Baldur - 23.12.1953, Qupperneq 9
BALDUR d
með aprílbyrjun og hófu veiðar
úr því, en flest voru hætt veiðum
í miðjum sept^mber. Afli varð í
góðu meðallagi. Fiskatalan var
há, en fiskurinn óvenjulega smár
hjá fjölda skipanna.
Verðlag á innlendum vörum var
sem hér segir: Kaupmenn greiddu
8 aura fyrir kilóið af nýjum, flött-
um þorski og 6 aura fyrir ýsuna,
en 14 aura fyrir kílóið af þorski
og 8 aura fyrir kílóið af ýsu upp
úr salti. Fyrir skippundið af full-
verkuðum úrvalsfiski voru greidd-
ar 40 krónur. Björn Sigurðsson,
kaupmaður í Flatey, kom hingað
í ágúst og bauð 5 krónum hærra
fyrir skippundið, en fæstir gátu
sinnt því boði, því að þeir voru
búnir að lofa eða láta megnið af
fiski sínum.
Verð á kjöti var frá 32—40 aur.
kg., mör 60—70 aura, slátur ein
króna til 1,50 kr., gærur af rosknu
fé 1,50—2,00 kr. hver.
Rúgbrauð (3 kg.) var selt á 80
aura og sigtibrauð, sem vógul,75
kg., kostuðu jafn mikið, og þótti
hvorttveggja dýrt borið saman
við verð á brauðum í Reykjavík.
Slysfarir og skaðar urðu vonum
færri þegar gætt er tíðarfarsins.
Fiskiskip, er verzlun Leonh.
Tangs átti og hét „ísfirðingur",
brotnaði, er verið var að setja
það niður í aprilbyrjun. Féll það
á hliðina og brotnaði önnur síð-
an mjög og planki sprakk í hinni.
Samt talið að hægt mundi vera að
gera við það. Ekki varð af slys
eða manntjón.
Tómas Eiríksson, húsmaður hér
í bæ, slasaðist í aprílmánuði í
hendi í vinnu hjá Ásgeirsverzlun
svo mjög, að yfirlæknirinn á
varðskipinu „Diana“ varð að taka
af honum vinstri höndina. Annar
maður slaðaðist og þar í vinnu
um vorið, gekk úr liði bæði í hné
og ökla. Datt hann ofan af fisk-
stakki.
1 júní drukknaði arnfirzkur
maður, Jóhann Tómasson, á
Haukadalsbót af ísfirzkum þilju-
báti.
Þilskipin „Springeren" frá Isa-
firði og „Rósamunda“ frá Bíldu-
dal rákust saman á siglingu und-
an Látrabjargi og löskuðust bæði,
Rósamunda þó meir og skipstjór-
inn á henni meiddist.
Unglingspiltur úr Reykjavík,
Pétur Klemensson að nafni, vár
af rælni að klífa upp í reiðann á
gufuskipinu „Solide“, sem stóð
uppi í Neðsta-kaupstað. Svo að
segja efst á milli siglutrjánna var
spenntur mjór strengur og ætlaði
pilturinn, sem var kominn upp í
topp á annarri siglunni, að fara
eftir strengnum yfir á hina sigl-
una. Þegar hann kom út á streng-
inn, féll hann niður og allt ofan
á kjölsvín skipsins, því að lestin
var opin. Pilturinn brotnaði á
báðum fótum um ökla, en slapp
að öðru leyti ómeiddur. Varð
hann alheill. Þetta slys varð í
september.
1 ofsaroki rétt fyrir jól urðu
skipverjar á galeasnum „Árna
Jónssyni", er þá var staddur á
Önundarfirði, að höggva bæði
siglutrén til þess að bjarga skipi
og farmi.
(Skip þetta virðist hafa verið
lítil happafleyta. í öndverðum
apríl 1891 kom það til Isafjarðar
frá Englandi fermt salti og kol-
um til verzlunar Lárusar Snorra-
sonar. Hét það þá „Christine“ og
var heimilisfang þess Stavanger í
Noregi. Skipstjórinn hét Tenne-
sen. Skipið lá í Sundunum innar-
lega er það var affermt. Afferm-
ingu var lokið, en engin seglfesta
komin í skipið, þegar aftaka suð-
vestanveður gerði aðfaranóttina
13. apríl. Þá nótt hvolfdi skipinu.
Menn vissu ekki með hvaða hætti
slys þetta varð, því að bæjarbúar
voru allir í fasta svefni. Er þeir
risu úr rekkju um morguninn sást
skipið á hvolfi í Sundunum og
stóð lítið meira en kjölurinn upp
úr. Skipshöfnin var 5 manns og
týndist hún öll. Lík skipstjórans
og stýrimannsins fundust rekin á
Kirkjubólshlíð og var útför þeirra
gerð 21. apríl. Lík annarra skip-
verja fundust ekki að sinni. Hval-
veiðabátur reyndi rétt strax að
snúa skipinu á réttan kjöl, en
tókst ekki, enda hafði annað
siglutréð grafizt niður í sjávar-
botninn. Hraktist skipið svo um
Sundin á hvolfi, þar til loks heppn
aðist að snúa því til fulls á rétt-
an kjöl 27. maí, eða hálfum öðr-
um mánuði eftir að því hvolfdi.
Fannst þá lík eins manns í skip-
inu. Skipsskrokkurinn mátti heita
óskemmdur, en siglutoppar og
stengur nokkuð laskað. Skipið var
síðan selt hér og keypti það
verzlun Á. Ásgeirssonar. Var það
svo í förum milli landa næstu tvö
árin. Þann 10. nóvember fór skip-
ið héðan með saltfiskfarm áleiðis
til Englands, hraktist það milli
hafna hér í nágrenninu unz skip-
verjar urðu nóttina milli 20. og
21. desember að höggva bæði
siglutrén, eins og áður segir. Síð-
an var skipið selt á uppboði á
Flateyri fyrir rúmar 300 krónur.
Komst það svo aftur í eigu Ás-
geirsverzlunar hér, en nú var sæ-
förum þess lokið. Ferli sínum
lauk skip þetta uppi í fjöru neð-
anvert í Mjósundunum. Voru
geymdar í því steinolíutunnur í
nokkur ár. Dyr voru gerðar á
bóginn og tunnunum velt þar inn
og út, ýmist fullum eða tómum.
Að síðustu var það rifið og við-
irair hafðir í eldinn.)
Skipakostur jókst á árinu. Verzl-
un Ásgeirs Ásgeirssonar keypti
frá útlöndum 3 þilskip til fisk-
veiða og komu þau hingað i maí-
mánuði. Sama verzlun keypti og
á árinu gufuskipið „Solide“ og
ætlaði það til vöruflutninga. Var
skipið allstórt, en vélin lítil, svo
að það gekk illa.
tJtsvörin, sem lögð voru á bæj-
arbúa, námu alls 2480 krónum og
25 aurum. Gjaldendur voru 204,
þar af 61, er greiddu minna en 4
krónur hver. Útsvarsupphæðin
skiptist þannig milli stétta:
Kaupmenn og fastir
þjónar .............. kr. 1416,00
Embættismenn ........ kr. 173,00
Iðnaðarmenn ........... — 268,00
Ekkjur og lausakonur — 49,00
Bakarabúðirnar ........ — 70,00
Lausamenn, húsmenn
og sjómenn ............ — 504,00
Hæsta útsvar greiddi verzlun
Ásgeirs Ásgeirssonar, kr. 515,00.
Heilsufar bæjarbúa var allgott.
Engar skæðar farsóttir gengu hér,
en kvefvesöld var um vorið, þó
ekki hættuleg, og eins var bæði
bólgusótt og þyngslakvefsótt að
stinga sér niður um haustið.
Það gerðist merkilegast í heil-
brigðismálum bæjarins, að enskt
verzlunarfyrirtæki, Chr. Salvesen
& Co. í Leith bauðst til að gefa
bænum húseign sína hér á Isa-
firði, ef innleyst yrði 1200 króna
veðskuld, sem á henni hvíldi, og
bærinn skuldbindi sig til þess að
nota húsið til sjúkrahúss. Þessi
höfðinglega gjöf var auðvitað
þegin.
(Um sjúkrahúsmálið er þetta ann-
ars að segja: Á aðalfundi ábyrgð-
armanna sparisjóðsins á Isafirði
6. apríl 1889 var samþykkt að
gefa af viðlagasjóði hans 1000
krónur til stofnunar sjúkrahúss á
Isafirði og í júlí s.á. voru þeir
Þorvaldur læknir Jónsson, Sophus
J. Nielsen, verzlunarstjóri, og Jón
Jónsson, snikkari, kosnir í nefnd
til þess að geyma, ávaxta og auka
stofnfé þetta. Nefndinni hafði
orðið það ágengt, að sjóðurinn
átti á þessu ári 3132,00 krónur.
Höfðu bæði innlendir menn og er-
lendir gefið sjóðnum gjafir, en
rausnarlegasta gjöfin var frá
ekkju Ásgeirs eldra Ásgeirssonar
kaupmanns, Sigríði, sem gaf 1000
krónur. Nú um haustið samþykkti
bæjarstjórnin að styrkja sjúkra-
hússtofnun með kr. 3000,00 og
átti að taka lán í því skyni.
Skömmu síðar barst svo ofan-
nefnd húsgjöf. Varð hún til þess,
að nú komst skriður á málið.
Hert var á söfnun samskota og
haustið 1894 var -upphæðin orðin
5705,00 kr. Sparisjóðurinn gaf enn
2000,00 kr„ nokkrir, og meðal
þeirra Chr. Salvesen, 100,00 kr.,
en annars voru flestar gjafirnar
frá 1 krónu og upp í 10 krónur.
Húseignina, sem þeir Chr. Salv-
esen & Co. gáfu, reisti verzlunar-
fyrirtækið Fischer & Falck árið
1883 og endurbættu árið 1885, og
var það þá virt á 6000 krónur.
Árið 1894 var húsinu breytt svo,
að þar var rúm fyrir nokkra
sjúklinga. En 1896 var ráðist í
að reisa nýtt sjúkrahús og tók
Árai Sveinsson, snikkari og kaup-
maður, að sér að koma því upp
fyrir kr. 10.900,00. Var þá hið
fyrra sjúkrahúsið selt Hannesi
Hafstein, sýslumanni, og breytti
hann því og jók við það. Það er
nú eign frú Hásler. En sjúkrahús-
inu var síðar, eftir að það hafði
gegnt hlutverki sínu í 30 ár,
breytt í elliheimili og það er það
enn.)
Framhald í næsta blaði.
--------O--------
HÁTIÐAMESSUR:
ísafjörður:
Aðfangadagskvöld kl. 8
Jóladag kl. 2 e.h. Á Sjúkrahús-
inu kl. 3 e.h.
Gamlársdag kl. 8.
Nýjársdag kl. 2 e.h.
Sunnudaginn milli nýjárs og
þrettánda, Elliheimilð kl. 2 e.h.
Hnífsdalur:
Aðfangadag kl. 6 e.h.
Annan jóladag kl. 2 e.h.
Gamlárskvöld kl. 6 e.h.
Skutulsfjörður:
Sunnudagur milli jóla og nýjárs
kl. 2 e.h.
--------O--------
VINNINGSNÚMER.
Dregið var í Happdrætti Þjóð-
viljans og Baldurs 5. des. s.l. —
Eftirfarndi númer hlutu vinning:
Nr. 3610 dagstofuhúsgögn
Nr. 75096 svefnherbergishúsgögn
Nr. 20433 útvarpsgrammófónn
Nr. 52307 stofuskápur
Nr. 93986 hrærivél
Nr. 8729 ryksuga
Nr. 22606 myndavél
Nr. 40022 ritvél
Nr. 51553 reiðhjól
Nr. 47789 Islendingasögur.
GOTT HERBERGI til leigu.
R.v.á.
llllllllllll|ll|ll|IIIIIIIII"«J
| IIALLÓ! HALLÓ! |
Munið eftir ódýru, sléttu, hurðunum, ásamt fleiru.
1 GLEÐILEG JÓL! FARSÆLT NÝTT Á R!
Þakka fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Jón Isak Magnússon. =
niiiiiiiuiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiini iiiiiiiiiiiiriiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiniiiiM