Baldur - 07.04.1945, Side 1
UTGEFANDI: S ÓSIALIST AFÉLAG ISAFJARÐAR
XI. ÁRG.
ísafjörður, 7. apríl 1945
9. tölublað.
Stórkostleg aukning
íiskibátaílotans.
Rikisstjórnin ákveður smiði 50 fiskibáta
innanlands.
Fær loíorð fyrir 55 nýjum Svíþjóðarbátum.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta byggja 50 fiski-
báta í skipasmíðastöðvum hér innanlands og á smíðinni
að vera lokið á næstu 1—2 árum. Helmingur bátanna
verður 35 tonn að stærð, en hinn helmingurinn 55 tonn.
Ennfremur hefur ríkisstjórnin fengið loforð um út-
flutningsleyfi á 55 fiskiskipum frá Svíþjóð til viðbótar
þeim, sem áður hefur verið samið um.
Sveinn Björnsson
sjálfkjörinn forseti.
Þrír stjói'nmálaflokkar, —
Sjálfstæðisflokkurinn, Alþ<rðu-
flokkuriníx og Fi’amsóknai’-
flokkurinn hafa tilkynnt að
þeir munu styðja Svein
Bjöi’nsson, l'oi-seta, við l'oi'seta-
kjörið í sumar. Sameiningar-
flokkur alþýðu — Sósíalista-
flokkurinn — hefur hinsvegar
lýst því yfir, að hann styðji
ekki kosningu núverandi for-
seta, en muni þó ekki liafa
mann í kjöri gegn honum að
þessu sinni.
1 greinai’gei’ð flokksins fyrir
þessari afstöðu er meðal ann-
ars tekið fram:
Sósíalistaflokkurinn er ekki
fylgjandi kosningu núverandi
loi’seta, en mun ekki beita sér
fyi'ir framboði gegn honum af
eftirgreindum ástæðum:
1 fyrsta lagi: Fjöldasamtök
þjóðarinnar hafa ekki séð á-
sta'ðu til þess að koma sér
saman um frainlxjóðanda og
Sósíalistaflokkurinn álítur nú
sem fyrr að eigi sé brýn ástæða
fyrir flokkinn að grípa frám
fyi’ir hendur þeirra.
I öðru lagi: Samstai’fsflokk-
ar Sósíalistaflokksins í ríkis-
stjói’n, Sjálfstæðisflokkurinn
og Alþýðuflokkurinn, hafa á-
kveðið að standa að framboði
núverandi lörseta — og sér
Sósíalistaflokkurinn ekki á-
stæðu til þess að fara að lieyja
kosningaharáttu, þar sem þess-
ir samstarfsflokkar stæðu önd-
verðir, þar eð slíkl væri
óheppilegt gagnvart þeirri
þjóðai’einingu, scm þarf - að
vei’a og er að myndast um
stefnu ríkisstjói’narinnar.
I þriðja lagi: Dt á við er það
nokkur kostur, meðan lýðveldi
vort er að festast í sessi, að
sýna þá þjóðareiningu, er fram
kemur í því að forseti lýðveld-
isins sé sjálfkjörinn.
Dt frá þessum forsendum á-
kvað því miðstjórn Sósíalista-
flokksins á fundi sínum 22.
mai’z að bjóða eigi fram af
hálfu flokksins til forseta-
kjörs að jjessu sinni.
-------0------
Barnamessa
verður í Isafj arðarkirkj u
á morgun kl. 11 f. h.
Alrnenn messa kl. 2 e. h.
Bátar þessir verða seldir ein-
staklingum og lelögum eða
bæjar- og sveitarfélögum. Ný-
byggingarráð tekur á móti til-
boðum i bátana og annast af-
hendingu þeirra. Auglýsir Ný-
byggingarráð liér i blaðinu í
dag eftir tilboðum í þá báta,
sem byggðir verða innanlands.
Átvinnumálaráðuneytið mun
hinsvegar seníja við skipa-
smíðastöðvarnar um smíði
þessara báta og annast fram-
kvæmdir, er þar að lúta. Aðal-
tilgangurinn með þessum heild-
ar-sanmingum er að koma
skipasmíðastöðvunum af stað
með smíðarnar, ogr einnig eru
ineiri möguleikar á að fá skip-
in ódýrari ef samið er um
byggingu þeirra allra í einu,
heldur en ef samið væri um
smíði livers einstaks skips.
Drn verð á þessum skipum
er allt óákveðið ennþá. Fyrir
nýár í vetur barst atvinnu-
málaráðuneytinu tilboð frá öll-
um helztu sldpasmíðastöðvum
innanlands, um smíði á skip-
uni frá 27—80 smálestir að
stærð, fyrir kr. 7500 á smálest
að undanskildu kaupverði véla
og spila. Tilboð þetta var mið-
að við það, að niinnst 2 bátar
yrðu smíðaðir á hverri stöð.
Miðað við Svíþjóðarbátana er
þetta mjög hátl verð, en gera
má ráð fyrir að því megi þoka
nokkuð niður, þegar samið er
um smíði svona margra skipa
og sama skipasmíðastöðin getur
halt fleiri báta sömu gerðar í
siníðum í einu. Þá má gcra ráð
fyrir að skipasmíðastöðvarnar
geri sér far um að smíða báta
þessa eins ódýrt og tök eru á,
með því myndu þær tryggja
sér atvinnu við smíði þeirra
skipa i framtiðinni, sem ann-
ars yrðu keypt inn frá útlönd-
um.
Væntanlegir kaupendur þess-
ara skipa geta gert ráð i'yrir að
fá út á 1. veðrétt liskveiða-
sjóðslán að upphæð 3000 kr. á
smálest, ennfremur styrktar-
lán, vaxtalaust, að upphæð
100 þús. kr. á hvern bát, út á
3. veðrétt. Það, sem til vantar,
verða kaupendur svo að leggja
sjálfir fram, og taka til þess lán
út á 2. veðrétt, cf þeir þurla.
Verður að gera ráð fyrir að
lánstofnanir verði fúsar til að
veita lán í þessu skyni.
Þessi stórhuga ákvörðun rík-
isstj órnarinnar, um smíði 50
fiskibáta innanlands og kaup á
100 fiskibátum frá Svíþjóð,
með þeim, sem áður voru pant-
aðir þaðan, er ekki aðeins þýð-
armikil fyrir aðalatvinnuveg
landsmanna, fiskveiðarnar, —
hcldur einnig fyrir skipasmíða-
stöðvarnar og atvinnu við
skipasmiðár, því talið er að
við smíði þessara skipa verði
fullnotuð öll byggingarafköst
allra innlendra skipasmíða-
stöðva.
Vonandi semst svo um bygg-
ingu þessara skipa, að allir
megi vel við una, kaupendur
skipanna, skipasmiðastöðvarn-
ar og þar með allir landsmenn.
Og áreiðanlega gerir rikis-
stjórnin ráðstafanir til að það
megi takast.
0-------
361 farþegi með flug,
vélum h. f. Loftleiða
í marzmánuði.
Dmboðsmaður h. f. Loftleiða
hér á Isafirði, Þorleifur
G u ðmundsson, framkvæmd ar-
stjóri, liefur sent blaðinu eftir-
farandi frétt:
Flugvélar h. f. Loftleiða
fluttu í marzmánuði samtals
361 farþega, ög allmikið af
pósti. Flogið var til lsafjarðar,
Flateyrar, Þingeyrar, Bíldu-
dals, Patreksfjarðar, Ingólfs-
fjarðar, Djúpuvíkur, Hólma-
víkur og til ýmsra staða við
Breiðafjörð. — Ennfremur
sjúkraflug austur að Lóni í
Kelduhverfi í Norður-Þing-
eyjarsýslu. Til Siglufjarðar
voru farnar nokkrar ferðir.
INIilIi Isafjarðar og Reykjavík-
ur voru fluttir 146 farþegar.
Þegar þess er gætt, að að-
eins tvær ferðir voru farnar
frá 1. marz til 14. marz, má
telja árangurinn af fluginu í
mánuðinum góðan, þegar liöfð
er í huga sú fádæma ótið, sem
verið hefir.
------0-------
Grímur Jónsson,
útvegsbóndi í Súðavík, varð
sextugur 4. þ. m.
Miiiningarathöfn uni þá sem fórust með Dettilössi
iór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík 27. marz s.l.,
jafnframt lör fram útför þeirra Davíðs Gíslasonar,
1. stýrimanns, Jóns Bogasonar, lirj'ta, og Jóhannesar
Sigurðssonar, búrmanns.
Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, flutti minningar-
ræðuna. Dómkirkjukórinn söng undir stjórn Páls Is-
óllssonar. Strengjahljómsveit Tónlistarfélagsins lék.
Guðmundur Jónsson söng einsöng og Þórarinn Jónsson
lék á liðlu.
Athöfninni var útvarpað.
Ilér í bænum blöktu fánar í liálfastöng meðan á
minningarathöfninni stóð.