Hagtíðindi - 01.05.1920, Qupperneq 3
1920
H AGTÍÐINDI
19
Á ýmsar vörur, er áður voru tollfrjálsar, var lagður tollur árið
1919, svo sem síldartunnur og efni í þær, vínanda til eldsneytis eða
iðnaðar og ilmvötn og hárlyf, og útflutningsgjald á ýmsar land-
afurðir. Yfirlitið sýnir aðeins inn- og útflutning af þessum vörum
eftir að tollur var lagður á þær.
Yfirlitið sýnir, að 1919 hefur verið flutt inn til Reykjavikur
miklu meira af vínföngum og öli heldur en árið áður. Af tóbaki
hefur innflutningurinn verið meir en þrefaldur á við árið 1918 og
af vindlum og vindlingum líka töluvert meiri. Innflutngur á kaíTi
hefur verið fimmfaldur og á sykri nærri tvöfaldur á móts við árið
1918, en af báðum þessum vörum var líka óvenjulega lítill innflutn-
ingur það ár. Aftur á móti var innflutningur á kaffibæti töluvert
minni árið 1919 heldur en árið áður og eins var um súkkulaði og
kakáó, en af tei var innflutningurinn tvöfaldur og af brjóstsykri og
konfekt nærri tvöfaldur á móts við árið á undan. Af flestum vöru-
tollsvörum hefur innflutningur til Reykjavíkur verið töluvert meiri
síðastliðið ár heldur en árið á undan. Þó hefur verið töluvert minni
innflutningur af kornvörum og kolum og lítið eitt minni af trjávið.
Útflutningur af fiski frá Reykjavík hefur verið heldur minni heldur
en árið á undan, en miklu meira en áður hefur verið flutt út af
honum ófullverkuðum. Af síld og lýsi hefur aftur á móti verið flutt
út miklu meira frá Reykjavík heldur en árið 1918.
Tollarnir, sem tilfallið hafa í Reykjavík á síðastliðnu ári, hafa
numið alls 2.2 milj. á móts við rúml. 1 milj. árið 1918. Þessi mikla
hækkun stafar auðvitað að langmestu leyti af því, að á flestum
vörum hafa tollarnir verið hækkaðir að miklum mun og einnig hefur
tollur verið lagður á vörur, sem áður voru ótollaðar. 5. júní 1918
var allur vörutollur tvöfaldaður og 28. nóv. 1919 var hann aftur
hækkaður um 50 °/o, en 12. ágúst hafði saltið verið felt burtu úr
vörutollinum og lagður á það sjerstakur salttollur, 8 kr. á hvert
tonn, til þess að vinna upp halla þann, sem orðið hafði á saltkaup-
um landsstjórnarinnar vegna styrjaldarinnar. 6. mars 1919 var lagður
bráðabirgðatollur á síldartunnur, 5 kr. á hverja, og á efni í þær,
5 kr. á hver 20 kg. 12. ágúst var vínfangatollur yfirleitt tvöfaldaður,
tollur á öli og Iímonaði hækkaður úr 20 au. upp í 30 au. á litra,
og nýr tollur lagður á vinanda til eldsneytis og iðnaðar, 2 kr. á
litra, og á ilmvötn og hárlyf, 4 kr. á lítra. Ennfremur var þá tóbaks-
tollur hækkaður um 50 °/°> á tóbaki úr 3 kr. upp í 4 kr. á kg og
á vindlum og vindlingum úr 6 kr. upp í 8 kr. á kg. Loks var tollur
á brjóstsykri og konfekt hækkaður úr 1 kr. 25 au. upp í 2 kr. á
kg. 14. ágúst 1919 var útflutningsgjald af sjávarafurðum yfirleitt