Reykjanes - 24.04.2013, Blaðsíða 9

Reykjanes - 24.04.2013, Blaðsíða 9
924. apríl 2013 biSkup mæTTi á æFingu Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands var í heimsókn á Suðurnesjum fyrir stuttu. Bisk- up heimsótti kirkjur og söfnuðina. Mætti í fermingu og heimsótti vinnu- staði og stofnanir. Einn morguninn mætti Agnes í Reykjaneshöllina og tók nokkrar léttar æfingar með eldri borgurum undir stjórn Kjartans Más- sonar, kennara. Saga Akademía Færni í málFræði númer eiTT, TVö og Þrjú Á efri hæð Framsóknarhússins á Hafnargötunni er starf-ræktur málaskóli. Reykjanes leit við einn daginn til að forvitn- ast um starfsemina. Við kennum íslensku fyrir útlendinga sagði Karl Smári Hreinsson forstöðumaður skólans. Nemendur hjá okkur hafa verið frá fjórum heimsálfum og 14 löndum. Hjá okkur eru 120 nemend- ur fyrst og fremst að læra íslensku, en 10 eru í enskunámi og nokkrir eru í spænsku. Við erum einnig með kennslu í Garði og Sandgerði. Flestir sem stunda nám hjá okkur koma frá Póllandi eða 79%. Við erum fimm sem komum að kennslunni en aðallega erum við tvö sagði Karl Smári. Með mér er Daria Luczków. Starfsmenntasjóðir hafa verið mjög viljugir til að taka þátt í námskostnaði nemendanna. Við leggjum mikið uppúr einka- kennslu til að ná góðum árangri. Það skiluir okkur frá öðrum. Við leggjum einnig höfuðáherslu á færni nemenda í málfræði. það er númer eitt, tvö og þrjú í okkar kennslu. Karl Smári sýndi mér tvær kennslubækur sem hann hefur samið. Útgáfan er styrkt af Landsmennt og Starfsafli. Kennslubækurnar litu vel út og eru örugglega góðar til að auka færni nemenda við að læra íslensku. Á myndunum er Karl Smári Hreinsson og Daria kennari og Joanna nemandi. Brunavarnir Suðurnesja 100 ára. glæSilegT SlökkVi- liðSminjaSaFn opnað Það var margt um manninn íþegar Brunavarnir Suðurnesja fögnuðu 100 ára afmæli sínu í Rammahúsinu. Þar var einnig fagnað að fyrsta slökkviliðsminjasafn á Íslandi var opnað. Í tilefni tímamótanna var hátíðardagskrá. Brunavörnum bárust margar góðar kveðjur og gjafir. M. a. afhentu fulltrúar sveitarfélagnna tvær milljónir til tækjakaupa.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.