Reykjanes - 31.10.2013, Page 8
8 31. október 2013
Hollt og gott og heimilislegt
Einhver þekktasti matreiðslu-maður á Suðurnesjum er örugg-lega Axel Jónsson. Hann hefur
verið í matarbransanum frá því árið
1978 og er á fullu enn. Flestir ef ekki
allir Suðurnesjamenn og margir fleiri
hafa vafalítið notið eldamennsku Axels.
Skólamatur er fyrirtækið sem Axel og
hans fjölskylda hafa rekið síðustu 14
árin. Reykjanes heimsótti á dögunum
Skólamat. Þann daginn var allt á fullu að
útbúa spaghetti rétt handa skólakrökk-
unum.Ég settist niður með Axel og
dóttur hans Fanný í stutt spjall.
Byrjaði með
2 starfsmönnum.
Þetta byrjað smátt. Við vorum tveir
starfsmennirnir sagði Axel sem elduðum
fyrir leikskóla í Hafnarfirði. Síðan hefur
þetta undið helddur betur uppá sig. Í
dag eru 90 á launaskrá hjá Skólamat.
Fanný sagði að matur væri sendur til
35 útstöðva.Við erum að senda 6000-
8000 skammta í hádegismat.Maturinn
er forunninn hjá okkur en lokaeldun
fer fram á hverjum stað fyrir sig með
örfáum undantekningum,þar sem við
fullvinnum matinn. Aðalatriðið hjá
okkur er að maturinn haldi fersleika
sínum sem best.
Axel mikill brautryðjandi
Fanný sagði að Axel faðir sinn hefði
fengið hugmyndina að skólamat þegar
hann sat í Skólanefnd Reykjanesbæjar.
Þar kviknaði hugmyndin um að senda
heitar máltíðir í skólana.Það breyttist allt
skólastarf með einsetningunni,þar sem
börnin voru samfellt í skólanum. Það
var því þörf fyrir hádegismat í skólanum
sjálfum.Fanný sagði að þegar Axel fengi
hugmynd þá væri hún framkvæmd.
Hann væri svo sannarlega hugsjóna-
maður. Þessi hugmynd hefur virkilega
heppnast. Mikil ánægja er með matinn
hvort sem er í leikskóla, grunnskóla
eða framhaldsskóla.Matseðill okkar er
unnin í anda Lýðheilsustofnunar.Mat-
seðillinn er mjög fjölbreyttur og okkar
mottó er: Hollt,gott og heimilslegt.
Aukin neysla á
grænmeti og ávöxtum.
Ég spurði hvernig væri með krakk-
ana,vilja þau nokkuð grænmeti og svo-
leiðis með matnum. Þau brostu bæði og
sögðu að magn grænmetis og ávaxta
hefði þrefaldast. Jú,krakkarnir kunna
svo sannarlega að meta grænmeti. Við
höfum grænmetið aðskilið,þannig að
hver og einn fær sér það grænmeti sem
hann vill.Þetta er ánægjuleg þróun frá
því það voru bara grænar baunir,sulta
og rauðkál með kjötinu.
Jú matseðillinn hefur breyst mikið
í gegnum tíðina þegar ég spurði út í
það.Stórir framleiðendur útbúa eftir
okkar séróskum eins og t.d. skólabjúgu.
þau innihalda 15% grænmeti og öllum
líkar vel.
Þróað í samvinnu
við börnin
Axel og Fanný sögðu að starfsfólkið gæfi
matnum einkunn á hverjum degi. Tæki
það mið af því hvernig börnunum líkaði
maturinn. Það má því með sanni segja
að börnin móti matseðilinn. Ef einhver
matur fellur ekki í kramið hjá krökk-
unum er hann ekki áfram á matseðl-
inum. Auðvitað er kannski aldrei
hægt að bjóða uppá að öllum líki allt.
Smekkurinn er misjafn,en við horfum
á hvort meirihlutanum líkar maturinn.
Við erum óhrædd við að breyta og þróa
áfram. Við breytum til hins betra ef þörf
er á. þau segjast vera mjög ánægð með
það hversu stórt hlutvall nemenda eru
áskrifendur að matnum. Það er okkar
hvatning til að gera betur og betur.
Síðdegishressing
fyrir frístundaskóla
Það er ekki bara hádgegismatur.
Við erum líka með um 1200 í síð-
degishressingu í frístundaskólum í
Reykjanesbæ,Hafnarfirði og Garðabæ.
Að auki erum við svo með nokkrar
stofnanir sem við sendum hádegismat,
en það er unnið í séreldúsi.
Bjartsýn á framtíðina
Axel og Fanný sögðust bjartsýn á fram-
tíðina. Viðskiptin héldu áfram að vaxa.
Nú í haust hefði t.d. grunnskólinn í
Sandgerði bæst í hópinn.
Það var virkilega ánægjulegt að skoða
starfsemina hjá Skólamat. Það er engin
smá vinna sem liggur að baki því að
koma út allt að 8000 matarskömmtun
daglega,enda sér maður æði oft bíla
merkta Skólamat á ferðinni.
Skólamatur hefur svo sannarlega sýnt
það að fyrirtækið blómstrar eins og þeir
gera sem borða matinn frá Skólamat.
S.J.
Formaður Sambands sveitarfélaga hrósar Reykjanesbæ
Fyrir stuttu var fjármálaráð-stefna sveitarfélaga haldin.Á ráðstefnunni var farið yfir stöðu sveitarfélaga miðað við niðurstöðu árs-reikninga ársins 2012.Í framhaldi af ráðstefnunni kom fram í fjölmiðlum að formaður Sambands íslenskar Sveitarfélga Halldór Halldórsson lýsti yfir mikilli ánægju með viðsnúning í rekstri til hin betra hjá Reykjanesbæ. Reykjanes leitaði eftir viðbrögðum oddvita framboðslistanna. Það hlýtur að vera ánægjulegt fyrir Reykjanesbæ að fá svona hrós frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ert þú ekki sammála?
Árni Sigfússon,bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks:
Reksturinn úr 3ja milljarða
tapi í 708 milljóna afgang
Jú mjög ánægjulegt, enda mjög skýr dæmi um viðsnúning þar sem Reykjanesbær var fenginn til að
gera grein fyrir árangrinum á þúsund
manna ráðstefnu Sambandsins.
Þar voru nefndar fjórar ástæður fyrir
auknu álagi, kostnaði og skuldsetningu
fyrir Reykjanesbæ á 5 ára tímabili:
1. 30% fjölgun íbúa árin 2005-2009,
mun meiri en annars staðar á landinu,
sem þýddi byggingu nýs grunnskóla
og nýrra leikskóla og uppbyggingu
nýrra hverfa.
2. Brotthvarf varnarliðsins og með því
1100 íslensk störf . 14% starfandi
íbúa í Reykjanesbæ misstu vinnuna
á þeim tíma á aðeins 6 mánuðum.
3. Á sama tíma gríðarleg fjárfesting til
sköpunar nýrra atvinnutækifæra í
Helguvík.
4. Efnahagshrunið.
Viðsnúningurinn frá þessum tíma
sýnir að reksturinn fór úr 3ja milljarða
kr. tapi árið 2008 í 708 milljón króna
afgang árið 2012. Framlegð fór úr því
að vera neikvæð um 17,42% í að vera
jákvæð um 10,21%.
Ég fullyrði að þessi árangur, sem
þarna var lýst, væri ekki til staðar án
góðs samráðs og samstillts átaks allra
starfsmanna, stjórnenda og félagasam-
taka.
Í bæjarráði og bæjarstjórn hefur
einnig starfað hópur sem reynt hefur
að leiða hjá sér pólitíska flokkadrætti
en lagt áherslu á góð vinnubrögð og
betra upplýsingastreymi.
En nú eru að koma kosningar svo
væntanlega fara menn að taka gömlu
haglabyssurnar undan skrifborðinu!
Við tökum því bara brosandi!
Kristinn Þór Jakobsson bæjarfulltrúi
Framsóknar í Reykjanesbæ
Meintur viðsnúningur í
rekstri Reykjanesbæjar
Það má til sanns vegar færa að viðsnúningur til hins betra hafi verið í rekstri Reykjanes-
bæjar, síðastliðið ár. En þar með
er sagan öll engan vegin sögð. Ef
skoðaður er árangur af rekstri síð-
asta áratugs ( frá 2002 til 2012, sá
áratugur sem núverandi meirihluti
sjálfstæðismanna, undir stjórn Árna
Sigfússonar bæjarstjóra hefur stýrt
Reykjanesbæ) er niðurstaðan hörmu-
leg. Eins og lesa má á meðfylgjandi
mynd. Gögn í hana eru fengin af vef
Sambands íslenskra sveitarfélaga
www.samband.is .
Myndin sýnir tekjur, gjöld og
hagnað eða tap áranna 2002 til 2012.
Stökkið mikla 2009 verður til vegna
sölu Hitaveitu Suðurnesja sem sölu-
hagnaður hlutabréfa 2009 var rúmir
11 milljarðar en hagnaður af rekstri
ársins varð 7,6 milljarðar. Uppsafnað
rekstartap fyrir fjármagnsliði síðast-
liðin 10 ár er rúmlega fjórir millj-
arðar. Hin meinti viðsnúningur er
kemur til vegna sölu eigna. Sú þróun
getur ekki haldið áfram.
Örstutt um rekstur og skuldir
Reykjaneshafnar, sem eru á ábyrgð
bæjarsjóðs. Árið 2012 voru tekjur
Reykjaneshafnar tæpar 180 millj-
ónir, rekstargjöld 152 milljónir en tap
hafnarinnar árið 2012 var 667 millj-
ónir sem að mestu leiti komu til vegna
vaxtagreiðslna af 6,3 milljarðs króna
skuldum sem hvíla á Reykjaneshöfn.
Allt afleiðing fífldirfsku núverandi
meirihluta. Þessar tölur eru ekki
teknar með á myndinni, upphæðirnar
rúmast ekki innan hennar.
Axel Jónsson hefur rekið Skólamat í 14 ár
Hluti starfsfólks á kaffistofunni
eddi er yfirkokkur