Innsýn - 01.12.1986, Blaðsíða 6
safnaðarbörn, en þau hafa
engan samkomustað. í öðru
þorpinu hefur þorps-
höfðinginn gefið land
undir byggingu en safn-
aðarmeðlimir eiga engan
möguleika á að fjármagna
bygginguna sjálfir, og
skammast sín fyrir að geta
ekki notað landið. í hinu
þorpinu er til bygging, en
hún er að hruni komin og
safnaðarmeðlimirnir þora
ekki að hafa samkomur þar
inni. Áformið er að byggja
sín hvora kirkjuna í
þessum þorpum. Þessi þorp
eru ákaflega frumstæð, og
þar er nákvæmlega engin
þjónusta. Svo söfnuðurinn
gæti haft mikil áhrif á
þetta þjóðfélag, og að
lokinni byggingu þessara
kirkna væri hægt að vera
með þjónustu svo sem
heilsufræðslu, umhirðu
ungbarna, matreiðslu-
námskeið og Biblíufræðslu.
Áætlaður kostnaður við
þetta verkefni er um 1 .2
millj. íslenskra króna.
Stefnt er að því að tíu
til tuttugu ungmenni frá
hverri Union fari til
Pakistan. Farið verður á
þeim tíma sem hitinn er
ekki svo hræðilegur, og er
því stefnt að því að fara
annað hvort í nóvember eða
desember á næsta ári.
Dvalið verður í Pakistan í
einn mánuð. Nauðsynlegt
er að sækja um þátttöku í
þessu verkefni með sex
mánaða fyrirvara, meðal
annars vegna vegabréfs-
áritunar. Það væri
ákaflega gaman ef einhver
eða einhverjir frá íslandi
gætu tekið þátt í þessu
verkefni.
Ekki geta allir farið
til Pakistan, og við höfum
einnig áhuga að vinna að
einhverju sérstöku
verkefni hér á íslandi.
Áhuginn virðist beinast að
hópferðabíl, 16-22 manna
bíl. Slíkur bíll kæmi sér
vel í öllu æskulýðsstarfi,
bæði fyrir yngri og eldri,
fyrir boðunarferðir,
helgarferðir, dagsferðir,
safnaðarferðir og svo
mætti lengi telja.
Að sjálfsögðu kostar
töluvert að eignast slíkan
bíl, en það eru til margar
leiðir til að fjármagna
þetta. Hafa nokkrar
hugmyndir verið nefndar,
þar á meðal bögglauppboð,
gönguferð með áheitum,
bóksala og jólatréssala.
Að lokum vona ég að
hver söfnuður og sérhver
safnaðarmeðlimur stefni
markvisst og ákveðið að
því að gera næsta ár að
sannkölluðu ári æskunnar,
ári Aðventæskunnar, unga
fólkinu til uppörvunar,
öllum til blessunar og
Guði til dýrðar. *
Þröstur Birkir
6