Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.1984, Síða 10
i ki t rm )
Volvo bílar endast lengst
Við rákumst á dögunum á
merkilega skýrslu sem sænska
bifreiðaeftirlitið hafði gert.
I skýrslunni var kannaður
meðalaldur bíla í Svíþjóð.
Kom þar m.a. fram, að
meðalaldur Volvo hefur auk-
Volvo verksmiðjurnar hafa
einnig um árabil verið leið-
andi í öllu er snertir aukið
öryggi í umferðinni. Hafa
þeir m.a. þróað hemlakerfi
sem á sínum tíma þótti algjör
ist úr 19,3 í 20,7 ár, svo að
jafnvel lúxusmerkið Merc-
edes Bens bliknar í þeim
samanburði.
Við látum fylgja með til
gamans 15 fyrstu sætin í
þessari könnun.
bylting hvað þau mál varðar.
Barnastólanna frá Volvo er
víst óþarfi að kynna fyrir
lesendum, má ætla að annar
hver barnabílstóll sem er í
umferð núna sé framleiddur
af Volvo, eða viðurkenndur
að tilraunadeild Volvoverk-
smiðjanna.
Með árunum hefur hinn
almenni neytandi stöðugt
gert hærri kröfur um aukið
öryggi þeirra bíla sem hann
kaupir sér, samtímis því sem
ílest lönd hafa sett ákveðinn
öryggisstuðul sem allar bif-
reiðar verða að uppfylla, til
að verða gjaldgengar á bíla-
mörkuðum í hverju landi
fyrir sig.
Þessar auknu öryggiskröfur
hafa komið Volvo bílnum vel
og er hann nú í stöðugri sókn,
hvar sem er í heiminum. Er
nú svo komið, að 1 afhverjum
40 Islendingum ekur um á
V olvo.
Þó er það all langt í frá
þeim frændum okkar svíum,
en þar eru að meðaltali 8,4
Svíar um hvern Volvobíl.
Saga Volvo er saga réttra
ákvarðana á réttum augna-
blikum. Þegar „japanska
byltingin,“ á bílamarkaðin-
um hófst, lentu bílaframleið-
endur í Evrópu á köldum
klaka í unnvörpum. Flestir
þurftu að segja þúsundum
starfsmanna sinna upp og
einbeita sér að því að í'rarn-
leiða bíla sem á einn eða
annan hátt voru svipaðir
hinum japönsku, litlir og
með lágmarks tilkostnaði.
Þeir hjá Volvo gerðu þver-
öfugt miðað við hina. Þeir
juku öryggiskröfurnar og
settu sér það mark að fram-
leiða bíla sem væru það góðir.
að fólk vildi þá frekar, þótt
verðmunurinn gæti verið
nokkur. í árabil óg þessi
stefna salt, en það má með
sanni segja, að með tilkomu
760 línunnar 1982 hafi björn-
inn loks unnist og að sigur-
ganga Volvobílanna hafi
breyst í sigurhlaup.
15 endingarbestu bílarnir
1. Volvo 20,7 ár.
2. Mercedes Bens 19,6 ár.
3. Folkswagen 16,7 ár.
4. BMW 15,5 ár.
5. SAAB 15,3 ár.
6. Opel 14,9 ár.
7. Ford 14,1 ár.
8. BMC 13,6 ár.
9. Vuxall 13,1 ár.
10. Renault 13,0 ár.
11. Audi 12,9 ár.
12. Fiat 12,6 ár.
13. Citroen 12,3 ár
14. Peugeot 12,3 ár.
15. Simca 11,4 ár.
Hagkvæmara viðhald á Eyjaflotanum
S.l. tvö ár hafa verið haldin
námskeið innan skipaiðnaðar
ins í landinu. Þessi námskeið
hafa gengið út á það að
samræma undirbúning og
framkvæmd skipaviðgerða,
og var eitt slíkt haldið hér í
Eyjum fyrir skömmu.
Ekki er ofmælt, að þörfin
fyrir sameiginlegan vettvang
allra þeirra sem hafa á sinni
könnu viðhald og viðgerðir
íslenska skipaflotans er mjög
mikil. Þetta gerðu heildarsam
tök smiðja og skipasmíða-
stöðva (SMS) og útgerða
(LÍU) sér ljóst og því var að
tilstuðlan þeirra efnt til fyrsta
fjögurra daga námskeiðsins í
upphafi árs 1982. Ákveðið
að láta reynsluna skera úr um
hvort framhald yrði á þessu
starfi. Jafnframt því sem
næstu námskeið voru haldin,
unnu samtök málmiðnaðar-
fyrirtækja umtalsvert starf í
Þessir tóku sig til og sóttu sér endurmenntun á
umræddu námskeiði, og þóttu bara standa sig
nokkuð vel. Svo sagði Tóti sendill allavega.
sinna við að bæta ýmislegt
sem lýtur að innra eftirliti og
stjórnun.
Ennfremur var unnið að
bví að eefa út SFI fiokkunar-
kerfið fyrir skip, sem er
grundvallargagn til að koma
á samræmingu innan útgerð-
a, skipasníðastöðva og smiðja
og einnig, og ekki síður,
samræmingu milli þessara
aðila.
Einn afrakstur þessa starfs
er sá, að hér í Eyjum er nú
hafin vinna við aðgerðir til
endurskipulagningar á öllum
vinnubrögðum við viðhald og
viðgerðir Eyjaflotans. Þessar
aðgerðir eru á vegum
Meistarafélags járniðnaðar-
manna og fara fram bæði hjá
útgerðum, um borð ískip-
unum og í viðgerðarfyrir-
tækjum í landi. Aðgerðirnar
felast einkum í því aðleið
beina vélstjórum við að semja
markvissan og aðgengilegan
viðgerðalista, aðstoða útgerð-
inrnar við að vinna upp
útboðsgögn og senda til vænt-
anlegra viðgerðaaðila og að-
stoða þá við að semja tilboð
og ganga frá samningum um
viðgerð.
Þá verða öllum sem hlut
eiga að máli leiðbeint um
undirbúning fyrir sjálfa við-
gerðina og hvernig á að
standa að eftirliti meðan á
viðgerð stendur. Síðast en
ekki síst verður svo unnið að
skipulegu uppgjöri, þar sem
upplýsingum um viðgerðar-
verk er safnað saman og þeim
raðað upp með kerfis-
bundnum hætti bæði hjá
útgerðum og smiðjum í því
augnamiði að hafa upp-
lýsingarnar aðgengilegar sem
grundvöll að fyrirbyggjandi
viðhaldi skipanna.
Á fyrrnendum námskeið-
um er farið vandlega yfir alla
þætti og skapa þau grundvöll
inn til að koma á endurbótum
hjá útgerðum og viðgerðar
verkstæðum, sem stuðla að
meiri hagkvæmni í viðhaldi
flotans; þar er eftir feyki-
miklum verðmætum að
slægjast.
Þess er að vænta, að með
umræddum aðgerðum hér í
Eyjum, sé stigið mikilvægt
skref til þess annarsvegar að
bæta viðhald flotans og gera
það hagkvæmara fyrir útgerð
irnar og hinsvegar til að
stuðla að því, að íslensk
viðgerðarfyrirtæki verði
betur samkeppnishæf við
erlenda aðila hvað varðar
skipaviðgerðir.
HELGARFERÐ MEÐ FLUGLEIÐUM
upplýsingar
síma 1520
/
1FLUGLEIDIR
Gott lólkhjá traustu félagi