Heimilispósturinn - 25.03.1961, Side 8
/ <v '[ r
’58 árgerð með gull-bronz-base-lit að ofan, en
hvitur að neðan, sem er afmælislitur (anniver-
sary) Chevrolet-verksmiðjanna, en j)á var sér-
staklega vandað til framleiðslu á Chevroletbílum.
Eirikur sannaði fyrir mér, að þessi sex síl-
indra Chevrolet væri ekki síðri en átta sílindra
get-avvay-Forðari, sem New York-lögreglan
notar. Það var ekki hægt annað en sannfærast,
þegar ekið var Skúlagötuna á leið í mat um
kvöldið.
Aðallestrarefni Eiríks er músíktímaril — seni
hann les spjaidanna á milli, einkum plötukrítik-
ina. Hann les Xime inagazine, einkum þættina
um alþjóðastjórnmál. Hann trúir á framtak ein-
staklingsins og að mönnum sé gefinn kostur á
að vinna sig upp í þjóðfélaginu með dugnaði.
Framar öllu öðru er aðai-áhugamál lians verzl-
un og innflutningur.
Það var búið að loka á Laugavegi 11, þegar
við komum þangað með ljósmyndarann til að
mynda sjeffann. Við þurftum að bíða, en fengum
kaffi á borðið samkvæmt sérstakri skipun frá
æðsta ráði. Allt í einu er aðaldyrunum svipt
upp, og inn kemur Eiríkur með rafmagnsrakvél-
ina suðandi við kjálkabörðin á sér, léttur í hreyf'
ingum eins og köttur. Hann veifar til okkar með
þeirri hendinni, sem ekki hélt um rafmagnsvél-
ina og segir:
— Halló, strákar. Þið hafið fengið kaffi.
Það var orðið rólegt á bamum. Ungu veitinga-
stúlkurnar eru að búa sig til heimfarar.
Donni var í sólskinsskapi. Hann hafði átt góð'
an dag, að því er hann sagði. STEINGB.