Hagtíðindi - 01.05.1989, Blaðsíða 20
172
1989
Vísitala framfærslukostnaðar í maí 1989.
Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu fram-
færslukostnaðar miðað við verðlag í maíbytjun
1989. Vísitalan í maí reyndist vera 122,3 stig (maí
1988 = 100), eða 2,0% hærri en í aprfl. Samsvarandi
vísitala samkvæmt eldra grunni (febrúar 1984 =
100) er 299,8 stig.
Af hækkun vísitölunnar um 2,0% frá aprfl-
byrjun til maíbyijunar stafa um 0,3% af hækkun
matvöru og um 0,7% af hækkun á reksturskostnaði
eigin bfls. Þar af olli hækkun tryggingaiðgjalda um
0,6% hækkun á vísitölunni og hækkun bensínverðs
tæplega 0,1% hækkun. Húsnæðisliður vísitölunnar
hækkaði um 1,3%, sem olli tæplega 0,2% hækkun
á vísitölunni. Verðhækkun ýmissa annarra vöru- og
þjónustuliða olli alls um 0,8% hækkun á vísitölu
framfærslukostnaðar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala fram-
færslukostnaðar hækkað um 22,3%. Undanfama
þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 7,1% og
jafngildir sú hækkun um 31,5% verðbólgu á heilu
ári.
Breytingar vísitölu framfærslukostnaðar 1988-1989.
Vísitala Breyting frá fyrra mánuði % Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar:
Síðasta mánuð % Síðustu 3 mánuði % Síðustu 6 mánuði % Síðustu 12 mánuði %
1988
Janúar 233,41 3,71 54,8 41,9 32,3 26,1
Febrúar 235,37 0,84 10,6 29,4 28,0 25,4
Mars 237,54 0,92 11,6 24,1 27,5 24,7
Apríl 240,95 1,44 18,7 13,6 26,9 24,7
Maí 245,19 1,76 23,3 17,8 23,4 25,4
Nýr grunnur maí 1988 = 100
Júní 103,4 3,4 50,1 30,0 27,0 27,1
Júlí 107,0 3,5 50,8 40,5 26,3 29,3
Ágúst 109,3 2,1 29,1 42,5 29,5 28,8
September 110,0 0,7 9,1 28,1 29,0 28,3
Október 110,4 0,4 4,2 13,3 26,2 26,6
Nóvember 110,5 0,1 0,8 4,6 21,9 22,7
Desember 110,7 0,2 2,3 2,4 14,5 20,6
Meðaltal 104,6 25,5
1989
Janúar 112,6 1.7 22,0 7,9 10,6 18,2
Febrúar 114,2 1.5 19,6 14,3 9,3 19,0
Mars 117,4 2,7 38,3 26,4 13,7 21,2
Apríl 119,9 2,2 29,4 28,9 17,9 22,0
Maí 122,3 2,0 26,8 31,5 22,5 22,3