Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 4

Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 4
vill samt heyra það frá Gabríel. "Við, Faðir, sumir englanna og ég vorum bara að hugleiða hvort - ég á við, þar sem í nótt er stundin sem Jesús verður maður og það allt - nú við vorum bara að hugsa - nú, þú veist.. Bros færist yfir andlit Föðurins. Gabríel stígur í annan fótinn síðan í hinn. "Já, haltu áfram, Gabríel. Hvað liggur þér á hjarta?" Gabríel dregur djúpt andann, og bunar svo út úr sér, "Nú mér finnst að það ætti að vera einhverskonar hátíð." Nú er það?" "3á, Faðir. Ég meina allar þessar vesalings persónur á jörðinni, sem þjást, deyja, berjast og gráta. Þeir hafa ekkert skemmtilegt til að lifa fyrir. Þeir hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast í nótt! Gætum við ekki gert eitthvað stórkostlegt, og leyft þeim að vita hvað er að gerast?" Það er hljótt í hásætissalnum smá stund. Orð Gabríels hverfa í bergmáli. Síðan svarar Faðirinn, með glampa i augunum, "Þeir komast að því nógu snemma". Gabríel gleymir varfærni sinni og tauga- óstyrk sínum, og biður, "En gætum við ekki gert alla vega eitthvað? Gætum við ekki að minnsta kosti sagt safnaðarleiðtogunum frá þessu? Vissulega mundu þeir vilja vita. Eða konunginum. Vissulega mundi Heródes konungur vilja..." "Nei Gabríel, ég er hræddur um að þeir mundu ekki vilja vita. Alla vega ekki sannleikann." Gabríel heldur áfram, óhræddur, "Gæti ég ekki bara tekið með mér þrjár eða fjórar englasveitir og fyllt himininn yfir Jerúsalem með einni stórkostlegri sýningu? Nokkrir trompetleikarar færu vel, og jafnvel hörpuleikarar og nokkrir. II • • • • Faðirinn heldur uppi hendi sinni. "Bíddu nú hægur Gabríel. Þú veist hvers konar ferð Jesús er á. Hann á að vera þjónn, auðmjúkur þjónn, ekki einhver stórkostleg bardagahetja". Ákafi hans mýkist svolítið, Gabríel and- varpar, "3á, ég veit. En er það ekki eitthvað sem við getum gert? Það veit enginn af þessu á jörð- unni. Það mundi færa þeim svo mikla gleði að vita að nú væri að opnast þeim hjálprseði. Gerðu það, Faðir. Við verðum að gera eitthvað." Hinir englarnir eru byrjaðir að læðast inn í hásætissalinn, og sussa í hvor öðrum svo þeir geti heyrt svar Föðurins. Andlit Föðurins breytist í breitt og mikið bros. Hann gleðst yfir hollustu Gabríels og hinna englanna við Jesú. Með hlátur í röddinni hallar hann sér fram til Gabríels og segir, "Allt í lagi, Gabríel. Taktu englasveit með þér, en aðeins eina og farðu. Heimsóttu fjár- hirðana á hæðunum fyrir utan Betlehem. Segðu þeim. Þú verður undrandi hversu hratt fréttin mun breiðast út til leið- toganna." "Aðeins fjárhirðunum, Faðir?" spyr Gabríel, og vonast enn eftir að mega setja stærri sýningu á svið. "'Já, aðeins fjár- hirðunum, Gabríel. Aðrir fá tækifæri til að heyra um þann Jesú sem við þekkjum og elska hann, á réttum tíma. Farið nú! Farið! Farið og syngið áður en lungu ykkar springa!" Gabríel hraðar sér til hinna og saman þjóta þeir út um hlið himins og láta sig falla til jarðar. Gabríel birtist fjárhirðunum fyrst. Hinir englarnir, með dýrð sína hulda, bíða eftir réttu augnabliki. Er dýrð Gabríels upplýsir hæðir- nar, hnipra fjárhirðarnir sig saman bakvið litla, flöktandi varðeldinn sinn. Verið óhræddir því sjá, ég boða ykkur mikinn fögnuð..." Eins og lítil börn sem eru spennt eftir að fá að opna fallegan pakka bíða hinir englarnir eftir að Gabríel ljúki máli sínu. Flýttu þér, Gabríel. Okkur langar til að syngja góðu fréttirnar." Allt í einu geta vinir Gabríels ekki haldið aftur af sér lengur. Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu, með mönnum." Og hversu mjög þeir sungu. Heimurinn var umvafinn óvissu, en himinninn endurómaði af góðu fréttunum, um stórkost- legan möguleika. Það var hægt að frelsa mennina! Hjálpræðið hafði birst mönnunum! * - Insight, desember 1982. 4

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.