnið hefur verið að
lausn á skuldavanda bæjarsjóðs og
vænta má niðurstöðu í þeim málum
á þessu ári. Megináherslur í fjárhags-
áætluninni eru að veita íbúum góða
grunnþjónustu. Þjónustugjöld hækka
að meðaltali um 5% og haldast þannig
í hendur við almennar verðlagshækk-
anir. Þá er gert ráð fyrir að halda
fjárfestingum, viðhalds- og endurnýj-
unarverkefnum í lágmarki og engar
fjárfestingar eru fyrirhugaðar á árinu
2013. Bæjarstjórn hefur markað þá
stefnu að kaupa til baka grunnskólann,
íþróttamiðstöðina og samkomuhúsið,
sem leigð eru af Eignarhaldsfélaginu
Fasteign hf. Fjögurra ára áætlun Sand-
gerðisbæjar sýnir að stefnt er í jákvæða
átt, skuldir fara lækkandi og jafnvægi
næst í rekstrinum.
Bestu nýárskveðjur til bæjabúa og
annarra Suðurnesjamanna með þökk
fyrir góð samskipti.
Með kveðju,
Sigrún Árnadóttir