Reykjanes - 13.12.2012, Blaðsíða 14

Reykjanes - 13.12.2012, Blaðsíða 14
14 13. desember 2012 oddný með bók? Snjókallinn hefur hlerað að Odd-ný G. Harðardóttir forystumaður Samfylkingar í kjördæminu sitji nú drjúgum stundum við skriftir. Eftir því sem Snjókallinn hlerar er hér um að ræða bók með heitinu "Meiri skattar á allt og alla". Þann stutta tíma sem Odd- ný sat í embætti fjármálaráðherra lagði hún höfuðáhreslu á hækkun skatta. Sérílagi má þar nefna skattlagningu á gistingu. Gjörsamlega galin hugmynd segir fólk í ferðaþjónustu. Kjósendur á Suðurnesjum vita hvers vænta má kjósi menn Samfylkinguna í kosningunum í apríl n. k. Enn meiri skattar. Snjó kall inn skrif ar: Þrjár flottar frá Veröld. veröld Gefur út þrjár athyGliSverðar bækur í jólabókaflóðinu Átök og uppgjör. Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins skrifar um Sjálfstæðis- flokkinn í bók sem ber yfirskriftina Átök og uppgjör. Styrmir þekkir vel til starfa Sjálfstæðisflokksins gegnum árin. Í bók- inni er greint frá átökum um ráðherra- stóla, formennsku í flokknum, stöðu seðlabankastjóra eða hvort sprengja ætti ríkisstjórn. Sagt er frá hatrömmum deilum innan flokksins. Fróðleg bók fyrir allt áhugafólk um stjórnmál. 100 geggjuðustu bílarnir. Í bókinni er ótrúlegt samsafn bifreiða. Liðsmenn Top Gear sjónvarpsþáttanna tína hér til stórkostlegustu bíla sem framleiddir hafa verið, en líka þá allra vitlausustu. Hér eru furðufyrirbæri og svo hraðskreiðustu sportbílar. Ómis- sandi staðreyndir fyrir allt áhugafólk um bíla. Kuldi. Enn ein spennusagan kemur nú út eftir Yrsu Sigurðardóttur, Kuldi. Hrollvekj- andi saga. Kuldi, er sjálfstæður tryllir í anda verðlaunabókarinnar Ég man þig. Þegar ungur maður fer að rann- saka upptökuheimili fyrir unglinga á áttunda áratug liðinnar aldar taka undarlegir atburðir að skekja tilveru hans og dóttur hans. Ómissandi bók fyrir alla spennufíkla. 90 ára afmæli í voGunum Guðrúnar Lovísu Magnúsdóttur frá Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd eða Lúlla í Lyngholti í Vogunum fagnar 90 ára afmæli 18. desember. Af því tilefni verður hún með "Lúllu kaffi" í Tjarnar- sal, Stóru-Vogaskóla laugardaginn 15. desember á milli kl. 14 og 18. Þeir sem eitthvað þekkja til hennar eru hjart- anlega velkomnir til að kasta á hana kveðju og þiggja veitingar í hennar boði. Eiginmaður Guðrúnar Lovísu var Guðmundur Björgvin Jónsson (f. 1. okt. 1913 - d. 23. sept. 1998) frá Efri- Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd. Saman áttu þau 12 börn og eru niðjar þeirra orðnir 113. Guðrún Lovísa magnúsdóttir eða Lúlla í Lyngholti eins og hún er oft- ast kölluð.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.