Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 14

Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 14
"Múr hennar var byggður af Jaspis og borgin af skíra gulli sem skært gler væri: Undirstöðusteinar borgar- múrsins voru skreyttir alls konar gimsteinum... Og hliðin tólf voru tólf perlur og hvert hlið úr einni perlu. Op. 21:18-21 (11-21) Hvílík andsæða frumskóga steinsteypu og glers sem hafa okkur fangin í dag. Hver ein von, þrá og takmark sem bærist hið innra með manninum mun verða að raunveruleika í áformi Guðs um endurnýjun jarðarinnar. Það sætir engri furðu þó postulanum verði að orði: "Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs inanns, allt það sem Guð fyrirbjó þeim, er elska hann." 1Kor 2:9. iif til er málefni þess virði að hrópa um eða efna til kröfugöngu um, eða gera lýðum kunnugt þá er það þetta áform Guðs um að gefa mannkyninu tækifæri til þess að byrja á nýjan leik á plánetunni Jörð. Mannveran var ekki sköpuð til þess að deyja - heldur til þess að lifa að eilífu. Guð hefur lagt áform um eilíft líf. Rithöfundur nokkur hefur tjá þetta á eftir- farandi veg: "Hin mikla deila er til lykta leidd. Synd og syndarar eru ekki lengur til. Gjörvallur alheimurinn er hreinn orðinn. Eitt hjarta samlyndis og fagnaðar slær um óravíddir sköpunar- verksins. Frá honum, sem skóp alit, flæðir líf og ljós og fögnuður um öll svið hins endalausa geims. Frá hinni smæstu öreind til hinnar stærstu veraldar, kunngjöra allir hlutir, lifandi og dauðir, í skuggalausri fegurð sinni og fullkomna fögnuði, að Guð sé kærleikur." F.G.White. Deilan Mikla bls 708. Valkostur Guðs er besta boðið sem nokkurn tíman hefur verið lagt fram; algjör fullnægja, fullkomin sjálfshafning -á sviði eilífðarinnar. Stórkostlegar fréttir að miðla sérhverri lifandi sál! Það fyrirfinnst himinn og undirbúið heimili fyrir hinn þreytta, hrjáða, áhyggjufulla. Björgun er á leiðinni. Það er einn sem heldur víöri veröld í hendi sér. Það er ekki neinn karis- matískur páfi. Það er Guð, sem samkvæmt áætlun, mun leiðrétta það sem úrskeiðis hefur farið, og koma á eilífðarríki friðar og réttlætis. Boðskapur hins spámannlega og opinberunarhluta Biblí- unnar - Jesaja, Esekíel, Daníel, Olíufjallsræða Jesú, Opinberunarbókin - er þessi: Guði stendur ekki á sama. Guði þykir vænt um manninn. Þó ökutækið virðist stundum vera stjórnlaust, þá er Guð samt sem áður ennþá við stjórnvölinn. "Er þjóðir mannkyns- sögunnar rísa til valda og hnigna á ný virðist þetta afleiðing mannlegs valds og máttar. Atburðir viröast að miklu leyti velta á valdi, metnaðar- girnd og duttlungum. En í orði Guðs eru tjöldin dregin til hliðar, og við sjáum að baki, yfir og gegnum leiki og gagnleiki mannlegra hagsmuna, valds og ástríðna, vinnur hið náðarsama almætti Guðs verk sitt á hljóðan og þolinmóðan hátt samkvæmt ráðsályktun sinni. E.G.White. Menntun, bls.173. Og þegar allt er komið í framkvæmd, og hin nýja byrjun orðin að veruleika, þá mun Guð vera miðdepill alls lífs og allra lifenda - með víða veröld í hendi sinni á nýjan leik. "Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkidóminn, visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð." Honum sem í hásætinu situr, og lambinu, sé lofgjörðin og heiðurinn, dýrðin og krafturinn um aldir alda." Op. 5:12,13.* Lauslega þýtt úr Focus, nr. 4. 1985 Eric Guðmundsson 14

x

Innsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.