Reykjanes - 21.02.2013, Qupperneq 12
21. febrúar 2013
Úti er ævintýri
– af nauðungarSamingum
SjálfStæðiSmanna við kröfuhafa
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykktu á þriðjudag nauðungarsaminga
við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins
Fasteignar (EFF) og staðfestu þar með
endanlega algjört skipbrot hugmynda-
fræðinnar sem ráðið hefur rekstri
þeirra á bænum okkar undanfarin 11 ár.
Það hefur legið ljóst fyrir í tvö ár að
EFF var orðið tæknilega gjaldþrota.
Fara þurfti í nauðungarsaminga við
kröfuhafa félagsins – eini annar val-
kosturinn var gjaldþrot–og nú liggur
niðurstaðan fyrir.
EFF verður áfram til en aðeins sem
beinagrind án starfsmanns en með
þriggja manna stjórn sem hefur það
hlutverk að halda utan um leigusamn-
inga og lán eignanna sem enn eru eftir
í félaginu. Kröfuhafarnir gerðu það að
skilyrði að stjórn félagsins yrðu skipuð
fulltrúum ótengdum sveitarfélögun-
um – sem ber með sér að kröfuhaf-
arnir treysta ekki bæjaryfirvöldum
í Reykjanesbæ. Sjálfstæðismenn í
Reykjanesbæ skipuðu fulltrúa í stjórn
félagsins. Þessi fulltrúi situr ekki í
umboði bæjarráðs eða bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar heldur í umboði sjálf-
stæðismanna. Þetta umboðsleysi vek-
ur áhyggjur – orðin fé án hirðis leita
á hugann.
Nauðungarsamningarnir grund-
vallast á nýjum lánasamningum sem
skuldbinda bæinn okkar til ársins 2040
en fyrri leigusamningar náðu til ársins
2033. Um er að ræða verðtryggð lán í
íslenskum krónum – sem ætti að vekja
hverjum manni hroll.
Reykjanesbær á 54% hlut í EFF. Í
nauðungarsamningunum eru hagstæð
uppkaupsákvæði fyrstu árin en mjög
ólíklegt er að við getum nýtt okkur
þau vegna bágrar stöðu bæjarins. Ólíkt
Sandgerðingum sem ætla að nýta sér
uppkaupaákvæðin sem fyrst og stefna
að því að kaupa til baka helming eigna
sinna.
Samkvæmt nauðungarsamingunum
tapar Reykjanesbær 1300 milljónum í
hlutafé sem greiddar voru á sínum tíma
í beinhörðum peningum og tekur á sig
allavega um 100 milljónir af skuldum
Álftaness. Í nauðungarsamningum
Álftaness voru skuldir skildar eftir í
EFF og þetta er okkar hluti.
Verið er að ýta kostnaði inn á næsta
kjörtímabil. Þannig senda sjálfstæðis-
menn kostnaðinn inn í framtíðina til
þess að auðvelda sér rekstur bæjarins
út kjörtímabilið og gera eitthvað svona
smart í lokin. Kannski klára Stapann?
Minnismerki Fasteignarævintýrisins
sem kostar okkur 100 milljónir á ári.
Allt tal um mikla lækkun á leigu-
greiðslum er skrumskæling á stað-
reyndum. Reykjanesbær tekur á sig allt
viðhald utan sem innan á eignunum
sem gerir það að verkum að heildar-
kostnaðurinn verður rúmlega millj-
arður á ári frá árinu 2015. Nema að
kostnaðurinn aukist enn meira vegna
verðtryggðra lána?
Nauðungarsamningarnir eru bein
ávísun á þröng kjör bæjarins til langrar
framtíðar og gerðir fyrst og fremst á
forsendum lánadrottna Eignarhalds-
félagsins Fasteignar. Þeitr taka mið af
hagsmunum meirihluta sjálfstæðis-
manna en ekki íbúa Reykjanesbæjar.
Þetta eru nauðungarsamingar sjálfstæð-
ismanna við kröfuhafa – og á þeirra
ábyrgð.
Eysteinn Eyjólfson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í
Reykjanesbæ
FORVAL
Íþróttamiðstöðin í Garði - Viðbygging
Sveitarfélagið Garður auglýsir eftir áhugasömum
aðalverktökum til að taka þátt í forvali vegna lokaðs
útboðs. Um er að ræða fullfrágengna 493 m2
viðbyggingu sem reist verður ofan á núverandi
þjónusturými íþróttamiðstöðvarinnar.
Viðbyggingin verður steinsteypt, múrhúðuð og máluð
að utan, einangruð að innan, gluggar úr áli og þak-
virki úr pappaklæddum samlokueiningum. Áætlað er
að framkvæmdir geti hafist frá og með 25. mars
2013 og er miðað við að þeim verði að fullu lokið 10.
janúar 2014.
Áhugasamir sæki um forvalsgögn á netfanginu
petur@verkmattur.is og gefi upp nafn fyrirtækis og
upplýsingar um tengilið. Forvalsgögn verða send út
á tölvutæku formi frá og með föstudeginum
22. febrúar 2012.
Umsóknum skal skila eigi síðar en kl. 13.
mánudaginn 4. mars 2013 á bæjarskrifstofur
sveitarfélagsins Garðs.
Niðurstöður forvals verða kynntar 8. mars 2013.
Fjórir aðilar verða valdir til þátttöku í útboðinu.
Gólfhitakerfi
Ekkert brot ekkert flot
• Þægilegur hiti góð hitadreifing
• Hitasveiflur / Stuttur svörunartími
• Aðeins 12mm þykkar hitadreifiplötur
• Fljótlegt að leggja
• Ekkert brot ekkert flot
• Dreifiplötur límdar beint á gólfið
• Gólfefni lagt beint á dreifiplötur (flísar, parket)
• Hentar vel í eldra húsnæði jafnt sem ný hús og
sumarhús
• Flooré gólfhitakerfi er einfalt, fljótlegt og
þægilegt
Skemmuvegur 10 (blá gata) 200 Kópavogur
Sími 567 1330 Fax 567 1345 www.hringas.is
12
OPNUNARTÍMI
mánudaga - föstudaga 07:00-18:00
laugardaga 08:00-16:00
sunnudaga 09:00-16:00
Sigurjónsbakarí - Hólmgarði 2 - 230 - Reykjanesbæ
NÝ BÖKUÐ BRAUÐ
ALLA DAGA
VERIÐ VELKOMIN
Í SIGURJÓNSBAKARÍ
HÓLMGARÐI
lifandi Samfélag
–Sterkari einStaklingar
Vinstri hreyfingin–Grænt framboð hefur á síðasta kjör-tímabili lagt áherslu á sam-
vinnu við landshlutasamtökin og veitt
í samvinnu við þau fjölmarga styrki til
að efla menningu og atvinnu í landinu.
Tugum milljóna hefur verið veitt til
Suðurnesja til ýmis konar verkefna
sveitarfélaganna, einstaklinga, félaga-
samtaka eða stofnanna. Vinstri Græn
hafa ekki trú á að stóriðja og framtak
stórfyrirtækja séu best til þess fallin
að byggja upp íslenskt samfélag. Því
hafa vinstri Græn lagt megin áherslu
á smærri verkefni, listsköpun, hönnun
og ferðamennsku og hefur það borið
rækilegan ávöxt m. a. hér á Suðurnesj-
um.
Með áherslu á menningu, ferða-
mennsku og samvinnu fyrirtækja hefur
ríkið stutt við verkefni eins og Tónlist-
arhátíðina á Ásbrú, fornleifarannsóknir
í Höfum, Safnahelgi á Suðurnesjum,
hátíðina List án landamæra, greiningu
á mikilvægum fuglaskoðunarstöðum á
Suðurnesjum, Listahátíð barna, rann-
sóknir á gömlum kumlum í Garði,
málþing um 140 ára sögu skólahalds
í Vatnsleysustrandahreppi, ljós-
myndasöfnun í Sandgerði, merkingu
gönguleiða í Grindavík, undirbúning
að stofnun og uppsetningu á Guðbergs-
stofu í Grindavík, sýningu um norræna
goðafræði í Reykjanesbær, vefræna
útgáfa Myndasafns Reykjanesbæjar,
uppbyggingu og rannsóknir í Þekk-
ingarsetri Suðurnesja í Sandgerði, Báta-
safn Gríms Karlssonar, Óperuhátíð í
Reykjanesbæ, merkingar sögufrægra
staða á Rosmhvalanesi, söfnun efnis
um líf og starf Rúnars Júlíussonar og
skólasafnið í Norðurkoti á Vatnsleysu-
strönd svo fátt eitt sé nefnt.
Menntun er forsenda framfara og
nýsköpunar. Framtíð Íslendinga í sátt
við umhverfið byggir á þekkingarauði
þjóðarinnar. Að styrkja menningu og
uppbyggingu lítilla sprotafyrirtækja á
landsbyggðinni byggir undir þann auð
sem býr í mannlífinu á hverjum stað.
Slík verkefni stuðlað að því að íbúar eru
meðvitaðri um umhverfið sitt og þær
rætur sem þeir hafa í sinni heimabyggð.
Þannig byggjum við upp heilbrigt, lif-
andi samfélag þar sem maður er manns
gaman.
Arndís Soffía Sigurðardóttir Lög-
fræðingur 1. sæti VG í Suðurkjördæmi
Inga Sigrún Atladóttir Guðfræðing-
ur 2. sæti VG í Suðurkjördæmi
Bæjarstjórn Garðs.
unnið að því
að garðvangur
verði áfram
Starfræktur
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs vinnur markvisst að því að Garð-
vangur verði áfram starfræktur hér í
Garði og er málið í farvegi á samráðs-
vettvangi bæjarstjóra sveitarfélaga
sem standa að rekstri DS.
ferSkir
vindar í
garði
Á síðasta fundi Bæjarráðs Garðs var lögð fram til umræðu drög
að samningi við Ferska vinda um að
hátíð verði haldin í desember 2013
og í janúar 2014, ásamt drögum að
kostnaðaráætlun.
Samþykkt samhljóða að fela
bæjarstjóra að vinna áfram að gerð
samnings.
aðalfundur
9. marS
Félag eldri borgara á Suðurnesj-um heldur aðalfund sinn
laugardaginn 9. mars. kl.13:30 á
Nesvöllum.