Hagtíðindi

Árgangur

Hagtíðindi - 01.05.1989, Blaðsíða 49

Hagtíðindi - 01.05.1989, Blaðsíða 49
1989 201 Tala búfjár, uppskera garðávaxta og heyfengur 1987 og 1988 Um langt árabil hafa birst árlega í Hagtíðindum töflur um bústofn, uppskeru garðávaxta og heyfeng á landinu á liðnu ári með samanburð við næsdiðið ár. Þessar töflur birtust fyrst í janúarblaði Hag- tíðinda 1969 og þá ffá 1965, síðan í júlíblaði 1970 og síðan í apnlblaði ár hvert, en vegna seinkunar á upplýsingagjöf birtast þær nú í maíhefti. Talnaefni þetta er fengið frá Búnaðarfélagi íslands, og er það byggt á skýrslum forðagæslumanna í hverju sveitarfélagi. Er búféð talið á hausti að lokinni sláturttð. Við athugun þessara talna verður að hafa í huga, að jafnan er nokkuð um það að skýrslur berist ekki í tæka tíð ffá nokkrum sveitarfélögum, en í þeim tilvikum er stuðst við tölur næstliðins árs án þess að reynt sé að ætlast á um þær breytingar sem orðið hafa. Að auki fylgja töflu þessari eftirfar- andi athugasemdir: 1. Hænsni. Hér eru taldar varphænur og eru þær samkvæmt skýrslum þessum um 230 þúsund. Að auki sýna skýrslumar fjölda holdahænsna og er hann talinn 186 þúsund á árinu 1988. Bent skal á, að eðli málsins samkvæmt era upplýsingar forðagæsluskýrslna um tölu fugla ótraustar. 2. Svín. I tölu svína eiga aðeins að vera fullorðin dýr. 3. Loðdýr. Búnaðarfélagið tekur saman upplýsingar um fjölda loðdýra og er ætlað að hann hafi verið sem hér segir undanfarin ár (tala fullorðinna dýra): 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Refir 840 2.040 5.200 7.900 20.900 21.700 20.300 9.000 Minkar 8.300 6.700 7.200 5.700 14.200 20.100 50.400 86.600 Kanínur 4.000 5.900 3.900 3.300 4. Annar bústofn. Auk þess sem hér hefur verið nefnt og fram kemur í töflunum hér á eftir, telur Búnaðarfélagið að á árinu 1988 hafi bústofninn verið um 3.900 gæsir og endur og 288 geitur. Bústofnsbreytingar. Fróðlegt er að athuga tölur um bústofn yfir nokkurt árabil (sjá hér aprílblöð Hagtíðinda svo og Tölfræðihandbók 1984), meðal annars með hlið- sjón af þeirri stefnu, sem beitt hefur verið í land- búnaði nú að undanfömu, að draga úr framleiðslu hinna hefðbundnu greina. Áratuginn 1970-1980 var tala nautgripa allbreytileg ár hvert á bilinu 60-67 þúsund en tala mjólkurkúa var yfirleitt 36-37 þúsund. Árin 1982-1984 jókst nautgripa- fjöldinn til muna eða úr u.þ.b. 60 þúsundum í tæp 73 þúsundárin 1984 og 1985. Kúm fjölgaði minna eða úr 33 þúsundum í u.þ.b. 35 þúsund. Árið 1987 fækkaði nautgripum alls um 2.400 og kúm fækkaði um 1.000 en árið 1988 fjölgaði nautgripum aftur á móti um 1.800 alls, en kúm fækkaði um 900 frá fyrra ári. Sauðfé fjölgaði mjög mikið á sl. áratug og taldi stofninn 896 þúsund þegar hann var stærstur árið 1977. Eftir það var sauðfé fækkað að mun í 712 þúsund árið 1983. Því fjölgaði nokkuð aftur 1984 en fækkaði svo um 5 þúsund 1985,34 þúsund 1986,51 þúsund 1987 og 37 þúsund 1988, en þá var sauðfé orðið færra en nokkra sinni frá því á árinu 1954. Um aldamót vora talin 43 þúsund hross í landinu en þeim fjölgaði í 62 þúsund þegar mest lét árið 1943. Eftir það fækkaði hrossum stöðugt niður í um 30 þúsund á áranum 1958-1964, en fór þá að fjölga á ný. Árið 1988 vora talin vera um 64 þúsund hross í landinu eða 11 þúsundum fleiri en árið 1980. Hér á undan hefur þegar verið getið um loðdýr en þeim hefur fjölgað veralega árin 1985, 1986 og 1987, en á árinu 1988 fækkaði refum mjög mikið, en minkum fjölgaði veralega. Jafnframt hefur svínabúskapur aukist stórlega eins og bústofnstölur bera með sér. Fjöldi búfjár 1970-1988. 1970 1975 1980 1983 1984 1985 1986 1987 1988 Nautgripir 53.294 61.785 59.933 68.540 72.686 72.889 71.383 69.029 70.824 þ.a. kýr 34.275 36.312 33.577 33.189 34.234 35.115 33.872 32.880 32.005 Sauðfé 735.543 860.376 827.927 711.936 714.371 709.257 675.515 624.262 586.887 Hross 33.472 44.925 52.346 52.056 53.010 54.132 56.352 59.218 63.531 Hænsni 135.219 210.348 310.724 294.425 302.925 322.600 309.831 274.210 229.733 Svín 667 1.028 1.553 2.203 2.362 2.575 2.744 3.351 3.453
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hagtíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.