Hagtíðindi

Ukioqatigiit

Hagtíðindi - 01.12.1990, Qupperneq 27

Hagtíðindi - 01.12.1990, Qupperneq 27
1990 447 Mannfjöldi 1. desember 1990 (bráðabirgðatölur) Hagstofan vinnur á hveiju ári ýmsar upplýsingar um tölu landsmanna, þar á meðal margvíslegt efni með talningu úr nýgerðum íbúaskrám miðað við 1. desember, og liggja þær að jafnaði fyrir snemma næsta ár. Töluefni þetta er nefnt „bráðabirgðatölur 1. desember" vegna þess að eftir eiga að berast ýmsar leiðréttingar við upphaflegar íbúaskrár, en að þeim fengnum eru unnar og birtar endanlegar tölur mannfjöldans. Þegarendanlegutölumarerutilbúnar eru einnig reiknaðar og birtar tölur um meðal- mannfjölda á árinu, en þær eru notaðar þegar reikna þaif tíðnitölur yfir árið. I grein þessari eru skýringar við 11 töflur sem sýna bráðabirgðatölur mannfjöldans 1. desember 1990. Þæreru: 1. Mannfjöldi eftir umdæmum og kyni. 2. MannQöldi eftir byggðarstigi og kyni. 3. MannQöldi á einstökum stöðum í þéttbýli og í strjálbýli eftir kyni. 4. Mannfjöldi í sóknum, prestaköllum og prófastsdæmum, svo og eftir sveitarfélögum innan sókna. 5. Mannfjöldi eftir landsvæðum, kyni og aldri. 6. MannfjöldieftirlandsvæðumoghjúskaparstétL 7. MannQöldi eftir landsvæðum, kyni, aldri og hjúskaparstétt. 8. Kjarnafjölskyldur eftir landsvæðum og mannfjöldi í þeim og utan. 9. Mannfjöldi fæddur erlendis og erlendir ríkisborgarar. 10. Mannfjöldi og fjölgun eftir landsvæðum og fæðingarstað og ríkisfangi hér á landi eða erlendis. 11. Mannfjöldi eftir trúfélagi. Upplýsingar þær sem töflumar hafa að geyma eru tiltækar fyrir hvert sveitarfélag landsins, nema þær sem eru í töflu 6, þær eru aðeins til fyrir kaupstaði og sýslur. Upplýsingar í töflum 5 og 7 eru tiltækar fyrir einstaka þéttbýlisstaði og stijálbýli innan sveitarfélags. Upplýsingar í töflu 11 eru tiltækar fyrir sóknir, prestaköU og prófastsdæmi. Þegar endanlegar mannfjöldatölur verða birtar í vor verða allar tölur taflna 1-3 endurskoðaðar. Það á einnig við tölur fyrir landið allt í töflum 5-7 og þær þá miðaðar við 31. desember 1990. Annað talnaefni er ekki endurskoðað, og eru samanburðartölur ffá fyrri árum í töflunum hér á eftir því ýmist bráðabirgðatölur eða endanlegar. Viðmiðunartími talnanna Sem áður segir eru allar tölur fyrir 1. desember 1990 í þessari grein bráðabirgðatölur. Endanleg mannfjöldatala 1. desember 1990 á eftir að breytast nokkuð, því að í henni er tekið tillit til breytinga til hækkunar eða lækkunar vegna fólksflu tninga að og ffá landinu, sem áttu sér stað fyrir 1. desember, en of seint er tilkynnt um, svo og vegna flutninga milli sveitarfélaga. Þeir sem hafa andast fyrir 1. desember eiga ekki að vera með í mannfjöldatölunum. Síðan árið 1988 á ekki að vanta í tölumar böm sem fæddust í nýliðnum nóvember, eins og verið hafði í bráða- birgðatölum fram til þess. Skráning hjúskaparstéttar á þjóðskrá á að miðast við upplýsingar um hjónavígslur, skilnaöi að borði og sæng og lögskilnaði, sem hafa orðið fram til 30. nóvember næst á undan. Fram til ársins 1987 var miðað við 31. október í þessu efni. Ljúki hjúskap með andláti maka miðast breytingar eftir framan- sögðu við lok nóvember. Sama á við um það þegar hjón slíta samvistir með lögheimilisflutningi, sem tilkynntur er fyrir 1. desember. Skráning á trúfélagi eða ríkisfangi á að miðast við breytingar sem hafa orðið fram að 1. desember. Staðsetning mannfjöldans Mannfjöldatölur miðast við lögheimili. í lögheimilislögum nr. 35/1960, með áorðnum breytingum, er það meginregla að hver maður á lögheimili þar sem hann á heimili. Heimili telst sá staður þar sem maður hefur bækistöð og dvelst að jafnaði í tómstundum sínum og hefur þá muni sem eru honum persónulega tengdir, svo sem fatnað, húsgögn, bækur og fleira. Það telst þó ekki heimili dveljist maður í skóla, sjúkrahúsi, elliheimili, fangelsi, eða annarri slíkri stofnun. Sama gildir um dvalarstað vegna árstíðabundinnar atvinnu, enda hverfi maðurinn aftur til lögheimilis síns að dvölinni lokinni. Þrátt fyrir það getur lögheimili talist á elliheimili, í sérhæfðum íbúðum o.s.frv., ef fyrir liggur samþykki sveitarstjómar, og mun það að jafnaði vera fyrir hendi fýrir þá sem eiga þegar lögheimili annars staðar í sama sveitarfélagi. Hjón eiga saman lögheimili, og böm eiga lögheimili hjá þeim sem fara með forsjá þeirra. Samkvæmt lögunum er þeim sem dveljast erlendis við námrétt að telja lögheimili sitt í því sveitarfélagi, þar sem þeir áttu lögheimili þegar þeir fóm af landi brott Þetta á þó ekki við lengur um þá sem fara til náms annars staðar á Norðurlöndum og skrá sig þar. Samkvæmt norrænum samningi um almanna- skráningu, sem kom til framkvæmda 1. október 1969 (nýr samningur öðlaðist gildi 1. október 1990), skal hver einstaklingur sem tekinn er á almannaskrá í einu aðildarlandinu — hvort sem er vegna náms- dvalar eða annars—um leið felldur af almannaskrá í því landi, sem hann flytur frá. íslenskt sendiráðsfólk heldur lögheimili sínu á íslandi, en erlent sendiráðsfólk á fslandi og vamar- liðsmenn eiga ekki lögheimili hér. Um tilkynningar aðsetursskipta gilda lög nr. 73/ 1952 með áorðnum breytingum. Samkvæmt þeim skal hver sá sem skiptir um aðsetur tilkynna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hagtíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.