Reykjanes - 21.03.2013, Síða 6
6 21. mars 2013
Líf án streitu
- lærðu að njóta lífsins
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja njóta lífsins, lifa lífinu aðeins
hægar og huga að andlegri og líkamlegri líðan. Dvölin gefur
einnig einstakt tækifæri til að taka upp nýjar og skynsam-
legar leiðir hvað varðar hreyfingu, næringu og svefn.
Innifalið: Ljúffengur og hollur matur, skipulögð dagskrá,
hugleiðsla og jóga, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og
líkamsrækt. Einnig nudd og val um ýmsar meðferðir.
Verð á mann 109.900 kr. ef bókað er fyrir 20. mars.
Eftir 20. mars kostar heilsudvölin 121.900 kr.
7 daga heilsudvöl 14.-21. apríl
Nánari upplýsingar í síma 483 0300 og á vefsíðunni www.hnlfi.is
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Aukadagur fyrir þá sem vilja lengja dvölina er 9.900 kr. pr. sólarhring
PÁSKATILBOÐ
Grill sem endastSmiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið laugardaga til kl.16
FULLT VERÐ
149.900
129.900
18,7
kw/h
FULLT VERÐ
59.900
49.900
FULLT VERÐ
109.900
99.900
www.grillbudin.is
13,2
kw/h
ÞETTA ER AÐEINS BROT
AF ÞEIM VÖRUM SEM
ERU Á TILBOÐI
Nýtt kortatímabil*
* Á ekki við um öll kort
veiðar á sæbjúgu
Mars mánuður hefur verið nokkuð skrýtin, það gaf á sjóinn í 2 daga síðan kom
bræla í hátt í viku og þegar henni lauk
þá var kominn blíða og allir fóru á
sjóinn. Fyrir bræluna þá var afli þeirra
línubáta sem fóru á sjóinn ansi góður.
Á meðan að þessari brælutíð stóð þá
færðist loðnan yfir svæðið og þegar
brælunni lauk þá má segja að afli
línubátanna hafi hrunið niður. Það
sem er kanski skrýtnast við þetta er
að á meðan að afli línubátanna hef-
ur verið mjög slakur eftir bræluna
þá hefur afli handfærabátanna verið
ansi góður. Eitt besta dæmið um þetta
er smábáturinn Líf GK sem rær frá
Sandgerði. Í allan vetur hefur Líf GK
verið að róa á línu með 12 bala og
hefur fengið allt uppí 3,1 tn á þá bala
og það gerir um 260 kg á bala. Núna
í blíðunni þá fór aflinn hjá Líf GK
undir 100 kíló á bala. Báturinn hefur
farið einn róður á handfærin og fékk
í þeim róðri 2,8 tonn.
Gríðarlegur fjöldi smábáta hefur
verið að róa frá Sandgerði og mest-
megnis handfærabátar. Og hafa þeir
allir fiskað vel. Hérna skulum við
kíkja á nokkra smábáta sem eru undir
10 BT að stærð. Fiskines KE var með
8,6 tn í 4, þar af 2,6 tn í einum róðri.
Abby GK 5,5 tn í 4 og þar af 2,4 tn í
einni. Í Grindavík var Hrappur GK
með 7,5 tn í 4 og þar af 2,9 tonn í
einni löndun.
Af stærri smábátunum þá er það
sama þar. Reyndar hefur Bjössa skip-
stjóra á Staðarvík GK gengið nokkuð
vel því báturinn hefur einbeitt sér að
steinbít og fiskað vel. Er báturinn
kominn með 19 tn í 6 róðrum. Maggi
Jóns KE 19 tn í 5. Margir smábátanna
eru komnir til Grindavíkur og allir
neðantaldir bátar hafa verið að landa
þar. Óli á Stað GK er með 26 tn í 5.
Þórkatla GK 20 tn í 5, Hópsnes GK
26 tn í 5. Pálína Ágústdóttir GK 19
tn í 4. Muggur KE 12 tn í 3, Steini
GK 12 tn í 4.
Handfærabátar í þessum stærðar-
flokki hafa fiskað vel. Gosi KE sem
áður hét Fylkir KE er með 8,6 tn í 4
og þar af 3,2 tn mest í róðri. Hringur
GK sem landar í Sandgerði er með
13 tn í 6.
Siggi skipstjóri á Svölu Dís KE var
búinn að vera á línuveiðum í febrúar
fór í róður eftir bæluna og landaði
3,1 tonni. Skipti þá snarlega yfir á
netin og er búinn að fá tæp 9 tonn í
2 róðrum síðan þá.
Annars er aflaskipið Erling KE ekk-
ert búið að landa í mars en á meðan
þá hafa þeir fáu netabátar sem eru
gerðir út héðan frá Suðurnesjunum
mokfiskað. Happasæll KE er með 89
tn í 8 og þar af 19 tonn í einum róðri.
Grímsnes BA 92 tn í 9 og þar af tæp
20 tonn í einni löndun. Maron HU 77
tn í 9. Birta SH sem landar í Sandgerði
56 tn í 6 og báturinn kom drekkhlað-
in til hafnar í Sandgerði með öll kör
og lestina kjaftfulla um daginn, sem
reyndar vigtaði ekki nema 13 tonn.
Reyndar landaði báturinn tvisvar
deginum eftir um 16 tonnum sem
fengust í aðeins 4 trossur. Keilir SI
sem Hólmgrímur útgerðarmaður
Grímsnes BA og Marons HU er með
á leigu er með 59 tn í 8, mest tæp 14
tonn í róðri.
Dragnótaafli hefur verið mjög góð-
ur og strákarnir á Sigurfara GK hafa
mokveitt og eru búnir að landa 168
tonnum í 9 róðrum og mest komið
með tæp 30 tonn að landi. Þess má
geta að þegar þessi orð eru skrifuð
þá er Sigurfari GK aflahæstur drag-
nótabáta í mars á landinu og er í
harðri baráttu við útilegubátinn Jón
á Hofi ÁR sem er komin með 166 tn
í 2 löndunum. Aðrir bátar héðan eru
með mun minni afla en Sigurfari GK.
Örn KE er með 96 tní 7. Siggi Bjarna
GK 76 tn í 5 og þar af 22 tn í einni
löndun. Benni Sæm GK 62 tn í 5 og
þar af 21 tonn í einni löndun. Farsæll
GK 53 tn í 5, Arnþór GK 52 tn í 5.
Njáll RE 33 tn í 3 og þar af 17 tonn í
einni löndun.
Línubáturinn Jóhanna Gísladóttir
ÍS setti Íslandsmet í febrúar þegar að
báturinn landaði 574 tonnum sem er
mesti afli sem línubátur hefur landað
á einum mánuði . Og bátuinn byrjar
mars með látum því landað var út
bátnum 153 tonnum sem er mesti
afli sem báturinn hefur komið með að
landi í einum róði. Er núna báturinn
kominn með 257 tn í 2. Páll Jónsson
GK er með 208 tn í 2 og þar af 116
tonn í einni löndun.
Rækjuveiðar Nesfiskstogaranna
ganga þokkalega en mikill fiskur er í
afla skipanna sem er allur ekinn suð-
ur til vinnslu . Berglín GK er búinn
að landa 12 tonnum af rækju og 25
tonnum af fiski í 2 löndunum og Sóley
Sigurjóns GK 26 tonnum af rækju og
36 tonnum af fiski.
Og svo að lokum er rétt að fjalla
hérna um veiðar sem við höfum
ekki fjallað um hérna áður, en það
eru veiðar á sæbjúgu. Í Sandgerði er
sæbjúguvinnsla og tveir bátar hafa
landað sæbjúguafla. Tungufell BA
hefur landað 43 tonnum í 3 róðum
í Keflavík og Drífa GK sem landar í
Sandgerði hefur landað 35 tonnumí 4
róðrum mest 17 tonn í róðri. Þar um
borð er skipstjóri sem er kanski mest
þekktastur fyrir að vera mikill neta-
skipstjóri og heitir sá maður Grétar
Mar Jónsson. Það er hægt að skrifa
marga pislta um hann og slaginn sem
hann átti við í mörg ár við Óskar Þór-
hallson fyrrum skipstjóra á Arney KE.
Gísli R.
Aflafréttirsuðurnesjamenn kunna
að meta góða skó
Hún er flott Skóbúðin að Hafnargötu 29 í Keflavík sem Reykjanes heimsótti
nýlega. Við hittum fyrir Dalrósu Jó-
hannsdóttur, en hú er annar eigandi
verslunarinnar. Hún sagðist hafa keypt
helmings hlut í skóbúðinni í ágúst í
fyrra. Meðeigandi hennar, Hermann,
hefur rekið búðina í 10 ár
Dalrós segir Suðurnesjamenn vera
góða viðskiptavini enda reynir verslun-
in að bjóða uppá gott úrval af alls konar
skóm. Hún segir að konur séu stærri
hópur viðskiptavina en karlmenn séu
meira og meira að átta sig á að Skóbúð-
in er með gott úrval af herraskóm bæði
spariskó og aðra. nefndi hún t. d. Ecco
ásamt fleiri góðum merkjum. Starfsfólk
Flugstöðvarinnar og Bláa lónsins not-
færa sér góða þjónustu verslunarinn-
ar. Dalrós sagði Skóbúðina vera mjög
samkeppnisfær hvað varðaði verð.
Gott úrval er einnig í búðinni af
barnaskóm.
Ég spurði Dalrósu hvort við eldri
borgarar fengjum afslátt og sagði hún
að það væri 10 % .