Reykjanes - 31.10.2013, Blaðsíða 12
1,2 KG. BOLLUR 1150 KR.
1 KG. KLATTAR 1250 KR..
1 KG. NÆTURSALTAÐUR ÞORSKUR 1300 KR.
1 KG. ÝSA Í RASPI 1300 KR.
TILBOÐSKASSI
PÖNTUNARSÍMI 8945372 OG MAIL skatin@simnet.is
HEIMSENDINGAÞJÓNUSTA
Viking sjáVarfang
www.3frakkar.com - Sími: 552-3939
Þær eru
guðdómlegar,
gratíneraðar gellurnar
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
Þrír Frakkar
Café & Restaurant
Ferskur léttsteiktur bláugga-
túnfiskur m/soya-smjörsósu
og wasabi-kartöflumús
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flottur haustfatnaður
fyrir flottar konur
St. 38-58
31. október 201312
Aðalfundur SSS ályktar
Nýlega fór fram aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Þar koma
sveitarstjórnarmenn á svæðinu til
fundar og ræða okkar hagsmunamál.
Nokkrar ályktanir voru samþykktar á
aðalfundinum og birtum við í þessu
blaði eina þeirra.
Ályktun um hjúkrunar-
þjónustu við aldraða
Aðalfundur S.S.S. sem haldinn er í Reykjanesbæ 11. – 12. október 2013 gerir ríka kröfu
um að stjórnvöld tryggi að aldraðir
íbúar á Suðurnesjum fái notið hjúkr-
unarþjónustu í samræmi við þarfir.
Samkvæmt skýrslu Haraldar Líndal
Haraldssonar,“Garðvangur, hjúkr-
unarheimili“, kemur í ljós að Suðurnes
hafa setið eftir í samanburði við aðra
landshluta hvað varðar fjölda hjúkr-
unarrýma miðað við þörf.
Aðalfundurinn bendir á að verulega
vantar upp á að framboð á hjúkrunar-
þjónustu við aldraða á Suðurnesjum
uppfylli þörf fyrir þjónustuna og
standist samanburð við önnur heil-
brigðisumdæmi í landinu. Þá vekur
aðalfundur S.S.S athygli á því að mikið
vantar uppá að fjármunir sem skatt-
greiðendur greiða í Framkvæmdasjóð
aldraðra séu nýttir til uppbyggingar
hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða í
landinu.
Á næsta ári verður nýtt hjúkr-
unarheimili tekið í notkun að Nes-
völlum í Reykjanesbæ, en þrátt fyrir
það verður raunveruleg fjölgun
hjúkrunarrýma á Suðurnesjum
óveruleg. Aðalfundur S.S.S. telur
ljóst að þrátt fyrir að öll þau hjúkr-
unarrými fyrir aldraða sem heimild
er fyrir á Suðurnesjum verði nýtt,
auk óverulegrar fjölgunar með til-
komu nýs hjúkrunarheimilis að Nes-
völlum, þá uppfylli þau engan veginn
áætlaða þörf fyrir hjúkrunarrými á
Suðurnesjum.
Sú staðreynd er með öllu óásættan-
leg fyrir íbúa Suðurnesja og gerir aðal-
fundurinn því þá kröfu til stjórnvalda
að þau standi með sveitarfélögunum
á Suðurnesjum í þeirri viðleitni að
byggja upp hjúkrunarþjónustu við
aldraða sem uppfyllir þörf og stenst
samanburð við önnur heilbrigðis-
umdæmi landsins.
Gamalt bátaspil í Gufuskálavör
Á árabilinu 1631 til 1910 hafa svo vitað sé 14 skip og bátar farist er gengu úr Leirunni.
Á þessum fleytum fórust 68 menn,
þar af tvær konur. 23 menn fórust á
þessu tímabili af Gufuskálaskipunum,
15 af Litla-Hólmsskipunum og 8 af
Stóra-Hólmsskipunum, en færri af
öðrum.
Leirubændur og hjáleigumenn áttu
nær allir árafleytur til sjósóknar — þó
ekki allir vertíðarskip. Voru þeir er
smærri fleyturnar áttu þá vetrarver-
tíðarsjómenn á stærri skipunum. Eins-
töku réru þó árið um kring á sínum
bátum, 2—4 manna förum.
Gamla myndin
Gamalt bátaspil sem stóð í Gufaskálavör í Leiru Ljósmynd Magnús Gíslason