Reykjanes - 13.12.2012, Qupperneq 11
1113. desember 2012
Góð kaup á baSar
Það var mikið um að vera á Nes-völlum einn föstudaginn um mánaðamótin. Félag eldri borg-
ara með sinn árlega basar. Margt var
þar til bæði matarkyns og fjölbreytt
úrval af ýmsu öðru. Kaffi og vöflur
voru á boðstólum. Ágóðnn rennur
til Velferaðsjóðs kirkjunnar samtals
38 þús. krónur.
fjárlöG oG löGGæSla
Nú standa yfir á Alþingi um-ræður um fjárlög fyrir árið 2013. Tillaga ríkisstjórnar-
flokkanna ber öll merki þess að kosn-
ingar eru í nánd en gert er ráð fyrir að
fjármunum verði varið til þess að setja
í gang ýmsar framkvæmdir sem ljóst er
að kalla á enn frekari útgjöld ríkissjóðs
á komandi árum. Athygli vekur að ekki
er tekið á þeim vanda sem við blasir
varðandi stöðu löggæslumála á Ísland
í kjölfar þess mikla niðurskurðar sem
staðið hefur yfir undanfarin ár. Ljóst
er að draga hefur þurft úr útgjöldum
ríkissjóðs en gæta þarf að því að ganga
ekki of nærri öryggi íbúa landsins líkt
og ég tel að gerst hafi varðandi lög-
gæslumálin en uppreiknað hefur verið
dregið úr fjárveitingum til lögreglunn-
ar í landinu um 2,8 ma. króna á undan-
förnum árum.
Verkefni Lögreglustjórans á
Suðurnesjum eru viðamikil og hefur
embættið sætt sömu sparnaðarkröfu og
önnur lögregluembætti. Embættið situr
einnig uppi með gamlan halla upp á 186
milljónir en starfsmönnum embættis-
ins hefur með samstilltu átaki tekist,
samhliða niðurskurðinum, að greiða
hallan niður um tæpar 50 milljónir. Á
sama tíma hafa verkefni embættisins
tengd aukist verulega vegna aukinnar
flugumferðar um Keflavíkurflugvöll.
Aukin umsvif flugrekstraraðilar skil-
ar sér í auknum skatttekjum fyrir hið
opinbera. Samkvæmt skýrslu Oxford
Economics um efnahagslegan ábata
flugrekstrar á Íslandi er beint framlag
flugrekstrar á Íslandi um 43,4 millj-
arðar króna, þar af eru skattar 10,1
milljarður króna. Ljóst er að flug-
völlurinn skapar þjóðarbúinu mikl-
ar tekjur og eru tækifæri fólgin í því
að sinna þeirri þjónustu vel. Skilvirk
þjónusta er forsenda þess að hægt sé
að standa við 35 mín tengitíma sem
skilgreindur er fyrir Keflavíkurflugvöll
og forsenda leiðarkerfis stærsta not-
anda flugvallarins. Farþegaspá gerir ráð
fyrir áframhaldandi auknum farþega-
fjölda . Flugvöllurinn getur því skilað
þjóðarbúinu enn meiri tekjum ef rétt er
haldið á spöðunum. Við aðra umræðu
fjárlaga er lögð fram tillaga um að bæta
32 milljónum króna við fjárveitingar
embættisins vegna verkefna tengdum
flugvellinum og því bera að fagna.
Ljóst er að í fjárlögum 2013 er ekki
tekið á vanda lögreglunnar í landinu
í kjölfar þess gríðarlega niðurskurð-
ar sem löggæslan hefur þurft að sæta
undnafarin ár. Alþingi ber við vinnslu
fjárlaga ársins 2013 að forgangsraða í
þágu öryggis íbúanna.
Höfundur er
Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi
Gleðileg jól
og farsælt
komandi
nýtt ár
SANDGERÐISBÆR
Verkalýðs- og
sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis