Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.1984, Síða 5
rj FRÉTTIR
3
ALLT
í hátíðarmatinn
Svínakjöt af nýslátruðu
Skráð verð Okkar verð
Svínalæri 203,70 153.00
Svínahryggur 305,70 230,00
Svínakótelettur 317.25 251.00
Hamborgarlæri 258.90 196.00
Hamborgarhryggur 355.40 267.00
Svínalæri úrb. ný 339.25 255.00
Svínabógur nýr 184.15 154.00
Svínahnakki nýr úrb. 290.80 220.00
Svínahnakki reyktur úrb. 239.00
Svínalundir 365.70 324.00
Bayonnesskinka 378.00 280.00
Nautakjöt Lambakjöt
Roast beef Marineruð læri
Innanlærisvöðvi Marineraður hryggur
Snitcel Marineraður frampartur
Gullach
LAX nýr Hangikjöt
LAX reyktur Hangiæri 1/1 og úrbeinað
LAX grafinn Hangiframpartur 1/1 og úrbeinað
Opið miðvikudaginn 18. april til kl. 19.00 (7) og
á laugardaginn 21. apríl frá kl. 9-12.
Hittumst í Kaupfélaginu
GLEÐILEGA PÁSKA
1
kaupfelag
VESTMANNAEYJA
Markaður
Sjúkrahús Vm:
Starfsfólk óskast til afleysinga í eldhúsi Sjúkra-
húss Vestmannaeyja. Um er að ræða 1/2 dags störf.
Upplýsingar gefur Guðmundur Rúnar í síma 1955
milli kl. 12.00 og 15.00.
Sjúkrahús Vestmannaeyja
Tilkynning
frá A.T.V.R.:
KAUPUM TÓMAR FLÖSKUR MERKTAR
Á.T.V.R. Á 5 kr. stk.
Á.T.V.R. Strandvegi 50.
Náttúrugripa og fiskasafnið
verður opið fostudaginn langa og páskadag
frá kl. 16 - 18.
Safnvörður
KRISTILEGA videoleigan.
Sólhlid 26. simi 26 90
Vestmannaeyjum
„Okkur vantar fólk í vinnu“
Undanfarið hafa staðið
yfir í Hraðfrystistöðinni,
umfangsmiklar breyting-
ar á húsnæðinu. Er þar
verið að breyta úr salt-
fisksvinnslu yflr í fryst-
ingu. Við báðum Jón
Svansson, yfirverkstjóra í
Hraðinu, að segja okkur
frá þessum breytingum
og ástæðum þeirra.
Ástæðurnar fyrir þessum
breytingum eru nú aðallega
vegna markaðarins. Hve á-
reiðanlegur Ameríkumark-
aðurinn er á frystum af-
urðum, en á hinn bóginn
óstöðugleiki á saltfisks- og
skreiðarmörkuðum.
Við ætlum hinsvegar ekki
að hætta vinnslu á saltfiski og
skreið, heldur hafa það með.
Við reiknum með að geta
unnið hér á milli 20 og 25
tonn á dag. En yfir vertíðina
verðum við með 3-4 netabáta
og þá komumst við ekki yfir
að frysta allt af þeim. En
megináherslan verður lögð á
frystinguna.
Hér munum við gera að
öllum fiski, en sá sem fer í salt
og skreið verður fluttur uppí
Sælahús, þar sem gengið
verður frá honum.
Til þess að geta komið hér
fyrir hagkvæmri vinnslurás,
urðum við að breyta tals-
verðu. Frystitækin voru færð í
norðurhluta hússins. Þá tók-
um við frystiklefa undir
pökkunarsalinn og einnig
notuðum við það pláss, sem
tækin voru áður í, undir
pökkunarsalinn og þar ætlum
við að koma fyrir 12 borðum.
Þá minnkuðum við kæli-
Félagsfundur í Vélstjóra-
félagi Vm. haldinn miðviku-
daginn 11. apríl styður heils-
hugar þá einstaklinga og
félagasamtök sem berjast og
hafa barist nú síðari ár fyrir
því að koma sjálfvirkum
sleppibúnaði fyrir gúmmí-
björgunarbáta um borð í
íslenska skipastólinn sem
allra fyrst, jafnframt krefst
fundurinn þess, að hætt verði
allri undanlátssemi gagnvart
gildandi reglugerðum í því
sambandi.
Fundurinn átelur harðlega
það kæruleysi og þá undan-.
látssemi opinberra aðila sem
með öryggismál sjómanna
hafa að gera. Það er furðu-
legt, að opinber stofnun sem
fer með öryggismál sjómanna
skuli leyfa sér að leika sér með
reglugerðir sem hún hefúr
sjálf sett á þann veg, að gera
slakari kröfur en hún setti í
upphafi og þá sérstaklega
þegar það er haft í huga að
það er til búnaður sem
uppfyllti þær kröfur sem
settar voru í upphafi.
Svo kom enn ein furðu-
fregnin um þessa stofnun
fram í sjónvarpsþætti þann
10/4 ‘84 sem fjallaði um
Jón Svansson
geymsluna og þar var settur
upp flökunarsalur. Aðgerðar-
plássið og móttakan eru
hinsvegar óbreytt. Og allt
er þetta á sama gólfi. En
frystiklefinn er nokkuð norð-
ar og þangað verðum við að
aka afurðunum. Hugsanlega
gæti það orðið einhver flösku-
háls hjá okkur, þegar slæm
færð verður. Fn þó ekkert
vandamál, held ég.
Nú það hefur verið reynt
að gera þetta allt sem best úr
garði. Við vorum t.d. að fá
mjög fullkomna flökunarvél
frá Baader, sem flakar fisk frá
einu kílói og allt að 10
kílóum. En yfirleitt hefur
þurft fleiri en eina vél fyrir
hinar ýmsu stærðir.
öryggismál sjómanna, þegar
settur siglingam.stjóri sagði,
að stofnunin gæti ekki gefíð út
af sinni hálfu hvað af þeim
sleppibúnaði fyrir gúmmí-
björgunarbáta sem fram-
leiddir eru í dag væri full-
komnastur til notkunar, en
stofnunin væri fær um að
dæma hvort búnaðurinn væri
hæfur eða ekki svo furðulegt
sem það nú er.
Eins kom fram í áður-
nefndum sjónvarpsþætti af-
skipti ráðherra af útgáfu haf-
færnisskírteinis sem var út-
runnið og mótmælir félagið
harðlega svona íhlutun. Ef að
töggur væri í sjómönnum, þá
ættu þeir að sigla í land og
fara ekki út eS' .. ryr en
viðkomandi ráðherra hefði
afturkallað þetta gerræði og
léti viðkomandi stofnanir í
friði, á meðan pfeer vinna
samkvæmt þeim lögum sem
þær eiga að starfa eftir.
Að lokum vill félagið qska
þess, að sú umfjöllun um
öryggismál sæfarenda sem átt
hefur sér stað að undanförnu
haldi áfram og að skynsemin
verði látin ráða en ekki
æsingur eða ofstæki á einn eða
annan hátt.
Við stefnum að því að
byrja hér frystingu á fimmtu-
daginn í næstu viku. En til
þess að það verði unnt, vantar
okkur talsvert af fólki. í
pökkunarsalinn vantar okkur
um 20 konur og sennilega
annað eins af karlmönnum.
Hvernig hefur svo geng
ið í vetur?
Það gekk mjög vel hjá
okkur í loðnufrystingunni.
Við frystum rétt um 800 tonn
af hrognum af um 2000
tonnum, sem fryst voru á öllu
landinu. Auk þess frystum við
um 160 tonn af loðnu.
Bikarinn
til Eyja
Það voru fleiri en Þórarar,
sem komu með bikar til Eyja
um helgina. Uppá Akranesi
voru nefnilega starfsmenn
peningastofnanna Eyjanna,
Utvegsbankans og Sparisjóðs
ins, á ferð. Þar léku þeir í
Islandmóti bankamanna í
knattspyrnu. Léku þeir undir
nafninu Sparibankinn. Og
það er skemmst frá því að
segja, að þeir fengu gullið í
þetta sinn, eins og reyndar við
var að búast.
Fyrst léku þeir við lið
Landsbankans og sigruðu
nokkuð örugglega með 3-2
auk þess fengu þeir víta-
spyrnu í lok leiksins en
klikkuðu. Engin nöfn nefnd í
því sambandi.
Var þá kominn hugur í
menn og 1. sætið talið
skammt undan.
Næst léku þeir við lið
Samvinnubankans. Þar töp-
uðu þeir, 4-5. Og nú fannst
þeim allt í steik, og Is-
landsmeistaratitillinn langt
undan. En viti menn. Þeir
unnu sko lið Verslunarbank-
ans með 9 mörkum gegn 2.
Þeir voru því komnir í úrslit á
hagstæðara markahlutfalli.
I úrslitakeppninni sigruðu
þeir svo lið Útvegsbankans 8-
2 og lið Seðlabankans 10-0.
Meistararnir héldu svo
heimleiðis á sunnudaginn
syngjandi alla leið, bikarinn
til Eyja, bikarinn til Eyja.
Þessi knáu kappar voru
Tómas Pálsson, Sigurjón Að-
alsteinsson, Aðalsteinn Sig-
urjónsson, Guðni Valtýsson,
Guðjón Hjörleifsson og
Daddi plötusnúður.
Gámar
seldir
Gengið var frá sölu á tveim
telescope húsum, eða gámum
eins og þessi hús eru almennt
kölluð.
Kaupendur eru Flugmála-
stjórn í Reykjavík og útgerð
Flóabátsins Fagraness á Isa-
firði.
Væntanlega munu þessi
hús þjóna sem flugstöð og
vörumóttökur í einhverjum
landshluta þar sem þeirra er
mikillar þörf.
Kæruleysi hins
opinbera