Reykjanes - 21.02.2013, Side 9
921. febrúar 2013
mikið áunniSt
í gerðaSkóla
Það er gleðilegt að sjá hversu baráttan gegn einelti hef-ur skilað miklum árangri í
Gerðaskóla í Garði. Reykjanes óskar
nemendum, starfsfólki og foreldrum
til hamingju með þetta.
Niðurstöður úr
eineltiskönnun
Olweusar árið 2012
Samkvæmt könnun sem gerð var
í nóvember sl. mældist einelti í
Gerðaskóla 2,9%. Könnunin fer
fram á rafrænu formi sem unnið
er úr í höfuðstöðvum Olweusar-
verkefnisins í Noregi og eru
spurningarnar rúmlega 40 talsins.
Könnunin er mjög víðtæk og tekur
á flestum þáttum er varða samskipti
og líðan nemenda.
Tölur frá síðasta ári gáfu til kynna
að einelti í Gerðaskóla væri 6% og
hefur því greinilega mikið áunnist
í þessum málum. Meðaltal á lands-
vísu hefur hækkað lítillega og er nú
um 5,2%. Fram kemur í könnuninni
að nemendur bera traust til starfs-
manna skólans og líður vel í skólan-
um. Þeir telja almennt að brugðist sé
skjótt við ef upp koma vandamál er
varða samskipti nemenda.
Þessum góða árangri ber að fagna
og munu starfsmenn halda áfram að
vinna með nemendum gegn einelti
því ávallt má gera betur og gera góð-
an skóla enn betri.
Sævar Baldursson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja
framtíðin liggur í Samvinnu
Ferðaþjónusta á Reykjanesi er ört vaxandi og eru margir aðilar að koma að greininni á einn eða
annan hátt, það fréttist nær daglega af
fólki sem eru að hefja starfsemi eða eru
með áform um slíkt, fjöldi Gistirýma á
Reykjanesi hefur td aldrei verið meira
og Bílaleigum fjölgar hratt. Það má því
segja að ákveðið Gullgrafaraæði hafi
runnið á skeið í ferðaþjónustunni, það
er bæði gott og slæmt að fjölbreytnin
aukist og samkeppni um leið en menn
verða þó að gæta sín ábyrgðin er mikil
gagnvart ferðamanninum, ímyndinni
og samkeppninni.
Ég segi samkeppninni vegna þess
að margir nýjir aðilar í ferðaþjónustu
eru þar vegna þess að þeir ætla að sigra
heiminn á einni nóttu hver í sínu horni.
Framtíð ferðaþjónustunnar á
Reykjanesi liggur í samvinnu hagsmuna-
aðila ekki sundrung, ef við eigum að
eiga einhverja von um að fá ferðamenn
til að staldra við lengur á Reykjanesi þá
Verða aðilar að snúa bökum saman og
vinna að sameiginlegri markaðsetningu
svæðisins sem ein heild, samvinna með
samkeppni, þar kemur endurvakning
Markaðsstofu Reykjaness sterk inn
og með ráðningu starfsmanns hennar
bindum við miklar vonir til þess að fyr-
irtækin sjái hagsmunum sínum borgið
með að taka þátt í því starfi sem þar
framundan er.
Endurmenntun er nauðsynleg og
vill ég nota tækifærið til að benda á
nám hjá mss sem heitir færni í ferða-
þjónustu og er kennt í fjarnámi og er á
raunhæfu verði og jafnvel niðurgreitt af
stéttarfélögum en nokkuð hefur vantað
uppá að ferðaþjónar leiti starfsfólki sínu
menntunar en þetta nám er ekki bara
gott fyrir starfsfólk beinna ferðaþjóna
heldur óbeinna líka, óbeinn ferðaþjónn
er t. d. starfsmaðurinn á bensínstöðinni
sem ferðamaðurinn spyr spjörunum úr
þegar hann greiðir eldsneytið.
Ég óska ferðaþjónum á svæðinu góðs
gengis í baráttunni um gullið.
Soho.
veiSlur við öll tækifæri
Í Grófinni er starfrækt veisluþjón-usta undir nafninu Soho. Veislust-
þjónustan fagnar 5 ára afmæli núna
í vor. Reykkjanes heimsótti Örn hjá
Soho einn góðviðrisdaginn. Örn segir
að veisluþjónusta hans taki að sér að
útbúa veislur fyrir alla mannfagnaði.
Sviðið spannar yfir tímabilið nfrá
fæðingu til greftrunar.
Nú eru framundan fermingarveisl-
ur og mikið hefur verið að gera í árs-
hátíðum. Mikið er einnig að gera í
brúðkaupsveislum. Örn sagði að 80%
af starfsemi hans væri vegna atburða í
Reykjavík. Þegar Reykjanes spjallaði
við Örn hafði hann einmitt séð um
650 manna hádeguisveislu í Laugar-
dalshöllinni.
Hlaðborðin eru nú alltaf vinsælust
ásamt því að smáréttirnir eru einnig í
uppáhaldi hjá mörgum.
Jú, það var heilmikið að gera í
jólahlaðborðunum sagði Örn þegar
ég spurði hann. Það voru allt upp í
10 hlaðborð á dag.
Örn sagði að það nyti einnig
vinsælda að fá veisluþjónustuna í
heimahús. Ég tek að mér veislur fyr-
ir 10-20 manna í heimahúsum sagði
Örn hjá Soho. S. J.
mikil aukning
í ferðaþjónuStu
Móttaka ferðamanna og öll þjónusta í kringum þá er vaxandi atvinnuvegur.
Flugfarþegum Keflavíkurflugvallar
fjölgaði um 12,7% milli áranna 2011
og 2012. Allt útlit fyrir að í ár fjölgi
ferðamönnum til landsins enn frekar.
Hér á Suðurnesjum er aukinn kraft-
ur í að auka þjónustuna við ferðamenn.
Við sjáuum að ný hótel og gisthús taka
til starfa. Bílaleiguflotinn stækkar og
veitingastaðir reyna að ná til sín ferða-
mönnum í auknum mæli. Suðurnesja-
menn þurfa að gera enn meira átak í
að auglýsa svæðið hér upp og fá ferað-
menn til að staldra við. Bláa Lónið er
þekkt og þangað kemur stærsti hluti
erlendar ferðamanna. Það er flott, en
það er svo margt annað sem Suðurnes-
in hafa upp á að bjóða.
Reykjanes hafði samband við Gísla
Heiðarsson hjá gistiheimilinu Garði.
Gísli og hans fjölskylda hefur keypt
nokkur hús og breytt í gistiheimili
ásamt því að byggja nýtt. Gísli sagði
að útlitið í ár væri mjög gott. Það
væri þegar talsvert búið að bóka. Gísli
sagði að nú væru þau einnig kominn
með bílalegu. Reykjanes hafði einnig
samband við Arnar Sigurjónsson hjá
Hótel Bergi. Arnar sagði að starfsemin
gengi mjög vel. Það er talverð aukning
á bókunum, ég held svei mér þá að það
sé helmingi meira en á sama tíma í
fyrra sagði Arnar. Nú er unnið að því
að bæta við nokkrum herberjum á hinu
glæsilega hótel Bergi.
S. J.
framSóknarmenn
vilja fjórðu hæðina
Kristinn bæjarfulltrúi Fram-sóknarflokksins lagði á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
fram eftirfarandi bókun.
Framsóknarmenn í Reykjanesbæ
fagna þeim áhuga, umræðu og umleit-
an sem ólík fyrirtæki hafa sýnt rekstri
á nýju hjúkrunarheimili sem nú rís á
Nesvöllum. Greinilegt er að þar er á
ferð metnaður og fagmennska.
Við óskum þess að friður og sam-
vinna verði til þess að hægt verði að
ráðast í byggingu fjórðu hæðarinnar
og tryggja með því 80 hjúkrunarrými
verði á Nesvöllum. Með því fæst hag-
kvæmasta rekstrareiningin og fjölgun
hjúkrunarrýma fyrir íbúa á Suðurnesj-
um.