Reykjanes - 24.04.2013, Blaðsíða 14

Reykjanes - 24.04.2013, Blaðsíða 14
14 24. apríl 2013 Grindavík ungT Fólk og lýðræði Margrét Rut Reynisdóttir og Katla Marín Þormarsdóttir fóru á dögunum sem full- trúar ungmennaráðs Grindavíkurbæj- ar á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði á Egilsstöðum. Með þeim var Sigrún Ísdal Guðmundsdóttir starfsmaður bæjarins. Fjallað var umum þátttöku ungs fólks í skipulagsmálum. Hlýtt var á fyrirlestra og svo voru vinnustofur og ýmislegt fleira skemmtilegt gert eins og kvöldvökur. Í lok ráðstefnunar var eftirfarandi yfirlýsing send út á fjölmiðla: „Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, haldin á Egilsstöðum 20.–22. mars 2013, skorar á íslensk stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoð- ana á málefnum samfélagsins, einkum þau sem varða ungmennin sjálf. Bestu málsvarar ungmenna eru ungmennin sjálf. Virk lýðræðisþátttaka ungmenna snýst um meira en árlegan fund með bæjarstjórn fyrir framan myndavélar. Hún snýst um samræður og samskipti alla daga ársins. Stjórnvöld verða að hafa ungmenni í huga og með í ráðum þegar þau fjalla um tillögur sínar og að ungmenni séu í stöðu til að hafa áhrif á þau málefni er þau snerta. Í þessu sambandi minnir ráðstefnan sérstaklega á 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt barna og ungmenna til að láta skoðanir sínar í ljós og hafa áhrif á öll mál er þau varða og tekið sé réttmætt tillit til þeirra í samræmi við aldur og þroska. Sérstak- lega sé höfð í huga 4. grein sáttmálans sem fjallar um ábyrgð ríkis og sveitar- félaga til að tryggja þau réttindi sem Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður á um. Ráðstefnan bendir einnig á 17. grein um aðgang að upplýsingum sem stuðli að alhliða þroska. Þátttaka í lýðræði og samfélaginu krefst þjálfunar. Enginn einstakling- ur stekkur fullmótaður fram á sjón- arsviðið. Ráðstefnan hvetur því öll sveitarfélög landsins til að koma á fót ungmennaráðum. Ráðin hafi sömu stöðu og aðrar nefndir sveitarfélaga, til dæmis hvað varðar vald yfir fjár- magni. Ráðin séu sýnileg og framboð í þau opin hverju því ungmenni sem áhuga hefur. Ráðstefnan fagnar því að stjórnvöld hafi brugðist jákvætt við áskorun henn- ar frá því í fyrra og fullgilt Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Að sama skapi er mikilvægi þess að fullgildingin fái þá umræðu sem hún verðskuldar ítrekað og stjórnvöld virði þá skuld- bindingu sem felst í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ráðstefnan þakkar Ungmennafélagi Íslands fyrir að standa fyrir ráðstefnu á borð við Ungt fólk og lýðræði. Hún gefur ungu fólki færi á að mynda tengsl, ræða sín viðhorf, koma þeim á fram- færi og sanna fyrir því að það geti haft áhrif. Við hvetjum til þess að ráðstefna sem þessi verði haldin á hverju ári og megi aðrir taka UMFÍ sér til fyrir- myndar. “ (Heimasíða Grindavíkur) lönduðu SeX ÞúSund Tonnum Það er búið að vera ansi rólegt í höfnunum á Suðurnesjunum því hrygningastoppið var við lýði enn því lauk síðastliðinn sunnu- dag. Reyndar fóru línubátar frá Ein- hamri í Grindavík á sjóinn og fóru þá útað Eldey. Afli bátanna var misjafn, Auður Vésteins GK var með 1,8 tn, Sæborg SU 2,8 tn og Gísli Súrsson GK 6,7 tn. Dragnótabátarnir mokveiddu fyrir stoppið og þá sérstaklega Nes- fiskbátarnir. Siggi Bjarna GK fékk t. d 84 tn í einungis 3 löndum og kom mest með 33 tonn að landi. Og er þessi 33 tonna róður stærsti róður bátsins frá upphafi. Arnþór GK mok- fiskaði líka því hann var með 82 tn í 3 róðrum og 30 tonn mest í stærsta róðri sínum Einu bátarnri sem hafa róið eru nokkir grásleppubátar og sæbjúgu- bátarnir tveir sem eru gerðir út héðan. Drífa GK hefur landað 54 tonnum í 7 róðrum og Tungufell BA 92 tonn- um í 8 róðrum. Hafsvala HF er hæst grásleppubátanna og er með 20 tn í 15 róðrum, en báturinn landar í Grindavík. Í Sandgerði er Guðrún KE með 15 tn í 10 og Svala Dís KE 9 tn í 7 róðrum. Þrír bátar sem voru gerðir út héð- an á vertíðinni eru farnir norður. Og eru það línubátarnir Stormur SH og Gulltoppur GK og grásleppubáturinn Birta Dís GK. Allir bátarnir eru að landa á Siglufirði og er Birta Dís GK kominn með 16 tn 10. Gulltoppur GK er búinn að landa 33 tonnum í 4 róðrum og þar af tæp 15 tonn í einni löndun sem fékkst á 60 bala. Ekki voru komnar aflatölur fyrir Storm SH þegar þessi pistlill var skrifaður. Þar sem lítið er um að vera núna þá er ekki vitlaust að kíkja aftur í tí- mann og við skulum fara til ársins 1980 og skoða þá hvað var um að vera á Suðurnesjunm í Apríl. En á þeim tíma þá var ekki kominn kvóti né var hrygningastoppið við lýði. Allir bátarnir sem við skoðum voru á neta- veiðum og eru þeir ansi margir. Þá var langmestur fjöldi bátanna gerður út frá Grindavík. Grindavík, Byrjum á bátunum sem fóru í 19 róðra. Hafberg GK 311 tn, Geirfugl GK 384 tn( 20 tonn í róðri að meðaltali), Hrafn Sveinbjarnars- son III GK 248 tn, Höfrungur II GK 297 tn. Jóhannes Gunnar GK sem var aflahæstur með 394 tn í 19. Búðanes GK 291 tn, Hrungnir GK 284 tn, Vörður ÞH 376 tn og Hópsnes GK 281 tn. Í 18 róðra fóru, Gísli Lóðs GK 207 tn, Gaukur GK 331 tn, Oddgeir ÞH 263 tn, Skúmur GK 335 tn, Hrafn Sveinbjarnarsson GK 234 tonn. Í 17 róðra fóru Már GK 169 tn og mest 20 tn í einni löndun, Þorsteinn Gísl- asson GK 131 tn og Vörðunes GK sem fiskaði ansi vel og var með 209 tn eða 12 tonn í róðri. Tveir bátar fóru í 16 róðra, Hrafn Sveinbjarnarsson II GK 359 tn og mest 45 tonn í róðri. Og Hringur GK frá Hafnarfirði 182 tonn. Fjölnir GK var með 257 tn í 14 og Hrafn GK 206 tonn í einungis 3 róðrum. Athyglisverðasti báturinn er þó Sæljómi GK sem var 11 brl eikarbátur enn báturinn land- aði 108 tonnum í 13 róðrum eða 8,3 tonn í róðri, sem þýðir að báturinn var með fullfermi í öllum róðrunum sínum. Samtals voru þetta 23 bátar sem lönduðu sex þúsund tonnum. Sandgerði, þar var aflinn nokkru minni en í Grindavík enda voru í Grindavík mun fleiri stórir stálbátar. Arney KE var hæst í Sandgerði með 325 tn í 18. Aðrir sem fóru í 18 róðra voru, Víðir II GK 231 tn, Hafnarberg RE 135 tn, Jóhannes Jónsson KE 106 tn, Sigurjón GK 137 tn og Þorkell Árnasson GK 154 tn. Í 17 róðra fóru Bergþór KE 181 tn, Hólmsteinn GK 137 tn, Bliki ÞH 135 tn og Skálavík ÁR 180 tn. Þorsteinn KE var með 106 tn í 16. Í 15 róðra fóru Mummi GK 114 tn, Sædís ÁR 202 tn, Grunnvíkingur RE 143 tn og Hvalsnes KE 151 tn. Samtals gerir þetta 2400 tonn af 16 bátum. Keflavík þar var Sandafell GK hæst með 270 tn í 19. Svanur KE var með 108 tn í 18. Bátar sem fóru í 17 róðra voru, Vatnsnes KE 158 tn, Gunnar Hámundarsson GK 109 tn og Boði KE 221 tn. Tveir bátar fóru í 16 róðra Vonin KE 145 tn og Baldur KE 151 tn og mest 20 tonn í einum róðri. Happasæll KE var með 155 tn í 15. Tveir bátar fóru í 14 róðra og voru það Jarl KE 168 tn og Pétur Ingi KE 237 tn. Þuríður Halldórsdóttir GK var með 163 tn í 13 og Búrfell KE 127 tn í 12. Samtals gerir þetta 2200 tonn. Í Vogum var svo Ágúst Guðmunds- son GK sem landaði 112 tonnum í 16 róðrum. Aflafréttir Karla Marín, Margrét rut og Sigrún ísdal. Ókeypis Blóðsykurmælar og strimlar fyrir sykursjúka Þú nærð tökum á sykursýkinni með því að mæla blóðskykurgildið þitt reglulega Bjóðum Medismart Zapphiro blóðsykurmæla og strimla frá Swissneska fyritækinu Lobeck Medical Ltd. * Mjög einfaldur í notkun, stór skjár, léttur og handhægur * "No Coding" - þarf aldrei að núllstilla (calibrera) * Þarf mjög lítið magn til mælinga * 0,6 µl * Mælir blóðsykur á bilinu 1,1-35 mmol/L * Mæling tekur aðeins 5 sek. * Geymir 480 mælingar í minni * Hægt að tengja við tölvu blóðsykursmælir Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum Apótek Suðurnesja er opið Mánud. - föstud. 9:00-19:00 Laugardaga 14:00-18:00 Velkomin í lágt lyfjaverð í Apóteki Suðurnesja

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.